Úrval - 01.11.1965, Side 41

Úrval - 01.11.1965, Side 41
DÝ RLINGURINN FRÁ DJÖFLAEYJUNNI 39 læknis, var læknirinn tekinn úr skuldafangelsinu og færður í aðal- stöðvar lögreglunnar til yfirheyrslu vegna hins dána manns. „Ég myrti hann ekki,“ sagði Bou- grat ákveðinn. „Ég skal skýra ykkur nákvæmlega frá, hvað gerðist. Þessi maður var sjúklingur minn, sem hafði orðið fyrir áfalli í styrjöldinni, og þurfti þess vegna að fá innspýt- ingu vikulega. Þessar innspýtingar hafði ég gefið honum um árabil. Hann kom heim til mín til að fá innspýtingu, sem ég gaf honum, og svo fór hann. Snemma um kvöld- ið kom hann aftur, illa á sig kominn. Hann sagði mér, að það hefði verið ráðizt á sig á götunni og rænt af sér peningunum, og hann kæmi til að leita hjálpar hjá mér. Ég gaf honum inn lyf, og þar sem ég þurfti að fara út, sagði ég honum, að hann mætti leggjast á legúbekkinn í dag- stofunni minni og hvíla sig. Þegar ég kom aftur, löngu seinna, lá hann enn á legúbekknum — hann var dáinn. Ég óttaðist, að ég kynni að verða sakaður um að hafa myrt hann. Allir vissu að ég var stór- skuldugur, svo að menn kynnu að halda, að ég hefði rænt peningunum, sem hann var með. Ég drap hann ekki.“ Lögreglurannsókn fór fram, en lögreglan gat ekki fundið neina sönnun þess, að Bougrat hefði tek- ið peningana. Ef Bougrat hafði stoiið peningunum, hvað hafði hann þá gert við þá? Það var þessi spurn- ing, sem Stefani-Martin lögfræðing- ur bar fram. Bougrat hafði vissulega ekki haft neina peninga eftir morðið, sem hann var sakaður um. Fórnarlambið hafði dáið af meiðslum á höfði, höfuðkúpan brotnað, sennilega af barsmíðum og ofsalegu höggi, var niðurstaða saksóknarans. Mundi Bougrat, ef hann hefði myrt manninn, vera svo heimskur að skilja líkið eftir á heimili sínu, vitandi vel að það hlyti að finnast þar að lokum? spurði Stefani-Mar- tin. Saksóknarinn svaraði því til, að Bougrat hefði að líkindum hugs- að sér að flytja líkið á einhvern annan stað og losa sig við það þar að næturlagi, en sú ráðagerð hafi farið út um þúfur, er hann var tek- inn fastur fyrir vanskil. Bougrat læknir var formlega á- kærður fyrir morð og leiddur fyrir sakamálaréttinn í Bouches-du- Rhóne, þar sem hann sagði nákvæm- lega sömu söguna, sem hann hafði sagt lögreglunni í uphafi og hélt því fast fram, að hann væri saklaus af allri hlutdeild í dauða manns- ins. Réturinn trúði ekki sögu hans og sakfelldi hann umsvifalaust. Eina miskunnin, sem honum var sýnd var sú, að dæma hann ekki undir fallöxina, og það eingöngu sökum þess, að hann kynni að hafa verið haldinn einhverskonar drykkjuæði. Hann var dæmdur í ævilangt fang- elsi á Djöflaeyju, og er hann hafði beðið flutnings í sex mánuði í fang- elsinu í Marseilles, var hann, ásamt öðrum handjárnuðum föngum, flutt- ur í lest sakamannaskipsins, sem halda skyldi til frönsku Guiana og glæpamannanýlendunnar. Það var breyttur maður sá Bou- grat læknir, sem dróst í land á
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.