Úrval - 01.11.1965, Side 45
DÍRLINGURINN FRÁ DJÖFLAEYJUNNI
43
tóku upp baráttuna og kröfðust þess
ar réttur yrði skipaður til að rann-
saka Bougartmálið og skera úr því
á grundvelli dómsskjalanna frá
1925, hvort Bougrat læknir væri
sekur eða ekki sekur.
Því að jafnvel þegar Bougrat lá
fyrir dauðanum, tók hann hönd
konu sinnar, sem þekkti alla sögu
hans, og um leið og hann gaf upp
öndina hvíslaði hann: „Je suis inno-
cent! Ég er saklaus!"
GEIMRANNSÓKNIR GETA HJÁLPA.Ð TIL ÞESS AÐ LEYSA ÝMIS
VANDAMÁL STÓRBORGANNA
Sú vitneskja, sem fást mun með hjálp geimrannsókna og tilrauna,
kann að leiða til þess, að hægt verður að framleiða öruggari bila og
leysa þau geysilegu vandamál, sem skapast af reykmyndun og saur-
gun andrúmslofts í borgum nútímans. Forstjóri Geimrannsóknarstofn-
unar Bandaríkjanna ræddi slíkt nýlega á ráðstefnu, sem haldin var
í Oakland i Kaliforníu og bar heitið „Geimurinn, vísindin og borgar-
líf“. Vísindamenn á ráðstefun þessari ræddu aðferðir til Þess að láta
framfarir í geimrannsóknum koma að notum í samgöngumálum og
flutningatækni. Einnig voru ræddar leiðir til þess að notfæra sér slíkar
upplýsingar í baráttunni gegn saurgun lofts og vatns í borgunum, og
tengja þær ráðstöfunum viðvíkjandi holræsaúrgangi og öðrum almenn-
um heilbrigðisráðstöfunum.
Forstjórinn lýsti „sérstaklega hæfum fjöðrunarútbúnaði“ úr alumin-
rörum, sem framleiddur hefur verið til þess að draga úr höggi því,
sem vísindatæki hljóta að verða fyrir, er þau lenda á tunglinu. Það
væri til stórbóta að hans áliti, ef hægt yrði að notfæra sér þessa nýju
tækni í fjöðrunarútbúnaði fyrir bíla og önnur farartæki, því að þannig
mætti mikið draga úr skemmdum og slysum af völdum árekstra. Hann
áleit, að ef til vill myndi reynast mögulegt að útbúa sérstakan öryggis-
sætaútbúnað fyrir bílfarþega líkt og geimfara.
Útbúnaður Apollogeimfarsins, sem á að flytja fyrstu geimfarana
til tunglsins, mun að sjálfsögðu verða margvíslegur og flókinn. Þar
mun m.a. verða um að ræða kerfi til Þess að hreinsa loftið, sem geim-
fararnir anda frá sér, svo að nota megi Það aftur og aftur. Svipuð
kerfi mun verða um að ræða, hvað snertir vatnið, sem þeir drekka,
og ráðstöfun úrgangs, er myndast. Forstjórinn sagði enn fremur: „Reyn-
ist unnt að leysa vandamál þau, sem tengd eru við saurgun vatns og
lofts og ráðstöfun úrgangsefna í för þriggja geimfara tii tunglsins,
munum við að öllum líkindum jafnframt læra margt og mikið, sem mun
geta komið að góðurn notum við lausn slíkra vandamála sem fyrir
hendi eru í borgum okkar.“
Science Horizons