Úrval - 01.11.1965, Blaðsíða 75
FEODOR DOSTOJEVSKY
73
að losa sig úr skuldum, en það blés
ekki byrlega fyrir honum í því
efni. Hann var ekki lengur eftir-
læti bókmenntaunnenda, heldur
gerðu þeir gys að honum.
Þegar Dostojevsky hafði verið
gerður útlægur úr einum áhuga-
mannahópnum, var eðlilegt að hann
leitaði halds og trausts hjá öðrum.
Hópurinn, sem hann valdi sér var
umbótahreyfing, sem um þessar
mundir hélt leynilega umræðufundi
um tvö stórmál: afnám þeirra hafta,
sem stj órnarvöldin höfðu sett á mál-
frelsi manna og lausn þrælanna úr
ánauð. Þessi baráttumál bæði höfðu
mikil áhrif á Dostojevsky, hið fyrra
vegna þess að hann var rithöfund-
ur, og hið síðara sökum reynslu
hans af þrælahaldinu á búgarði
föður hans.
Stj órnarvöldin voru alltaf á varð-
bergi gagnvart slíkum hreyfingum
og njósnarar leynilögreglunnar
fylgdust með öllu sem gerðist á
fundunum. Á einum slíkum fundi
talaði Dostojevsky óvarlega um
bændaánauðina og mátti jafnvel
skilja orð hans sem byltingaráróð-
ur. Afleiðingin varð sú, að hann var
handtekinn ásamt tuttugu og ein-
um félaga sínum. Það var 23 apríl
1849. Það var þessi hópur, sem beið
aftökunnar á Semyonovskytorginu
í Pétursborg 22. desember sama ár.
Á jóladag lögðu hinir náðuðu
menn af stað til borgarinnar Omsk,
þar sem þeir áttu að sitja í fang-
elsi. Dostojevsky lýsir hinni hrylli-
legu reynslu, er hann varð fyrir
í fangelsinu, í bókinni Hús dauðans,
sem kom.út árið 1860. Hann sat
fjögur ár í fangelsi, en þá tók við
útlegðardómur, sem hann varð að
afplána í borginni Semipalatnisk.
Dostojevsky gekk í herinn sem
óbreyttur hermaður til þess að hafa
ofan af fyrir sér. (Hann hafði verið
sviptur öllum hernaðarmetorðum
og aðalstign sinni, þegar hann var
dæmdur.) Hann fékk leyfi yfir-
manns síns til að búa í einkaíbúð,
og umboðsmaður stjórnarinnar í
Síberíu, Wrangel barón, reyndist
honum vinveittur og létti honum
erfiðleika útlegðaráranna á marg-
an hátt. Hann byrjaði að skrifa Hús
dauðans og varð um svipað leyti
ástfanginn af Maríu Issayer, sem
var gift liðsforingja einum. Ást
þeirra var gagnkvæm. María missti
mann sinn árið 1857 og þá giftist
hún Dostojevsky.
Árið 1858 var útlegðartímabilinu
lokið og Dostojevsky fékk leyfi til
að setjast að í Pétursborg. Hann
lauk við Hús dauðans, sem birtist
fyrst í tímaritinu Vremyja.
Kona hans var nú orðin veik af
berklum og fór aftur heim til Sí-
beríu. Dostojevsky lagði hinsvegar
upp í fyrstu utanlandsför sína 1862
og ferðaðist til Parísar, London og
Genf. Árið eftir hélt hann til Róma-
borgar, Þýzkalands og Danmerkur.
Dostojevsky var í sömu fjárhags-
vandræðunum og áður. Kona hans
var eignalaus og hann varð að sjá
fyrir henni í veikindum hennar.
Hann fór nú að spila fjárhættuspil
til þess að reyna að auka tekjur
sínar. Þegar hann var staddur í
Wiesbaden, þóttist hann hafa fund-
ið upp öruggt kerfi til að vinna í
spilavítinu. Fyrsta kvöldið græddi
hann 10 þúsund franka og kvöldið