Úrval - 01.11.1965, Page 86

Úrval - 01.11.1965, Page 86
84 ÚRVAL vögnum, sem fóru yfir Alpafjöllin til þess að finna sér nýjan sama- stað á Ítalíu og Balkanskaga, og þeir bátsfarmar af innflytjendum frá Niðurlöndum, sem leituðu nýs lífs á Bretlandi eða írlandi, klofn- uðu undantekningarlaust í sína sér- stöku ættflokka, jafnskjótt og hindr- anir náttúrunnar voru yfirunnar. Þannig var keltneskt fólk, sem enn hélt sínum sérstöku ættarnöfn- um og siðum, dreift um alla Vestur- Evrópu og Miðjarðarhafslöndin á tímum rómverska ríkisins. Jafnvel á 4. öld e. Kr. segir Jerome frá því, að Galatarnir í Litlu-Asíu hafi, auk þess sem þeir töluðu grísku, haft sitt eigið tungumál, sem var nauða- líkt máli Treveranna í Rínarlönd- um. Þessir Galatar höfðu upphaflega verið hluti af geysi miklum þjóð- flutningum Kelta, sem streymdu inn yfir Makedóníu á 3. öld f. Kr., og jafnvel rændu véfréttina í Delfi. Stærsti hópur meðbræðra hans, sem keltneskur hermaður viður- kenndi að ætti kröfu á trúnaði hans, var ættflokkur hans, að því undan- skildu þegar á þjóðflutningum stóð. Og innan sjálfs ættflokksins (og jafnvel innan heimilisins, sagði Cæsar) voru smærri hópar undir handleiðslu voldugra höfðingja, sem hermanninum bar fyrst og fremst að auðsýna hollustu. Lýsingar Cæsars á Gallíu og Bret- landi bregða upp mynd af ættar- samfélagi, sem í voru þrjár stéttir frjálsra manna — höfðingjar, prest- ar (druidar) og frjálsir borgarar. Einn mikilvægur mismunur var sá, að um það leyti, sem Rómverjar voru að leggja undir sig landið, ríktu yfir ættflokkunum í Bretlandi erfðakonungar, en í Gallíu höfðu hinsvegar allt frá fyrstu öld f. Kr., þróazt kerfi friðdómara. Allir frjáls- ir menn áttu rétt á þátttöku í opin- berum trúarathöfnum; og Cæsar skýrir frá því, hvernig þeir, sem neituðu að beygja sig fyrir dóms- úrskurðum prestanna voru útilokað- ir frá fórnum, og að í því var einn- ig innifalin útilokun frá helgisið- um og forréttindum. Innan ættflokksins voru ættingj- arnir hin mikilvæga samfélagsein- ing, sem átti landið, og sem það varð ekki frá tekið. í hinu frum- stæða keltneska samfélagi, sem hélzt við í Bretlandi fram á fyrstu öld, báru ættingjar viðkomandi að- ila að miklu leyti ábyrgð á því að halda uppi lögum og láta menn ná rétti sínum; en í Gallíu kváðu prestarnir upp dóma og úrskurði bæði um andleg og veraldleg efni. Þeir, sem ekki voru undir vernd voldugra, náinna skyldmenna, renndu að sjálfsögðu vonaraugum til höfðingja, sem kynnu að vera fúsir til að veita mönnum af lægri stigum vernd. Höfðinginn öðlaðist virðingu og völd, ekki aðeins fyrir veraldleg auðæfi sín í landi og bú- fé, heldur einnig í hlutfalli við fjölda skjólstæðinga sinna. Þessi virðing var metin til „heiðursverðs", sem var breytilegt í samræmi við hlutskipti mannsins, og sem var tekið tillit til við mat á öllum skaða- bótum. Hið flókna samband verndara og skjólstæðinga hjá Keltunum, náði út fyrir takmörk skyldleika eða ætt- flokka. Skyldmenni kunnu að hafa
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.