Úrval - 01.11.1965, Page 107
MAÐURINN, SEM ENGINN ÞEKKIR
105
stöðuna? Hvað átti Jesús við með
svari sínu?
Ég var eitt sinn á ferð með járn-
brautarlest og kynntist þá vitrum
manni, sem áreiðanlega skildi, hvað
Jesús átti við. Hann sagði: „Ég er
hissa á þeim ungu mönnum, sem
biðja mig að beita áhrifum mínum
til þess að þeir fái betri stöður.
Þeir virðast vera algerlega skiln-
ingslausir á grundvallaratriði máls-
ins. Ég starfaði í mörg ár hjá fyrir-
tæki einu, og ég spurði aldrei hvaða
laun eða stöðu ég mundi fá — eng-
inn af starfsmönnum þessa fyrir-
tækis eyddi tímanum í slíkar vanga-
veltur. Við hugsuðum um það eitt
að auka starfsemi 'fyrirtækisins og
færa hana út um allan heim — gera
það að bezta og þarfasta fyrirtæki
sinnar tegundar.“ þetta fyrirtæki
hafði að vísu gert samferðamann
minn auðugan, en ég er viss um
að honum var þjónustan alltaf efst
í huga, en ekki hagnaðarvonin.
Við minnumst einnig orða Jesús:
„Sælla er að gefa en þiggja.“ Þessi
kenning virðist fljótt á litið vera
fremur fávísleg og ekki í neinu
samræmi við veruleikann. Væri sá
maður ekki heimskingi, sem reyndi
að lifa lífinu samkvæmt þessari
kenningu?
Dag nokkurn sagði ég við frægan
sagnfræðing: „Þér hafið kynnt yður
sögu mankynsins frá upphafi og
hafið yfirsýn yfir þróunarferil þess.
Hvaða einstaklingar rísa hæst upp
úr því mikla mannhafi? Hvaða sex
menn úr þeim hópi teljið þér eiga
skilið að kallast mikilmenni?"
Hann velti spurningunni fyrir sér
í einn eða tvo daga; síðan fékk hann
mér lista með sex nöfnum, ásamt
rökstuðningi fyrir valinu. Það var
einkennilegur listi! Jesús. Búdda.
Asoka. Aristóteles. Bacon. Lincoln.
Hugsum okkur allar þær þúsundir
keisara, sem hafa barizt og háð
styrjaldir sér til frægðar. Samt er
Asoka, sem réði ríkjum á Indlandi
mörgum öldum fyrir Krist, eini
keisarinn á listanum — og hann
er ekki þar vegna hernaðarsigra
sinna, heldur sökum þess, að hann
hætti hernaði af fúsum vilja og
helgaði sig velferð þegna sinna.
Hugsum okkur alla þá, sem hafa
keppt eftir auðæfum. Þó er engin
milljónamæringur á listanum, nema
Asoka, en hann er ekki þar vegna
auðæfa sinna.
Hver sat á keisarastóli í Róma-
borg, þegar Jesús frá Nazaret var
krossfestur? Hver réði ríkjum í
Persíu, þegar Aristoteles var uppi?
Hver var konungur á Englandi,
þegar Roger Bacon lagði grund-
völlinn að vísindarannsóknum nú-
tímans?
Þegar sagnfræðingurinn leitar
einhvers varanlegs, einhvers, sem
hefur þolað tímans tönn, þá finnur
hann boðskap kennimannsins,
draum vísindamannsins og sýn spá-
mannsins. „Þessir sex menn ollu
tímamótum í mannkynssögunni,"
sagði sagnfræðingurinn. „Mannleg
hugsun varð frjálsari og skýrari af
því að þeir lifðu og störfuðu á þess-
ari jörð. Þeir kröfðust lítils, en létu
eftir sig mikla arfleifð. Þeim var
ekki gefið, heldur gáfu þeir.“
Emerson segir í einni ritgerð
sinni eitthvað á þessa leið: „Flestir