Úrval - 01.02.1968, Qupperneq 22
20
ÚRVAL
mikið fer í súginn, mun halda áfram
unz nýjar aðferðir gera það þýð-
ingarlaust, og það sem meira má
sín: að það hættir að borga sig.
Skjaldbökur, sem hafa má Al
manneldis, eru til í öllum höfum
jarðarinnar. Það er ástæða til að
líta til tilraunanna sem nú er ver-
ið að gera við Hortuguero og Neðri-
Matecumbe með bjartsýni, og megi
þær verða upphaf stærri tíðinda
víða um heim, ef það mætti verða
til þess að stuðla að því að bægt
verði frá þeim voða, sem yfir vofir:
hungursneyð í flestum löndum þeg-
ar færist nær aldamótum.
Leikarinn Leslie Howard sór og sár við lagði, að eftirfarandi at-
burður hafi eitt sinn gerzt í leikhúsin einu í Lundúnum, þegar hann
var aö hefja leikferil sinn. Það var tiltölulega óþekktur leikflokkur,
sem rak leikhús þetta, og var flokkurinn með mjög mörg leikrit i
takinu í einu, þannig að það var sýnt nýtt leikrit kvöld eftir kvöld
og stundum jafnvel tvö leikrit sama daginn, þ. e. eitt á síðdegissýn-
ingu og annað á kvöldsýningu. Þetta ruglaði leikarana auðvitað
geysilega.
Á einni síðdegissýningu gleymdi Howard, hvað hann átti að segja
næst og flýtti sér á bak við til þess að ná í leikstjórann. „Fljótt,"
hvíslaði leikarinn mjög æstur, „hvað á ég að segja næst?“
..Fljótt," hvíslaði leikst.jórinn þá hálfu æstari, „í hvaða leikriti er
það?“
Hugsaðu þér bara,“ sagði montni þungavigtarhnefaleikamaðurinn,
„þúsundir manna munu horfa á keppni mína í sjónvarpinu í kvöld."
„Já,“ svaraði framkvæmdarstjóri keppninnar, „og þeir munu vita
um úrslitin að minnsta kosti 10 sekúndum á undan þér.“
Siðmenningin er alltaf í hættu, þegar þeir, sem hafa Lært að hlýða,
öðlast réttinn til þess að skipa fyrir.
Brezki kirkjugesturinn vili heldur strangan og siðvandan prest,
vegna þess að hann álítur, að nágrannarnir hafi ekki nema gott af
nokkrum sannleikskornum.
Bernard Shaw.