Úrval - 01.02.1968, Page 61

Úrval - 01.02.1968, Page 61
STJÖRNUSJÁIN MIKLA Á PALÓMARFJALLI 59 hvílzt eftir áreynslu næturinnar. Það er haldið áfram að ljósmynda eftir vandlega hugsaðri áætlun, hverja nótt meðan tungl er ekki á lofti. Þegar stjörnufræðingurinn hef- ur lokið mánaðaráætlun sinni, býr hann sig til heimferðar, og bíður hans þá skemmtilegt verk, líklega hið skemmtilegasta í öllu starfi hans. Dögum og vikum saman kann- ar hann ljósmyndir sínar með þar til gerðum smásjám. Hann gerir samanburð á myndum sínum, áætl- ar svertustigið, kannar stærð og lögun deplanna o.s.frv. Hann hefur meira en nóg að starfa vikuna fyr- ir og eftir tunglfyllingu. En á meðan taka aðrir stj örnufræðingar við á Palomarfjalli og nota sjónaukann í sambandi við hina stóru litrófs- mæla, og truflar tunglskinið ekki það starf. Það sem menn vænta sér af starf- inu með hinum mikla sjónauka, er ekki svo mjög að margfalda stækk- unina á því sem myndað er. Að því er það snertir er henni haldið í hófi eða stækkað aðeins nokkur hundruð sinnum, og það er ekki oft sem hún er höfð þúsundföld eða meir. Titringur loftlaganna, sem allt- af er einhver, veldur því ásamt eðli ljóssins, að engin leið er að stækka margþúsundfalt. Því stærri sem sjónaukinn verður, því betur grein- ir hann sundur einstök atriði mynd- arinnar og sést þá margt betur en áður. Yfirburðir stóra sjónaukans eru nú einmitt hæfileikinn til þess að safna saman daufu ljósi í brenni- depli, og hefur þetta mesta þýð- ingu í sambandi við hinar mestu víðáttur alheimsgeimsins. Ljós frá ósegjanlega fjarlægum vetrarbraut- um, sem farið hefur um geyminn um þúsundir áramilljóna, hefur náðst á mynd með þessu tæki. Sjónarsvið Hale-sjónaukans er hinsvegar svo takmarkað, að það nær ekki yfir stærra himinsvæði en það sem tíeyringur skyggir á fyrir auganu, þegar honum er hald- ið uppi í útréttri hendi. Ef ljós- mynda skyldi allt himinsvæðið eins og það blasir við okkur með þessum sjónauka, þá yrði að taka meir en fimm hundruð þúsund myndir, og myndi það verk taka þúsundir ára. Hefði þetta torveldað mjög það gagn sem af honum mátti hafa, ef ekki hefði viljað svo vel til að nokkurn veginn samtímis smíði Hale-sjónaukans var gerð uppfinn- ing sem gerði það kleift að smíða hinn fræga Schmitdt-ljósmynda- sjónauka. Með honum eru teknar ágætlega skýrar myndir af stórum himinsvæðum í einu, og á þeim myndum geta þeir leitað uppi þá staði, sem þeir vilja helzt rannsaka með stóra sjónaukanum. Þessi tvö tæki bæta því hvort annað upp á heppilegasta hátt. Fyrir nokkrum árum var ljós- myndað með Schmidt-sjónaukan- um allt það himinsvæði, sem sézt frá breiddarstigi Palomarfjalls. Voru teknar samtals 1872 myndir og tók hver yfir 7x7 mælistiga him- insvæði, og var hvert svæði tví- myndað, og önnur myndin tekin með bláljósnæmri plötu en hin með rauðljósnæmri. Síðan voru gerðar eftirprentanir allra myndanna í samfelldri himinkortaröð og gefn- ar út í geysistórri bók sem bar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.