Úrval - 01.02.1968, Page 81

Úrval - 01.02.1968, Page 81
PARADÍSARMISSIR VERKALÝÐSINS 79 bankamálum og utanríkisviðskipt- um. En þetta „blandaða efnahagskerfi“ tók samt að blómgast vegna áhrifa „NEP“. Búðir, fullar af vörum, spruttu upp sem gorkúlur við hverj a borgargötu. Framleiðsla landbúnað- arafurða óx nú svo mjög, að hún fór fram úr öllu því, sem áður hafði þekkzt í sögu Rússlands. Árið 1928 var svo komið, að svipað ástand ríkti í efnahagsmálum og fyrir stríð. En þá var Lenin dauður, Trotsky hafði verið rekinn í útlegð, og Stalín var orðinn einvaldur alls Rússlands. Stalin kaus að hinda endi á „NEP“, og nú var hvarvetna tekin upp ríkiseinokun. Síðan birti hann 5 ára áætlunina (1928—1932) um geysilega iðnvæðingu og samyrkju- búskap í landbúnaði. Og enn á ný var þjóðin rekin út í alveg ótrú- lega eymd. Nú hófst þj áningatíma- bil að nýju. Engin önnur efnahagsleg fram- kvæmd í gervallri sögunni hefur verið auglýst eins ofboðslega, gyllt og ranglega metin eins og fyrsta fimm ára áætlun Stalíns. í sinni upprunalegu mynd tók áætlunin til sérhvers þáttar í lífi þjóðarinnar. Samkvæmt henni var lofað mikl- um framförum í framleiðslu neyzlu- varnings, matvæla og húsnæðis. Á- ætlunarstofnunin „Gosplan" gaf út ýtarlegar lýsingar á væntanlegum lífskjarabótum. Kaupmáttur sovézks gjaldeyris átti að vaxa um 20%, raunveruleg laun um 66%, og fram- færslukostnaðurinn átti að lækka um 14%. Hvað varð um þessi loforð? Ræða, sem Stalín hélt og birt var opin- berlega í júlí árið 1931, var í heild hræðileg ákæra. Hann kvartaði yfir því, að í flestum fyrirtækjum yfir- gæfu verkamenn störf sín til þess „að leita gæfunnar“ annars staðar. Margar framleiðsluáætlanir, sem var álitið, að staðizt hefðu eða farið hefði verið fram úr, voru enn aðeins til „á pappírnum" samkvæmt yfirlýsingu hans. Slík var sú mynd, sem dregin var upp, þegar eftir voru aðeins 18 mánuðir af árunum fimm, sem áætlunin tók til. Og samt lýsti Stalín yfir því í janúar 1933, að framleiðslan hefði numið 93.7% af magni því, sem áætlunin gerði ráð fyrir. I rauninni tókst að framkvæma margt í áætlun þessari. Og jafnvel þar var langt því frá, að uppruna- legu marki hefði verið náð. Reist- ur var fjöldi nýrra verksmiðja og risavaxinna iðjuvera. Nú voru olíu- leiðslur orðnar tvöfaldar að lengd miðað við árið 1928, og nú hafði risið upp net aflstöðva, sem fram- leiddu ferfalda þá orku, sem fram- leidd hafði verið í Rússlandi fyrir stríð. En myndin varð ömurlegri, þeg- ar litið var á gæði framleiðslunnar. Lagðar höfðu verið nýjar járnbraut- ar línur, en mesta ringulreið ríkti samt í flutningakerfinu, og mynd- uðust stöðugt hnútar, er virtust óleysanlegir. Hvað alls konar bygg- ingarstarfsemi snerti, varð að reikna með 50% í annan kostnað en efni og vinnulaun, þ. e. yfirstjórn og ýmsan annan slíkan reksturs- kostnað. Eyðilegging hráefna fór fram úr öllu því sem skapendur á- ætlunarinnar höfðu gert ráð fyrir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.