Úrval - 01.02.1968, Qupperneq 87
PARADÍSARMISSIR VERKALÝÐSINS
85
fyrsta flokks vöru, heldur fremur
„leðju, ís, snjó og óþreskta stöngla",
svo að viðhöfð séu orð Khrushchevs.
Árið 1961 bar Khrushchev fram
þá ásökun á hendur íbúum Úkra-
ínu, en þaðan er hann einmitt upp-
runninn, að mikið sé um þjófnaði
í landbúnaðinum, og voru orð hans
ekki sérstaklega mild, heldur hljóð-
uðu þau þannig: „Helmingi maís
þess, sem ræktaður er, er stolið þar
sem hann stendur ósleginn á ökr-
unum“. Flokksembættismenn hafa
orðið að vopna „framkvæmdasveit-
ir“ í mörgum þorpum til þess að
verja akrana jafnt að degi sem
nóttu, og víða er leitað á landbiin-
aðarverkamönnunum, þegar þeir
fara heim til sín af ökrunum á
kvöldin.
Sömu mistökin hafa endurtekið
sig í landbúnaðinum um gervallan
hinn kommúniska heim, í Austur-
Þýzkalandi, Tékkóslóvakíu, Ung-
verjaiandi og Kína. Áætlanirnar
hafa brugðizt. (í þeim tveim lönd-
um, þar sem bændunum var leyft
að yfirgefa samyrkjubúin, þ.e. í
Júgóslavíu og Póllandi, má segja,
að það hafi næstum verið um alls-
herjar brottför að ræða, og land-
búnaðarframleiðslan jókst sam-
stundis). En furðulegustu andstæð-
urnar getur að líta í Rússlandi
sjálfu. Það má segja, að þar sé um
eins konar rannsóknarstofutilraun
að ræða, þar sem prófaður er kraft-
ur og orka einkareksturs í land-
búnaði annars vegar og samyrkju-
búskap hins vegar.
Stalín neyddist til þess að láta
undan hvað eitt atriði snerti: Hann
leyfði bændunum á samyrkjubú-
unum að eiga eina kú og nokkrar
aðrar skepnur og veitti þeim rétt
til þess að rækta smáskika nálægt
heimilum sínum til eigin þarfa (%
úr ekru að meðaltali), enn fremur
að selja afurðirnar, sem þannig
fengust, á frjálsum markaði. Þetta
var aðeins hugsað sem bráðabirgða-
úrbót til þess að blíðka bændurna
ofurlítið. En við þessa breytingu
jókst landbúnaðarframleiðslan svo
stórkostlega, að þessu fyrirkomu-
lagi hefur verið haldið áfram æ
síðan.
Þessir einkaskikar, sem nema að-
eins 3% af öllu akurlendi Sovét-
ríkjanna, gefa af sér furðu mikið,
og er þar stuðzt við tölur þær, sem
stjórnin sjálf hefur birt. Þetta eru
tölurnar fyrir 1966: 30% af allri
brúttóuppskeru Sovétríkjanna
annarri en korni, 60% allrar kar-
töfluuppskerunnar, 40% grænmet-
isuppskerunnar og mjólkurfram-
leiðslunnar og 68% kjötframleiðsl-
unnar.
En samt er samyrkjubúskapur-
inn enn þá heilagt fyrirbæri í áætl-
anagerð Sovétstjórnarinnar, og
skortur á landbúnaðarvörum og
vandræði í landbúnaðinum virðist
vera orðið varanlegt fyrirbrigði.
Eina mögulega lausnin væri sú að
hefja aftur einhvers konar einka-
rekstur í stórum stíl í landbúnað-
inum. En leiðtogarnir þora ekki að
leyfa slíkt. Þeir vita, að einræðis-
kennt stjórnmálalíf og iðnaður
rekinn á einræðisgrundvelli fengi
ekki staðizt við hlið frjáls land-
búnaðar.