Úrval - 01.02.1968, Blaðsíða 106

Úrval - 01.02.1968, Blaðsíða 106
104 ÚRVAL er verið að endurbæta. það eru til dæmis, lykkjurnar, spíralarnir og hringirnir, sem nú er farið að búa til úr plasti og reynast miklu þægilegri, en meðan þessi tæki voru búin til úr málmi. Það er erfitt fyr- ir konur, sem ekki hafa átt börn að hemja þessi tæki á réttum stað, en talið er að þau hæfi 75% þeirra kvenna, sem nota slík tæki. Þeim fylgir sá kostur, að eftir að þeim hefur verið komið fyrir þarf ekki meira um málið að hugsa. Þrátt fyrir það er nauðsynlegt að fylgj- ast með, hvort tækin valda ein- hverjum ertingi eða, bólgum og einnig að þau sitji rétt. Það geta alltaf fylgt einhverjir annmarkar, jafnvel þeim getnaðar- vörnum, sem fullkomnastar eru taldar, þess vegna vilja læknar ó- gjarnan að fólk skipti um, ef því hefur reynzt einhver vörn vel. Leg- hringurinn, gúmmíverja karlmann- anna og sæðisdrepandi froða eru gamlar og þrautreyndar aðferðir við getnaðarvarnir og notaðar enn þann dag í dag af fjölda fólks. Bæði gúmmíverjur karla og froðuna er hægt að fá án lælcnis lyfseðils. Ein sú aðferðin, sem lengi hefur verið notuð en þykir ekki örugg, er sú að fylgjast með þeim dögum, sero egglos fer fram og telja frjósemis dagana frá þeim tíma. Aðferðin er ekki örugg og verður aldrei örugg, vegna þess, hvað lítið þarf til að tímalengd breytist milli blæðinga. NÝJUSTU RANNSÓKNIR. Vísindamenn halda ákaft áfram rannsóknum og leit að getnaðar- vörnum, sem séu þægilegri í notk- un, en þær sem enn eru þekktar og jafnframt ódýrari og auðveldara að framleiða mikið magn af þeim. Taflan, sem tekin er daginn eftir, hefur þegar reynzt árangursrík, og verið reynd á 100 konum við Yale háskólann. Þessi tafla er framleidd úr kvenhormónum svo sterkum, að taflan hindrar getnað eftir að frjóvgun hefur farið fram. Lyf, sem gefið er inn með sprautu, á þriggja mánaða fresti hefur reynzt mjög vel, en tilraunir eru gerðar með það við Kaliforníu háskólann í Los Angeles. Þessi getnaðarvörn er helzt fyrir þær konur, sem hafa þegar átt öll þau börn, sem þær ætla sér að eiga, því að það tekur 6 til 14 mánuði að konan verði frjó aftur, eftir að hafa fengið þessa inngjöf. Annað lyf er þegar fundið og ei það gefið á 28 daga fresti. Einnig er til tafla, sem tekin er einu sinni í mánuði. Tilraunir eru enn gerðar með töflu, sem hindri getnað um margra ára skeið, jafnvel áratugi. Þessi tafla er látinn undir húðina og þar á hún að framleiða hormóna, sem hindra getnað, og væri þá ekki gert, fyrr en konan hefði átt það af börnum, sem hún kysi sjálf að eiga. Annars er hægt að fjarlæga töfiuna og getur konan þá frjóvgast aftur. Vísindamenn glíma mjög við að finna upp hormón, sem geri allar konur ófrjóar, en um leið annar hormón, sem gæti gert þær frjóar, hvenær, sem þær óskuðu þess. Þá væri dæminu alveg snúið við.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.