Úrval - 01.02.1968, Page 108

Úrval - 01.02.1968, Page 108
106 ÚRVAL fyrir smáatriðum. Hann gæddi allar sögupersónur sínar einhverjum skammti af raunveruleika. í Robin- son Kruso tókst honum að komast inn úr yfirborðinu og leggja hverri sögupersónu eitthvað trúlegt í munn. Alexander Pope hefur skrif- að: „Það er eitthvað gott í öllu, sem hann hefur skrifað." Defoe dó öreigi, enda þótt mikil auðævi færu um hendur hans. í augum flestra lesenda, hvort, sem þeir eru ungir eða gamlir, má segja, að hin raunverulega saga byrji á þeirri stundu, sem Robin- son, sem einn komst lífs af úr skip- broti, klifrar í ofboði á land á eyju einni, sem verður síðan heimur hans um tuttugu og átta ára skeið. Upp frá þeirri stundu deilir lesand- inn öllum áhyggjum með honum, ævintýrum hans og æsandi augna- blikum, þegar hann er að bjarga einu og öðru af þeim miklu verð- mætum, sem í flakinu voru. Les- andinn deilir einnig með honum tilfinningum hans og innstu hugs- unum, ótta, vonum, sálarstríði, ör- væntingu og þrotlausri baráttu hans við einmanaleikann og náttúruöfl- in, og sigrum hans á öllum erfið- leikum og hættum .... og að lok- um fylgir lesandinn honum til strandar þegar hann bjargast. Útlitið er ekki bjart, þegar hann stígur á land. Robinson hefur ekk- ert nema hnífkuta, tóbakspípu og lítið eitt af tóbaki. Hann syndir út að flakinu og tekur að birgja sig upp af öllu því, sem hann taldi að kæmi sér að notum. Hann byggir sér fleka og birgir hann fyrst af matvælum — brauði, hrísgrjónum, hollenzkum osti, geitakjöti og korni. Hann hirðir einnig dálítið af víni úr birgðum skipstjórans, síðan safn- ar hann saman fötum og verkfær- um, og ályktar réttilega að verk- færakista smiðsins sé sér meira virði en gull. Þegar hann hefur gert þetta tekur hann til að birgja sig upp af skotfærum. Þegar hann kemur til lands, eftir að hafa starfað að þesu klifrar hann upp á hæð eina til að fá yfirsýn yfir umráðasvæði sitt og sér þá að eyjan er óbyggð. Aðra nótt sína á eyjunni býr hann sér til skýli úr kistum sínum og varningi. Hann fer hverja ferðina af ann- arri til skipsflaksins og bætir sí- fellt við birgðir sínar einu og öðru nýtilegu — nöglum, púðri og skot- um, segldúk, skærum, kortum, köðl- um, járngrindum, hnífum, göfflum, rakhnífum, vírum og mörgu fleiru og var þetta hið herlegasta sam- safn. Næsta viðfangsefni hans er að reisa sér tjald fyrir framan lítinn hellismuna. Hann rekur niður í hálfhring framan við tjaldið tvö- falda röð af oddmjóum staurum, en innan þesarar girðingar rekur hann niður fleiri staura, sem hann sreng- ir víra á. Af mikilli elju ber hann allan sinn kost og varning inn í þetta skýli. Innan þessa „vígis”, finnst honum hann geta gengið til svefns öruggur um líf sitt. Smám saman og af mikilli iðju- semi stækkar hann hellinn og notar uppgröftinn til að hlaða grasflöt fyrir framan hellismunnann. Þegar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.