Úrval - 01.02.1968, Qupperneq 112
110
ÚRVAL
aði á eyju Robinsons, en hinn reyn-
ist vera faðir Frjádags. Robinson
Kruso finnst hann nú aldeilis hafa
eignazt þegna.
Spánski sjómaðurinn og faðir
Frjádags halda af stað aftur til að
reyna að bjarga fleiri föngum úr
höndum villimannanna, en þegar
þeir eru farnir, siglir enskt skip
upp að ströndinni og leggst fyrir
akkerum. Báti er róið í land. Rob-
inson finnst einhvern veginn að ör-
uggara sé að halda sig um stund í
felum, enda kemur það á daginn,
að þarna er ekki allt með felldu.
Átta sjómenn ganga á land og hafa
með sér þrjá fanga. Gæzlumenn-
irnir ganga til skógar en skilja
eftir fangana niðri á ströndinni og
Robison og Frjádagur komast að
raun um, að hér eru fangað-
ir skipstjóri skipsins, fyrsti stýri-
maður og einn farþegi, sem
verið hafði með skipinu.
Robinson Kruso fær þeim öllum
vopn í hendur og þeir drepa fyrir-
liða uppreisnarmannanna og taka
hina höndum. Enn eru þó tuttugu
og sex uppreisnarmenn um borð í
skipinu. Þegar þeir koma fleiri frá
borði til að rannsaka af hverju fé-
lagar þeirra komi ekki um borð
aftur, lokkar Robinson Kruso þá á
brott frá ströndinni, og þeir dreifast
um skóginn og eru yfirbugaðir og
Robinson Kruso reisir segl og legg-
ur í haf til Englands.
Hann tekur með sér til minja
geitaskinnshúfu sína, regnhlífina,
einn af páfagaukum sínum, og gull-
ið, sem hann fann um borð í spánska
skipinu og kemur það nú í góðar
þarfir. Hann segist hafa haldið á
brott frá eyjunni í desember 1686
og voru þá liðin tuttugu og átta
ár og tveir mánuðir frá því að hann
hafði kraflað sig á land. Að lok-
inni langri ferð nær hann til Eng-
lands ásamt Frjádegi, og Robinson
finnst hann vera orðinn svo ókunn-
ugur í heiminum, að það sé eins og
hann hafi aldrei verið þar.
Það er vafamál, hvort nokkur
bók hefur komið út í margbreytt-
ari eða fleir útgáfum en Robinson
Kruso. í einni eða annarri mynd
hefur þessi bók verið lifandi lestr-
arefni í nærri tvö hundruð og
fimmtíu ár. Það hrífast allir með
penna Defoes, því að sérhver mað-
ur finnur eitthvað af sjálfum sér í
Robinson Kruso, eins og höfundur-
inn fann sjálfan sig í ævintýrum
skozka sjómannsins Alexanders
Selkirk, en á þeim byggði hann
sögu sína.
Enda þótt öll bókinn sé ákaflega
löng, þá veldur hinn einfaldi stíll
Defoes því, að hún er mjög auð-
veld aflestrar. Þessi einfaldi stíll
ásamt áhuga manna fyrir lífi á ó-
byggðri eyju og hinni eilífu bar-
áttu mannsins við náttúruöflin veld-
ur vinsældum Robinsóns Kruso með
ungu fólki.
Með snilldar penna sínum gerir
Defoe Robinson að elskuleg-
um manni, hreinskilnum og glað-
sinna, sem er reiðubúinn til að
brosa að sjálfumsér. Hann er sífellt
starfandi og mætir hverri raun með
nýjum ráðum. Og enda þótt hann
sé að eðlisfari barnalegur og ein-
faldur, brestur hann aldrei kjark,
og jafnvel heimspekilegar hugleið-
ingar hans eru af því tagi, sem