Goðasteinn - 01.03.1970, Page 6

Goðasteinn - 01.03.1970, Page 6
öll helztu trúnaðarstörf í hrepps- og sýslufélagi. Hann var alþing- ismaður, hreppstjóri, hreppsnefndaroddviti, sýslunefndarmaður, safnaðarfulltrúi og um 20 ár formaður fyrir einu stærsta verzlun- arfélagi landsins á þeirri tíð“. Þórður í Hala var tvígiftur. Fyrri kona hans (1869) var Valdís Gunnarsdóttir frá Sandhólaferju. Seinni kona hans (1879) var Kristín Gunnarsdóttir, systir Valdísar. Þær voru af hinni velþekktu Sandhólaferjuætt, sem þekkt var fyrir frábæra snilli í tréskurði og málmsmíði. Afi þeirra, Bjarni Gunnarsson á Sandhólaferju, sem nefndur var glímu-Bjarni, var að sögn ágætur tréskeri, og synir hans, Gunnar og Filippus á Efri-Hömrum í Holtum, lifa enn í verkum sínum, tréskurði, sem er í röð bins bezta á því sviði frá 19. öld. Séra Jón Brynjólfsson í Kálfholti í Holtum (1809-1898) var giftur Þórunni Bjarnadóttur frá Sandhólaferju. Þau voru barn- laus. Séra Jón lét af embætti 1886. Fluttu þau hjón þá að Hala og áttu þar heima til æviloka. Séra Jón var hagmæltur, og hefur geymzt þó nokkuð af vísum hans um heimilisfólk í Hala og ýmis- legt, er á daga dreif. Börn Þórðar og Valdísar voru: Margrét kona Ólafs Ólafssonar búfræðings í Lindarbæ, Þórunn kona Þorsteins Jónssonar í Meiri- tungu og Jónína kona Hannesar Þórðarsonar verzlunarmanns. Börn Þórðar og Kristínar voru: Þórdís kona Bjarna Jónssonar í Meiritungu, Gunnar kaupmaður í Reykjavík og Sigríður kona Ingimundar Jónssonar bónda í Hala, síðar kaupmanns í Kefla- vík. Þórður í Hala dó 1922. Kristín í Hala var blind síðustu 30 ár ævi sinnar. Á dauðastund heyrðist hún segja: „Hvaðan kemur öll þessi blessuð birta?“ og svo virtist hún tala við einhvern vin: „Hefurðu séð hann Þórð minn?“ Það voru hennar síðustu orð. Þórdís í Meiritungu er nú ein á lífi af börnum Þórðar í Hala, fædd 20. okt. 1885. Er ihún ein af fáum til frásagna um heimilið i Hala undir lok 19. aldar, og lýsing hennar á heimilisháttum þar er eigi ómerkur þáttur þjóðhátta frá þeim tíma, er hvert heimili var ríki út af fyrir sig, ef svo mætti segja, sjálfu sér nóg um flesta hluti. 4 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.