Goðasteinn - 01.03.1970, Síða 12
Allur fatnaður var heimasaumaður. Hvít strigaföt úr mjúkum,
þéttum striga voru saumuð á karlmennina fyrir vertíðina. Það
voru hlý og góð föt, vaðmálsskyrta, ullarpeysa og strigajakki. Oft
var staðið við slátt í strigajakka en líka oft á skyrtunni, ef hlýtt
var í veðri.
Frá okkur fóru fjórir og fimm karlmenn í ver á hverri vertíð,
og pabbi var formaður við sandinn. Heima voru unnar lóðir og
net. Öll silunganet og allar selanætur voru riðin heima; lóðirnar
voru úr snærum.
Tóvinna var aldrei unnin á sunnudögum. Þá máttu stúlkurnar
vinna í eigin þágu að vild.
Leifar af gömlum fatnaði og gömlum klæðaburði héldust fram
á mína daga. I Háfi bjó Margrét systir Þorbjarnar á Blcsastöðum
í Flóa með manni sínum, Þorgeiri Sigurðssyni, myndarkona í sjón
og raun. Við altarisgöngur í Háfskirkju bar hún gamla skautið,
sem þá var farið að kalla skuplu í óvirðingarskyni. Á öðrum
messudögum klæddist hún svartri hempu með flosuðum borðum.
Jóhanna móðursystir borðaði spónamat úr aski með fallega
gröfnu loki, og nokkrir fleiri askar voru til á heimilinu. Hver
maður átti sinn spón. ísak Sigurðsson í Miðkoti í Landeyjum
smíðaði tólf spæni fyrir mömmu, allt nautshyrninga. Hann smíð-
aði líka tvo litla spæni handa mér og Sigríði systur minni. Allir
voru spænirnir með rósaflúri á sköftunum.
Alltaf var lýsislampi í eldhúsi og fjósi. Á sumrin var tínd fífa
í kveiki í tvo, þrjá smápoka. Hafði eldhússtúlkan það starf að
tæja fífuna og snúa hana í kveiki. Lýsislamparnir voru steyptir
úr kopar. Sellýsi var notað á lampana.
Tólgarkerti voru steypt í móti, þegar fór að hausta að. Fyrir
jólin voru steypt strokkkerti fyrir heimilið og kirkjuna, en faðir
minn var kirkjuhaldari. Kóngakerti voru steypt á altarið fyrir
jólamessuna. Raunar var ekki alltaf messað í Háfi um jóladagana,
en þá féll messa venjulega á nýársdag. Það var gömul venja að
gefa börnunum, sem komu til hátíðamessunnar um jól eða nýár,
kertastubbana, sem eftir voru í stjökum og ljósahjálmi, þegar
messan var úti. Faðir minn afhenti börnunum þann glaðning.
Hver heimilismaður fékk sitt jólakerti á aðfangadagskvöld. Ekk-
10
Goðasteirm