Goðasteinn - 01.03.1970, Side 29
cinnig kindavon, þcgar kominn er snjór. Ég kom svo til félaga
minna í Hvanngili, og höfðum við hvergi orðið kinda varir.
Nú fórum við í Álftaskarð, þar sem hesturinn og lömbin voru,
og fórum þaðan um kl. 2 e.h. Þá var gott veður en snjórinn fylli-
lega í hné. Urðum við að bera lömbin öðru hvoru. Þegar við
komum vestur í Sátubotna, innst og austast í Sátu, fundum við
þrjú lömb til viðbótar. Voru þau frísk fyrst en gugnuðu fljótlega,
svo við urðum einnig að fara að bera þau til skiptis. Áfram héld-
um við vestur á miðjan sandinn fyrir austan Launfit. Er þar
gcysistór hvammur með talsverðu grasi, vestur við Markarfljót.
Varð Óskar að fara þar til suðvesturs til að reyna að ná í lömbin,
sem ég sá í Fljótsgilinu í innúrleið. Hann var yngstur okkar og
ciltölulega stutt frá því hann hafði verið skorinn upp við kvið-
sliti, svo við vildum hlífa honum við að bera lömbin.
Undir kvöld komum við Guðmundur vestur að Fljótinu á Laun-
fit og bárum lömbin þar yfir, sem gekk vel, því vatn var lítið í
farveginum. Vcstan við Fljótið þarna er mjög hár sandhryggur og
framan í honum talsvert hár hamar. I hamrinum er mannhæðahá
skora, lokuð í norðurendann. Einhvern tíma hefur verið gert yfir
skoruna og hurð sett fyrir framendann. Hryggurinn er kallaður
Standur en skoran „kofinn í Standinum". Þar geta legið tveir
menn og gerðu stundum í síðustu leit, en þar var vont að vera.
Við settum lömbin í þenna kofa cn bundum hestinn við stein.
Fórum við Guðmundur svo norðvestur með Fljótinu, í svokallað
Hvannstóð. Er þar hamrabelti sunnan við Fljótið og talsverð
grasbrekka neðan við hamarinn. Oft eru þar kindur, þegar kominn
er snjór, en enga fundum við. í bakaleiðinni fór að frjósa, og kom
fljótlega renningsbylur.
Þegar við komum þar að, sem hesturinn var og lömbin, var
Óskar ókominn. Var þá skollið á myrkur og farið að drífa í
þokkabót. Við Guðmundur fórum þegar suður með Fljótinu all-
langan veg, unz við mættum Óskari. Var hann lambalaus sem von
var, því þar sem lömbin voru, er stallur við stall, og geta kindur
komizt þar sitt á hvað, og þarf venjulega tvo menn til að ná
þaðan kindum. Við fórum svo í áfangastað, en þá var kominn
mjög vondur bylur, sem stóð þá nótt og næsta dag og næstu nótt
Goðasteinn
27