Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Side 11
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 1998 9
þann atburð og björgun Þórðar
hefur svo mikið verið skrifað á
öðrum vettvangi að það verður
ekki hér um fjallað. Aðeins þess
minnst að þá var sá frægi sjósókn-
ari Sigurður Kristjónsson frá Bug
að hefja sinn mikla og fræga skips-
stjórnarferil. Það var því skarð
fyrir skildi er hann flutti síðar um
áramótin 1957-58 út á Hellissand
og tók þar við bát, en á sama tíma
flutti Leifur Jónsson sem var mik-
ill aflaskipstjóri í Óiafsvík einnig
út á Sand. Fannst mér mikil eft-
irsjá í þeim báðum fyrir plássið.
Um haustið 1954 var enn mikil
síldveiði í reknet og síldin söltuð,
fryst og brædd en þá hafði hrað-
frystihús Ólafsvíkur komið sér
upp síldar og fiskimélsverksmiðju.
Tveir nýir bátar komu til Ólafs-
víkur 37 og 39 tonn að stærð.
Vetrarvertíðin 1955 var mikið
ævintýri og allt árið mikið at-
hafnaár í sögu Ólafsvíkur. I byrj-
un febrúarmánaðar gerði miklar
stillur sem stóðu í 3 vikur. Fisk-
afli var meiri en nokkru sinni
hafði þekkst á línu á þessum slóð-
um. Dag eftir dag komu bátarnir
drekkhlaðnir að landi með 15-28
tonn í róðri og unnið var í fisk-
móttökum mestan hluta sólar-
hringsins og þrátt fyrir að 170 að-
komumenn væru komnir á stað-
inn hafðist varla undan að vinna
fiskinn. Er törninni lauk, lögðust
einstaka aðilar í rúmið vegna of-
þreytu og man ég eftir einum sem
lá í tvær vikur - enda var hann
einn tekjuhæsti maðurinn af land-
verkafólkinu. I iok febrúar voru
Ólafsvíkurbátar
aflahæstubátar yfir
allt landið það sem
af var vertíð.
ólafsvíkurbíó
Jafnvel vin-
sælasta afþreying
heimamanna bíó-
sýningar í Sam-
komuhúsinu voru
aflagðar vikum
saman þar sem
enginn hafði tíma
til að sjá bíómynd-
ir. - Ólafsvíkur-
bíó var annars sér-
stakur hluti af
menningu staðar-
ins. Það var undir stjórn Ottós
Árnasonar, en sýningarmenn þeir
Þórður Þórðarson og Eyjólfur
Magnússon. Aðeins ein sýningar-
vél var í húsinu, en
hver bíómynd 5 spól-
ur. Voru því að
minnsta kosti 4 hlé í
hverri sýningu og
voru þá öll ljós kveikt
í salnum og menn
spjölluðu saman, gáfu
hver öðrum í nefið og
ræddu um framvindu
myndarinnar. Var
Halldór heitinn Jóns-
son, útgerðarmaður
mjög virkur og hávær
við útskýringar á
myndunum og spáði
ótæpilega í úrslit bar-
daga sem háðir voru í
kúrekamyndunum og öðrum bar-
dagamyndum en oft greindi
menn á um slíka spádóma. Ann-
ars var það þverskurður af Ólsur-
um og aðkomumönnum er sóttu
bíóið og stórkostlega gaman að
sitja í þeim hópi og fylgjast með
hvernig fólkið naut samverunnar
við þessar aðstæður. Þarna var svo
frjálslynt og skemmtilegt and-
rúmsloft að bíóstjórinn hikaði
ekki við að stöðva sýningarvélarn-
ar og hafa auka-
hlé ef sérstakar
fregnir höfðu
borist í 10 frétt-
um kvöldsins.
Man ég sérstak-
lega eftir því, að
eitt sinn er Frið-
rik Ólafsson
stórmeistari í
skák var í harðri
skákkeppni er-
lendis að klukk-
an rúmlega 10 á
bíósýningu
stöðvaðist
skyndilega sýn-
ingarvélin, ljós-
in í salnum voru
kveikt og Ottó stakk höfðinu út
um sýningar gatið og kallaði yfir
salinnf’Friðrik vann”, síðan voru
ljósin slökkt aftur og sýningin
hófst að nýju. Varðandi þessar
sérstöku bíósýningar í Ólafsvík vil
ég að lokum segja, að kona ein
sem fór í brúðkaupsferð með
manni sínum um mest allt Island
á þessum árum, sagði mér að
skemmtilegasta atvikið í ferðinni
hefði verið að fara á bíósýningu í
Ólafsvík!
En í þessu samkomu og bíóhúsi
var að sjálfsögðu dansað og
tuskast á laugardagskvöldum eins
og gengur. Var því ráðinn lög-
reglumaður til starfa í Ólafsvík í
fyrsta sinn á vertíðinni 1956 og
var það sómamaðurinn Arnþór
Ingólfsson, er síðar varð yfirlög-
regluþjónn í Reykjavíkurlögregl-
unni. Hann hóf þarna sinn langa
og farsæla starfsferil og náði sér í
konuefni í Kaupfélagi Ólafsvíkur í
leiðinni.
Hrönn SH 149, fyrsti báturinn í Ólafsvík með hverfirúðu.
RARIK
tífrzvtcU
Skrifstofa Ólafsvík, sími: 436 1265
Bilanatilkynningar: 438 1624