Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Qupperneq 15

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Qupperneq 15
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 1998 13 það var ekki fyrr en 10. desember sama ár sem hann réði sig fram- kvæmdastjóra hraðfrystihússins. Hann dró enga dul á það að hon- um litist ekki sérlega vel á verk- efnið og hafði í upphafi ekki aðrar fyrirætlanir en að starfa við þetta í eitt ár. Stjórnin virðist hafa borið til hans fullkomið traust og gefið honum frjálsar hendur um endur- reisn fyrirtækisins. Sýndist fara lít- ið fyrir afskiptum hennar af verk- um hans. Raunin varð hinsvegar sú að Rögnvaldur var fram- kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hellissands til dauðadags, 24. nóvember 1994 eða í 44'ár, síð- ustu árin ásamt syni sínum Olafi Rögnvaldssyni. Það sem dregið hefur Rögnvald til þessa erfiða verkefnis hefur lík- lega elcki síst verið það að hér var hann kominn nærri sínum heima- slóðunt. Hann var fæddur á Brimilsvöllum í Fróðárhreppi þann 18. júlí árið 1917 og voru foreldrar hans Ólafur Bjarnason bóndi þar og umboðsmaður ríkis- jarða og kona hans Kristólína Kristjánsdóttir. A Brimilsvöllum hafði hann alist upp. Hann gekk ungur í Reykholtsskóla, hóf eftir það störf við hraðfrystiiðnaðinn og var starfandi í Innri-Njarðvík þegar hann fékk þessi tilmæli að taka að sér Hraðfrystihús Hell- issands. Eftir að hann kom á Hellissand gekk hann að eiga Jónu Unni Ágústsdóttur frá Mávahlíð. Jóna átti fyrir dóttur- ina Þuríði en saman eignuðust þau soninn Ólaf sem starfað hefur við fyrirtækið frá því á unglings- aldri og verið framkvæmdastjóri þess í seinni tíð. Þau hófu búskap í húsinu Vinaminni sem stóð vest- ur undir Keflavíkurvörinni, þar sem nú mætast Keflavíkurgata og Naustabúð en byggðu sér síðar íbúðarhús að Naustabúð 9 og bjuggu þar meðan Rögnvaldur lifði. Húsið Vinaminni varð eldi að bráð árið 1982 og sjást engin merki þess lengur en hóllinn sem það stóð á hefur verið jafnaður út. Eins og áður er getið voru tím- arnir að ýmsu leyti að breytast í þorpinu og aðstæður allar og blik- ur voru á lofti um að verkefnið mætti takast þegar Rögnvaldur kom hingað vestur. Hafin var bygging landshafnarinnar í Rifi. Von var á vegasambandi fyrir Jök- ul og vatnsveita hafði verið lögð í þorpið niður að brúnni á Hösk- uldsá þótt dreifikerfi væri enn ekki komið á. Rafmagn fékk þorpið frá vélum hraðfrystihúss- ins. Rögnvaldur kom fljótlega auga á að verkefnið var ekki óyfir- stíganlegt og eftir að hafa komið hraðfrystihúsinu í gang að nýju, m.a. með því að gera upp vélar þess, fór hann að huga að annarri verkun, svo sem saltfisk- verkun og skreiðarframleiðslu, á árunum í kringum 1960. Mark- aður var fyrir saltfisk á Spáni og í Portúgal og varð Hraðfrystihús Hellissands með stærstu fram- Sigurður Sandhólm Magnússon. leiðsluaðilum í landinu um skeið en markaður fyrir skreiðina var í Nígeríu. Hóf Rögnvaldur að bæta við þær byggingar sem fyrir voru til að lagfæra aðstöðuna og styrkti hann með því aðstöðu þess á allan hátt. En það sem e.t.v. skipti fljótlega sköpum var það að hann lét árið 1952 reisa beinamjöls- verksmiðju við hraðfrystihúsið sem skilaði fyrirtækinu fljótlega ágætum arði. Bygging beina- mjölsverksmiðja fór eins og bylgja um landið á þessum árum og risu þær víða. I il að tryggja hráefni gerði hann frystihúsið þátttakanda í útgerð og eignaðist það hlut í bátnum Breiðfirðingi SH og síðar gerði hann út bátinn Sæborgu SH á eigin spýtur. Rögnvaldur gerði sér góða grein fyrir mikilvægi þess að fyrirtækinu væri tryggt nægjan- legt hráefni. Hráefnið fékk hann að mestu leyti úr bátum í Krossa- vík framan af en það átti eftir að breytast með tilkomu Rifshafnar. Litlar breytingar urðu á hrað- frystihúsinu sjálfu fyrstu árin en allt þokaðist það þó fram á við og sífellt var hann að breyta og bæta aðstöðuna við frystihúsið. Það er lítill vafi að það var Hellissandi mikið lán að Rögnvaldur Ólafs- son skyldi fást til að taka þetta verkefni að sér. Hann var góðum gáfum gæddur og var einstaklega glöggur á allan rekstur og tölur og minni hans óvenju trútt. Þannig var oft til þess tekið, þótt í gamansemi væri, að fljótlegra væri að spyrja Rögnvald um birgðir og innstæður á reikning- um en að fletta upp í bókum fyr- irtækisins, hvort sem þær væru hand- eða tölvufærðar. Hæfni hans til að meta með skjótum hætti hvað gat verið hagkvæmt, hvað gat borgað sig eða staðið undir sér var með ólíkindum og fyrir bragðið lánaðist honum að gera þetta fyrirtæki sem í rauninni var komið í þrot þegar hann tók við því að einu öflugasta sjávarút- vegsfyrirtæki á Snæfellsnesi. Sigurður “Sandhólm” Magnússon verkstjórií Hallsbæ Það var Rögnvaldi vafalítið mikið lán að fljótlega eftir að hann tók við rekstri hraðfrysti- hússins réðist til hans sem verk- stjóri og matsmaður Sigurður Magnússon sem ævinlega var kall- aður Sigurður Sandhólm. Kom það nafn til af því að hann hafði frá fermingaraldri alist upp á Hellissandi hjá föðurbróður sín- um Jóhannesi Sandhólm og konu hans Kristínu Helgadóttur frá Gíslabæ á Hellnum. Festist við hann Sandhólms nafnið af þeim sökum. Annars var hann fæddur í Stóru-Tungu á Fellsströnd en missti móður sína 6 ára gamall. Ólst hann upp með föður sínum eftir það til fermingaraldurs. Voru þeir feðgar aðallega í Stykk-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.