Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Síða 23

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Síða 23
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 1998 21 ÍSLAND SEM MIÐSTÖÐ MENNTUNAR í ÞÁGU SJÁVARÚTVEGS - HEIMA OG ERLENDIS Eftir Dr. Guðrúnu Pétursdóttur, forstöðumann Sjávarútvegsstofnunar Háskóla íslands. Framtíð íslensks sjávarútvegs ist á góðri menntun allra starfsstétta sem að greininni vinna. Við verðum að nýta auð- lindir sjávar af þekkingu og verkviti allt frá skipulagningu veiða til þess að afurðin er komin til neytandans. Þekking er grund- völlur bættra vinnuhátta og auk- innar hagkvæmni á öllum sviðum. Meistaranám í sjávarútvegsfræðum Síðastliðið vor var brotið blað í sögu sjávarútvegs á Islandi, þegar fyrstu nemendurnir luku meist- aranámi í sjávarútvegsfræðum frá Háskóla Islands. Á undanförnum árum hefur nánast orðið bylting í menntamálum í sjávarútvegi hér á landi. Sjávarútvegsdeild Háskól- ans á Akureyri tók til starfa 1990, og þar með opnuðust Islending- um möguleikar á að afla sér há- skólamenntunar í sjávarútvegs- fræðum hér heima. Það fór vel á því, að þegar fyrsti nemendahóp- urinn útskrifaðist frá Akureyri, stóðu honum, og öðrum áhuga- sömum nemendum, opnar dyr Háskóla Islands til framhalds- náms, sem veitir þeim meistara- gráðu í sjávarútvegsfræðum. Um er að ræða tveggja ára nám við Háskóla Islands, sem að hálfu er fólgið í námskeiðum en að hálfu í rannsóknarverkefni sem nemandinn vinnur undir hand- leiðslu kennara. Námskeiðin eru kennd við ýmsar deildir Háskól- ans: verkfræði, líffræði, hagfræði- viðskiptafræði, félagsfræði og lög- fræði. Ekkert er því til fyrirstöðu að bæta við námskeiðum úr fleiri deildum ef áhugi nemenda spann- ar víðara svið en hér var talið. Þannig geta allar deildir Háskól- ans átt aðild að meistaranáminu, ef þær óska þess. Þessi nýbreytni, að rjúfa múra milli svo margra deilda og hleypa nemendum frjálst þar á milli, hefur mælst mjög vel fyrir og verður eflaust öðrum til eftirbreytni við skipu- lagningu meistaranáms við Há- skólann. Rannsóknarverkefni nemend- anna nema um árs vinnu og geta verið af ýmsu tagi, eftir því á hvaða sviði nemandinn kýs að sér- hæfa sig. Eklcert er því til fyrir- stöðu að verkefnin séu unnin í samvinnu við fyrirtæki í sjávarút- vegi. Hér er því gott tækifæri til að tengja saman Háskólann og fyrirtækin, sem með þessu móti geta fengið vel menntað ungt fólk til að vinna fyrir sig verkefni undir leiðsögn bestu fræðimanna á hverju sviði. Þeir þrír nemendur sem lokið hafa meistaragráðu unnu að rann- sóknarverkefnum á ólíkum svið- um. Einn rannsakaði hagkvæm- ustu leiðir í rekstri sjávarútvegsfyr- irtækja, annar rannsakaði flutning á lifandi flatfiski, og sá þriðji rannsakaði fjarðaeldi þorsks. Það er tvímælalaus styrkur meistaranámsins að það er opið nemendum með mismunandi bakgrunn. Þannig myndast fjöl- breyttur hópur fólks sem hefur góða innsýn í ýmsa hluta samfé- lagsins en hefur bætt við menntun sína sérþekkingu um sjávarútveg. Nú eru 7 nemendur í meistara- náminu sem koma úr ýmsum átt- um: lögfræðingur, sagnfræðingur, kennarar, félagsfræðingur, líffræð- ingur og viðskiptafræðingur. Að- sókn að náminu fer hraðvaxandi og eftirspurn eftir þessum vinu- krafti er mikil. Þeir sem útskrif- aðir eru hafa allir fengið góð störf og sumir sem enn eru í námi hafa þegar verið ráðnir til framsækinna fyrirtækja. Sjávarútvegsskóli Sameinuðu þjóðanna En það er á fleiri sviðum, sem íslendingar bjóða ný tækifæri til menntunar í sjávarútvegi. Sjávar- útvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna tekur inn fyrstu nem- endurna í haust. Það er mikill heiður fyrir Islendinga að hafa verið falið að sjá um þennan skóla á vegum Sameinuðu þjóðanna. Höfuðstöðvar Háskóla Sþ eru í Tokyo í Japan, en deildir skólans eru víðs vegar um heiminn. ís- lendingar hafa relcið Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna í nærri tutt- ugu ár, við mjög góðan orðstír. Það hefur eflaust haft sitt að segja, þegar ákvörðun var tekin um það að fela Islendingum að sjá um ný- stofnaðan Sjávarútvegsskóla Sþ. Þessi skóli er ætlaður fólki frá Þró- unarlöndum sem liggja að sjó og eru að efla sinn sjávarútveg. Á ís- landi munu nemendurnir Tæra um það hvernig nútíma sjávarútvegur er rekinn, auðlindir kannaðar og stofnstærðir reiknaðar, landhelgi sótt og varin, útgerð skipulögð, vinnsla byggð upp, markaða aflað, o.s.frv. Slcóli Sameinuðu þjóð- anna er fyrst og fremst ætlaður starfsfólki úr stjórnsýslu Þróunar- landanna, sem vinna mun við uppbyggingu og skipulagningu sjávarútvegs innan stjórnkerfisins í heimalöndum sínum og munu snúa þangað að hálfs árs námi sínu loknu. Skólavist og ferða- kostnaður eru að fullu greidd fyrir slíka nemendur. Hins vegar er ekkert því til fyrirstöðu að aðrir, til dæmis starfsmenn einkafyrir- tækja, geti sótt um skólavist, en skólinn greiðir ekki ferðakostnað og uppihald þeirra. Bætt samkeppnisstaða Hvers vegna erum við að eyða púðri á útlendinga, er ekki nær að
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.