Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Blaðsíða 35

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Blaðsíða 35
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 1998 33 ruddu brautina fyrir 50 árum urðu að veruleika. Síðari 50 árin áttu þó eftir að marka dýpri spor í átt til stórsu'gari framþróunar, sér þess víða stað nú við aldarafmæli sparisjóðsins. Þrátt fyrir að allt sé nú stærra í sniðum og meira að umfangi er hlutverk Sparisjóðs Ólafsvíkur að mörgu leyti hið sama og fyrir hundrað árum. Sr. Magnús Guðmundsson, sóknarprestur, starfaði sem for- maður ailt til ársins 1963 og reyndist mjög farsæll í öllum sín- um störfum fyrir sparisjóðinn og var Ólafsvíkingum hinn þarfasti maður. Um störf hans að fram- faramálum í Ólafsvík væri eflaust hægt að skrifa sróra bók. Það voru ekki aðeins preststörfin og forysta í sparisjóðnum sem hann vann heilshugar að. Það var jafnt hið smæsta sem hið stærsta sem heillaði þennan stórhuga og fram- sýna mann. Hann fylgdist grannt með öllu sem fram fór og ekki síst að því sem sneri að útgerð og fisk- vinnslu. Störf séra Magnúsar eru merkur þáttur í sögu Ölafsvíkur. Þegar hann lét af störfum eftir 40 ára starf mælti hann með Leó Guðbrandssyni sem eftirmanni sínum en Leó hafði þá nokkur undanfarin ár ver- ið starfsmaður sjóðsins sem íhlaupamaður en eldki með fastan starfstíma því af- greiðslutími spari- sjóðsins var ein- ungis 2-3 tímar 3 daga í viku. Leó Guðbrandsson. stórhýsi við Húsnæðis- Bj„nióWi,on mal Stjómarformaður frá 1983 - 1998 Fljótlega eftir Skálholt og úr því húsnæði í hús séra Magnúsar að Ennisbraut 14. Loks er svo farið í enn eitt leigu- húsnæðið að Hjarðartúni 5, hús Guðjóns Sigurðs- sonar vélsmiðs. I fyrsta eigið húsnæði er svo flutt árið 1969, en það var eins og að framan greinir gamla póst- húsið að Ennisbraut 1. Þar vex hann og dafnar í 15 ár en þá er orðið þröngt um hann og farið að leita eftir heppilegu húsnæði. Laust húsnæði reyndist vera í nýbyggðu Ólafsbraut 19. Var samþykkt ein róma að kaupa þar aðstöðu fyrir sjóðinn og flytur hann þar inn árið 1984. Tilkoma Landsbankans Þegar Landsbankinn nemur land á utanverðu Snæfellsnesi árið 1976 verða miklar sviptingar því samfara í sparisjóðamálunum. Eftir nokkrar vangaveltur ákveður Sparisjóður Hell- issands að hætta starf- semi sinni og yfirtekur Landsbankinn öll þau viðskipti sem spari- sjóðurinn hafði. Svip- uð afstaða virtist vera til staðar í Ólafsvík en þó voru aðilar sem ekki vildu leggja spari- sjóðinn af. Var loks samþykkt með naum- um meirihluta að halda starfseminni áfram. Nú mætti ætla að með tilkomu Lands- að Leó kemur að sjóðnum eða árið 1963, útheimta umsvifin við sjóðinn fullt starf. Þá flytur spari- sjóðurinn loks í eigið húsnæði þegar hann kaupir gamla pósthús- ið að Ennisbraut 1 en alla sína tíð hafði hann verið í leiguhúsnæði. Árið 1920 í tíð séra Guðmundar Einarssonar var flutt í hús Alex- anders Valintínusarsonar, þaðan var flutt í Grundarbraut 18, húsið bankans drægist starfsemi spari- sjóðsins saman sökum þess. Þetta fór þó á annan veg. Einhver sam- dráttur varð fyrstu árin en svo fór að það virtist sem full þörf væri á tveimur lánastofnunum. Fram að þeim tíma hafði Sparisjóður Ólafsvíkur haft lítil viðskipti við t.d. útgerðaraðila og varð lítil breyting þar á, sparisjóðurinn hélt fyrst og fremst áfram að sinna þeim þörfum viðskiptamanna sem hann hafði áður gert. Á afmælis- árinu 1992 hafa þessar tvær lána- stofnanir starfað hlið við hlið í 15 ár, ætíð á vinsamleg- um grundvelli. Litið um öxl Eins og gefur að skilja hafa skipst á skin og skúrir í rekstri Sparisjóðs Ólafsvíkur á þeim 100 árum sem hann hefur starfað. Saga sjóðsins er samofin sögu atvinnulífs og byggðar í Ólafsvík á þessari öld og hefur hann því rétt eins og byggðarlagið sjálft gengið í gegnum ýmsar þrengingar og lifað mögur ár. En sparisjóðurinn hefur staðið allar hremmingar af sér og vaxið og dafnað á uppgangstímum þess á milli. Þrátt fyrir erfiðleikatímabil hafa alltaf verið til í Ólafsvík dugnaðar- og bjartsýnismenn sem hvergi hafa látið deigan síga og siglt sparisjóðnum upp úr öldu- dalnum rétt eins og sæfarandinn sem siglir fleyi sínu heilu í höfn. Heimildir: Fyrirlestur Jóhönnu Jóhanns- dóttur, sérprentun. Saga Ólafsvíkur eftir Gísla Ágúst Gunnlaugsson. Atvinnu og hagsaga Islands, óprentuð eftir Lýð Björnsson sagnfræðing. Fundagerðabók Menningar- félagsins í Ólafsvík. Fundagerðabækur Sparisjóðs Ólafsvíkur. Munnlegar heimildir: Jóhann Rafnsson,Stykkishólmi. Sigurður Brandsson, Ólafsvík. Leó Guðbrandsson, sparisjóðsstjóri, Ólafsvík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.