Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Page 37

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Page 37
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 1998 35 Minning HAUKUR SIGTRYGGSSON Þann 21. febrúar s.l. lést Hauk- ur Sigtryggsson útgerðarmaður. Hann var elstur af sjö systkinum þeirra hjóna Guðbjargar Vigfús- dóttur og Sigtryggs Sigtryggssonar á Mosfelli hér í Ólafsvík. Þegar Haukur hafði aldur til fór hann til sjóróðra suður á land á vertíðum eins og títt var með unga menn á þessum árum. Bæði réri hann frá Sandgerði og Hafnarfirði með miklum aflamönnum. Arið 1948, eða þegar Haukur er tuttugu og fjögurra ára, kaupir hann ásamt Guðmundi Jenssyni sinn fyrsta bát, sem hét Egill en það var tuttugu og sjö lesta bátur. Frá þeim tíma og til dauðadags hefur Haukur stundað samfellt útgerð hér í Ólafsvík, mest með bræðrum sínum frá Mosfelli en þeir stofnuðu hlutafélagið Dverg ásamt Guðmundi Jenssyni. Þeir létu smíða tvo nýja báta Hrönn SH 145 og Sveinbjörn Jakobsson SH 10 árið 1964 sem enn er gerð- ur hér út í Ólafsvík og er mikið happaskip. Haukur sá um útgerðina frá upphafi og var það vafalaust þeirra gæfa. Hann var vakin og sofin yfir þessu starfi og sá ávallt um að þau mál væru í góðu lagi. Allt var í röð og reglu hjá honum alla tíð bæði hvað varðaði bát og veiðarfæri. Haukur sat í stjórn nokkurra fyrirtækja í Ólafsvík m.a. Hrað- frystihúss Ólafsvíkur og Sjóbúða. Hann var alltaf ráðagóður um frá- gang mála og vildi ávallt ganga frá hreinu borði. I einkalífi var Haukur gæfu- maður því árið 1949 hefur hann sambúð með ungri ekkju Stein- unni Þorsteinsdóttur. Haukur gekk í föðurstað tveimur ungum dætrum hennar og Lárusar Sveins- sonar en hann fórst hér í höfninni ásamt bróður sínum Sigurði, og Magnúsi Jóhannssyni árið Hauk- ur og Steinunn eignuðust fimm börn. Þrír synir þeirra búa hér í Ólafsvík og ein dóttir í Dan- mörku og stúlka lést nær ársgöm- ul. Haukur var mjög fróður mað- ur og fylgdist vel með öllu bæði hvað varðaði hans lífsstarf og þjóðmál almennt. Það er mikil eftirsjá í svona mönnum eins og Haukur var. Sjómannadagsblað Snæfellsbæj- ar vottar Steinunni, börnunum og nánustu ættingjum, innilega sam- úð vegna fráfalls Hauks Sigtryggs- sonar. Pétur S. Jóhannsson. é'S'/tu/n 'Sjórnöf ifuini Jpö/'sAtj/cfifm tif fiamingju n/cd (fayii/i/ / GRILLSKÁLINN Ólafsbraut 19, Ólafsvík Sjómenn! Til hamingju með daginn ! Laugavegi 178 • 105 Reykjavík • s: 562 1110- Fax 568 5551

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.