Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Page 46

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Page 46
44 Sjómannadagsblað Snaefellsbæjar 1998 MERKINGAR OG VEIÐAR Á SKARKOLA í SUNNANVERÐUM BREIÐAFIRÐI Jón Sólmundsson og Hjalti Karlsson útibúi Hafrannsóknastofnunarinnar Ólafsvík og ísafirði. Inngangur Skarkoli (rauðspretta) er algeng- ur flatfiskur á grunnslóð allt í kringum Island en mest er þó af honum í hlýsjónum fyrir sunnan og vestan land. Fyrstu merkingar á skarkola hér við land fóru fram í Skjálfandaflóa árið 1903, en þá merkti danskur fiskifræðingur 280 kola. Þetta voru reyndar fyrstu merltingar á fiskum hér við land. Á árunum 1953 til 1965 fóru fram mjög umfangsmiklar skarkolamerkingar allt í kringum Island en þær sýna að skarkolinn er fremur staðbundinn fyrstu ævi- árin, en eftir að kynþroska er náð ferðast hann oft langar leiðir, einkum milli hrygningastöðva og fæðuslóða. Síðustu hálfa öldina hefur árleg- ur skarkolaafli við ísland verið að meðaltali um 9.000 tonn. Frá 1984 hefur aflinn verið á bilinu 10.500-14.500 tonn og telja fiski- fræðingar og margir sjómenn að of mikið hafi verið veitt síðustu ár. Það sem m.a. styður þetta er að afli á sóknareiningu í dragnót og botnvörpu hefur farið minnkandi frá 1991, þrátt fyrir aukna tækni og betri þekkingu á veiðisvæðum. Grunnslóðin í sunnanverðum Breiðafirði er mikil fiskislóð og hún er eitt gjöfulasta þorskveiði- svæði landsins. Hún er einnig mikilvæg uppeldisslóð skarkola og á sumrin virðist þar vera talsvert magn af ókynþroska kola. Líkdega gengur hluti skarkola sem hrygnir sunnan- og suðvestanlands í fæðu- leit á þessar slóðir á sumrin, en ekki er vitað í hve miklu magni það er. Skarkoli hrygnir víða í köntum Kolluáls, mest í norður- kantinunt eða s.k. Flákakanti. I apríl 1997 merktum við 500 skar- kola á grunnslóð tit af Ólafsvík og 700 hrygnandi kola á Flákakanti, en þessar merkingar eru hluti rannsókna á göngum skarkola vestan íslands. í þessari grein fjöllum við um merkingarnar út af Ólafsvík, en tilgangur þeirra var að fá upplýsingar um göngur Jón Sólmundsson og Torfí Sigurðsson. og frá 1992 hefur verið skilað skýrslum fyrir um 85% alls skar- kolaafla við landið. Til að meta aflamagn á svæðinu bættum við því 15% við skarkolaafla sem skráður var í veiðidagbækur. Niðurstöður: ókynþroska kola, hvert hann gangi til hrygningar eftir að kyn- þroska er náð og einnig að komast að því hve mikill hluti kolans á þessu svæði veiddist yfir sumarið. Aðferöir Skarkolar voru veiddir í dragnót á Auðbjörgu SH-197 á svonefnd- um Jöðrum um 3 mílur norður af Ólafsvík. Merkt var 4. apríl 1997 en þessi tími var valinn því noltkrum dögum síðar hófst tveggja vikna veiðibann á svæðinu og merktir kolar fengu því tæki- færi til að dreifa sér um slóðina áður en veiðar hófust aftur. Kol- arnir voru settir í kar með renn- andi sjó og líflegir kolar valdir í merkinguna. Fiskarnir voru lengdarmældir og merktir með s.k. slöngumerkjum og síðan sleppt aftur. Tekin voru sýni úr lönduð- um skarkolaafla af svæðinu og auk þeirra eru í greininni not- aðar upplýsingar um afla og afla á sóknareiningu á grunn- slóðinni frá Öndverðanesi að Eyrarfjalli, út frá veiðidagbók- um dragnótabáta. Síðustu ár hafa skil og gæði á skýrslum frá dragnótabátum farið batnandi Afli síðustu ár Á 1. mynd sést skarkolaafli og afli á sóknareiningu í dragnót á grunnslóð við norðanvert Snæ- fellsnes árin 1992-1997. Þessi ár hefur aflinn á svæðinu verið á bil- inu 175-370 tonn, mestur árið 1994 og minnstur 1992. Síðustu tvö ár hefur aflinn verið um 190 tonn eða helmingur þess sem veiddist 1994. Við útreikninga á afla á sóknareiningu notum við einungis köst þar sem skarkoli var meira en fjórðungur aflans, til þess að auka líkurnar á því að kastað hafi verið á skarkolaslóð og til að sigta úr köst þar sem bátar hafa verið á þorskveiðum. Meðal- afli af skarkola í hverju kasti var árin 1992-1994 um 300 kg en hefur tvö síðustu árin verið um 230 kg. Gera má ráð fyrir því að minnkandi afli á sóknareiningu bendi til minna magns skarkola og er það í samræmi við áiit sjó- manna sem stunda veiðar á svæð- inu. Aldur og kynþroski Skarkolinn sem við merktum út af Olafsvík var 4-9 ára gamall. 350 300 250 200 ' 150 ] 100 50 0 1. mynd. Skarkolaafli í dragnót og meðalafli í kasti á grunnslóð við norðanvert Snæfellsnes árin 1992-1997. Súlurnar sýna aflann en línan meðalafla í kasti (einungis eru notuð köst þar sem skarkoli er meira en fjórðungur aflans).

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.