Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Síða 58

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Síða 58
56 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 1998 Elinbergur Sveinsson: HÁTÍÐARRÆÐA í SJÓMANNAGARÐINUM í ÓLAFSVÍK 1. JÚNÍ 1997 Ágætu sjómenn, fjölskyldur ykkar og aðrir gestir! I dag minnumst við þess að 50 ár eru liðin frá því að fyrst var haldinn hátíðlegur Sjómannadag- urinn hér í Ólafsvík en þá var einmitt kominn veruleg upp- sveifla hér í útgerð og atvinnulífi. Bjartsýni íbúanna hafði styrkst og trúin á framtíðina eflst mikið. Floti þilfarsbáta var kominn til athafna og sóknarmáttur þeirra til sjósóknar allt árið fór vaxandi ár frá ári. Fimm árum síðar voru formleg samtök sjómanna og útvegs- manna, “Sjómannadagsráð”, stofnuð hér í Ólafsvík en það eru menningarsamtök sjáv- arútvegsins sem hafa það hlutverk að sjá um hátíða- höld Sjómannadagsins ár hvert og vinna að öðrum menningarmálum, s.s. mannvirkjagerð, blaðaútgáfu o.fl. Sjómannadagsráð hefur all- ar götur síðan séð um hátíða- höld dagsins af mildum myndarskap og með rismikl- um framkvæmdum. I dag virðum við fyrir okk- ur minningar- og menningar- lund í hjarta bæjarins, gróðri prýddan, þar sem í miðju stendur glæsilegt minnismerki sjómanns- ins, gert af þekktum listamanni. I dag er því óhætt að þakka Sjó- mannadagsráði mikið og markvert starf sem varað hefur samfellt í 45 ár og blasir við okkur. Að þessu starfi hefur komið mikill fjöldi manna á þessu tímabili sem hefur á sama hátt verið rismikið í sögu Ólafsvíkur. Áfangasigrar í sjóslysavörnum I dag fögnum við enn einu slysalausu árinu hjá sjómönnum hér í Ólafsvík, en svo hefur einnig verið hin síðari ár. Slíkt er ávallt mikið þakkarefni. Á liðnum vetri voru unnin hin glæstústu björgunarafrek við strendur landsins og á úthafinu. Sum þessara björgunarafreka telj- ast til hinna mestu sem hægt er að vænta, jafnvel á heimsvísu, eins og þegar björgunarþyrla Landhelgis- gæslunnar bjargaði áhöfn Dísar- fells miðja vegu milli Færeyja og íslands eftir að skipið hafði sokl<- ið. Dró áhöfnina upp úr sjónum með aðstoð íslensks togara sem leiðbeindi á slysstaðnum innan um mikið brak og gáma. Þetta björgunarafrek stóru þyrlunnar mun lengi í minnum haft. Hin öfluga starfsemi Slysavarna- félags Islands til öryggis fyrir far- menn og fiskimenn við strendur landsins vekur ekki síður athygli landsmanna en undanfarin ár hefúr félagið komið kerfisbundið upp flota léttra björgunarbáta til skyndinotkunar. Þessa dagana koma til landsins stórir, mjög full- komnir björgunarbátar sem byggðir voru í Þýskalandi. Bátar þessir eru þilfarsbátar og eru taldir hinir fullkomnustu í heimi og geta nýst við hinar breytilegustu aðstæður, m.a. getur þeim hvolft en komist á réttan kjöl aftur án þess að hætta sé á að þeir sökkvi. A hátíðisdegi sjómanna er ástæða að geta slíkra tíðinda um athyglisverða starfsemi Slysavarna- félags Islands til frekara öryggis sjófarenda við Islandsstrend- ur. Háttatími og helgidagar! Islenskur sjávarútvegur er nú á miklu breytingaskeiði. Sjávarútvegur er í eðli sínu kaflaskiptur og sveiflukennd- ur. Hinar náttúrulegu sveifl- ur búa í lífríki sjávar og í breytilegu tíðarfari. Við þeim breytingum fær enginn að gert. Aðrar sveiflur geta verið bundnar við gerð fiskiskipa og hvaða veiðafæri eru helst notuð. Fyrir sveitastjórnir þýðir þetta að fylgjast verður mjög náið með gangi mála og vera í stakk búnar, t.d. með breytingar á höfnum staðanna og með svigrúm til athafna í landi. Reynsla er fyrir því að það getur verið afdrifaríkt fyrir sveitar- félög að verða á seinni skipunum með nauðsynlegar hafnarfram- kvæmdir vegna nýrrar þróunar í gerð fiskiskipa. Ef litið er almennt á þróun ís- lensks sjávarútvegs frá því í stríðs- byrjun 1938 fram til byrjun ní- unda áratugarins þá hófst hún á því að sjómenn fóru úr litlum opnum vélbátum yfir á þilfarsbát- ana og síðar á togarana og tóku um leið í notkun önnur og fjöl- hæfari veiðafæri. Afli jókst og varð fjölbreyttari. Hafnir sjávar- plássanna stækkuðu, bátar stækk- Elinbergur að flytja ræðu á Sjómannadeginum í Ólafsvík 1997, v. megin stendur Eiríkur Gautsson en h. megin standa íris Hlín Vöggsdóttir og Herdís Leifsdóttir. Mynd: J.E.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.