Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Síða 59

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Síða 59
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 1998 57 uðu frekar í öfluga vertíðarbáta með verulega sóknargetu, t.d. á vetrarvertíðum. Allt fór þetta saman við hækkandi markaðsverð á hinum nýju mörkuðum í Bret- landi og síðar í Bandaríkjunum fyrir frystar fiskafurðir. Fiskibæirnir á ströndinni stór- efldust, atvinna varð geysimikil og afkoma fólks góð. Þannig urðu sjávarplássin á Islandi aðalmjólk- urkýr þjóðfélagsins sem fór í stór- um stökkum til meira ríkidæmis og stórbættrar afkomu almenn- ings, sem í sjávarbæjum þessa uppgangstíma spurði hvorki um háttatíma né helgidaga þegar bjarga þurfti aflaverðmætum. Þannig gerðist það að ís- lenska þjóðin komst í fremstu röð ríkra þjóða. Tekjur af fiskiauðlind- inni dreifðust um öll byggðarlögin vegna verðauka vinnslunnar á fiskinum eftir að komið var með hann í land og mikill fjöldi fólks fékk yfirgripsmilda vinnu við úrvinnslu hans. Á hvítum reitum og svörtum Nú er öldin önnur! Árið 1984 voru sett lög um verndun fiski- stofna við strendur landsins og um leið úthlutun aflaheimilda. Engum hugsandi manni kemur til hugar að ekki væri full ástæða að vernda nytjafiskistofna og tak- marka aflaheimildir. Reyndar komust sjómenn á Breiðafirði sjálfir á þá skoðun 12 árum áður en stjórnvöld settu á fiskverndunarlögin umræddu árið 1984. Breiðfirsku sjómennirnir höfðu séð það svart á hvítu að of- notkun þorskaneta á hrygningar- tímabilinu gat valdið alvarlegu tjóni á hrygningarþorski sem þeir vissu þá, 1972, um á innanverð- um Breiðafirði og þeir tóku af- drifaríka ákvörðun á grundvelli þess sem þeir vissu að rétt var. Á sameiginlegum fundi sjó- manna, útvegsmanna og fiskverk- enda á norðanverðu Snæfellsnesi var einróma samþykkt að alfriða fyrir þorsknetum og togveiðum innanverðan Breiðafjörð allt árið innan línu sem dregin var í upp- hafi frá Búlandshöfða í Skorarfjall á Barðaströnd. Hefur þessi friðun að frumkvæði heimamanna verið í gildi í 25 ár. Enginn hér um slóðir efast um gildi þessarar fiskverndunar fyrir breiðfirsku fiskauðlindina. Þeim meiri athygli vekur áhugaleysi Hafrannsóknarstofnunnar á rann- sóknagildi þessa einstæða framtaks sjómanna og útvegsmanna við Breiðafjörð árið 1972. Nú hafa lögin um fiskveiði- stjórnunina með ýmsum breyting- um og nýjum reglugerðarákvæð- um verið í gildi í 13 ár. Á þessu tímabili hafa afleiðingar og hliðar- áhrif komið betur og betur í ljós. Þau eru vægast sagt hrikaleg. Margar sjávarútvegsbyggðir sem áður höfðu, að því er virtist, trygga framtíð verið svipt grund- velli tilveru sinnar. Rétturinn til að veiða fisk hefur verið seldur í burtu. Atvinnugrundvellinum hefur verið svipt á brott, - í sum- um tilvikum á einni nóttu. Efna- hagslegri tilveru hefur verið spark- að undan fólkinu því afrakstur ævistarfsins var geymdur í húseign sem nú er verðlaus. Fólkið reynir að krefjást svara við óréttlætinu. Við höfum ekkert af okkur gert annað en vinna nótt sem nýtan dag, virkan og helgan til að efla framleiðsluverðmæti í þjóðarbúið. Engin svör fást, enginn telur sér skylt að svara. I staðinn fyrir svör berast fréttir af vaxandi umsvifum verðbréfa- og hlutabréfamarkaða. Áberandi er á hlutabréfamörkuðum hækk- un hlutabréfa í sífellt stækkandi fyrirtækjum sem keypt hafa kvót- ann af og frá sjávarplássunum. Þannig má segja að kolfallið eignaverð á yfirgefnum sjávar- plássum verði til að hækka hluta- bréf í fyrirtækjum sem keyptu burt kvótann. Orlög slíkra byggðarlaga virðast því augljós. Sjálfkrafa verða þau eins konar minjar um mannabyggð og atvinuhætti. Verði slík þróun áfram er íslenskt þjóðfélag á hraðri leið í eins konar svart-hvítt samfélag þar sem fáir stórir eru á hvítu reitunum en margir smá- ir á þeim dökku. Þar munu blasa við glæstar hallir verðbréfa og hluta- bréfamarkaða þar sem hinir útvöldu úr hvíta hlutanum verða heima- gangar en hinir mörgu smáu úr dökka hlutanum geta aðeins séð dýrðina en ekki snert hana. Kvótaminkurinn strýkur kviðinn Til er sagan um minkinn sem kemst í hænsnakofann heimildar- laus og rústar allt þar. Hann drepur hænsnin og engin egg verða því fyrir heimilið til búbóta. Þetta er þekkt saga sem segja má að eigi sér samlíkingu í nýrri gerð minks, sem grasserar í efnahags- kerfi þjóðarinnar Þessi minkur, kvótaminkurinn, er þeirrar gerðar að hann leggst á atvinnustofnanir sjávarbyggðanna sem eru fiskvinnslustöðvarnar. Þessi minkur hefur kennitölu og hefur aðgang að óhemju fjár- magni til að kaupa upp aflamarks- veiðiheimildir og flytur þær sam- an á einn stað en fiskvinnslan og atvinnan leggjast niður í sjávar- plássunum því þar hefur enginn bolmagn til að bjóða betur en nýi F.v. Jón Skúlason, Eggert Guðmundsson og Þórjón Jónasson, myndin er tekin 1941 en þeir unnu þá saman í H.Ó.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.