Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Blaðsíða 68

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Blaðsíða 68
66 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 1998 SVISSNESKUR BANKASTJÓRI Á SJÓ Róður með FRÓÐA SH 15 haustið 1987. Nafn mitt er Martin Conrad og ég er giftur Guðríði Hallmars- dóttur. Við eigum þrjú börn og heita þau Kristín 9 ára, Stefán 7 ára og Anna sem er að verða 5 ára. Við eigum heima í litlu þorpi í norður Sviss sem heitir Geroldswil. Læra íslensku betur Árið 1987 ákváðum við hjónin að taka okkur frí frá vinnu og drífa okkur heim til Islands. Tak- mark þessarar ferðar var aðallega að læra íslensku til þess að ég gæti kynnst ættingjum Guðríðar betur. Við hófum ferðalagið í endaðan maí og keyrðum á Passatinum okkar um alla Skandinavíu. Við vorum tvær vikur á þessu ferðalagi og enduðum það með því að taka Norrænu frá Bergen til íslands. Við vorum tvær nætur og þrjá daga á ferjunni og komum við í Færeyjum, og þangað var gaman að koma. ( Það má taka fram að sjóveikitöflur voru mikið notaðar á leiðinni). Foreldrar Guðríðar, Hallmar Thomsen og Kristín heitin Sigurðardóttir tóku á móti okkur á Seyðisfirði og fórum við með þeim í skemmtilegt ferðalag um suðurhluta Islands. Fyrstu þrjá mánuðina dvöldum við í Reykjavík og vorum svo heppin að geta búið hjá frænda Guðríðar, Hallgrími Hanssyni, sem nú er látinn. Eg notaði tím- ann vel og púlaði við að læra ís- lensku og íslenska málfræði í marga klukkutíma á dag. í Saltflskvinnslu Eftir þennan tíma var okkur farið að leiðast í Reykjavík og þráðum að komast til ÓÍafsvíkur. I september keyrðum við til Ólafsvíkur og bjuggum í húsi tengdaforeldra minna við Lindar- holtið í Ólafsvík. Ég útvegaði mér atvinnuleyfi og við hjónin drifum okkur í fiskvinnu hjá fyrirtækinu HRÓI, þar sem við unnum í rúman mánuð. Það voru þau Ragnheiður, Ulli og Pétur sem voru okkur innanhandar og gáfu mér tækifæri til að kynnast vinnu sem ég bankamaðurinn hefði aldrei haft tækifæri til að kynnast, ef þau hefðu ekki verið svona al- mennileg við mig. Fyrir mig var þaðmýtt að vinna svona líkamlega erfiða vinnu, en ég hafði gott af þessu og líkaði vel. Skemmtilegast þótti mér að vinna á hausingavél- inni, þá var ég í essinu mínu og vann eins og vitlaus maður (við skulum ekkert minnast á verkina í fingrunum, sem stöfuðu af því að troða puttunum upp í augun á þorskhausunum). Ég var einnig iðinn við að losa slorbalana hjá kvenfólkinu og var ég auðvitað vei liðinn hjá þeim fyrir vikið. Ég átti lengi eftir að minnast tímans í HRÓA, saltfisklyktin í bílnum okkar var svo mikil að margir fitj- uðu upp á nefið þegar þeir fóru í bíltúr með okkur. Martin með golþorsk í hendinni Gin, tonic og Bubbi Það sem mér þótti ennþá skemmtilegra en að vinna í salt- húsi var að fara út á sjó. Ég fór oft með Hadda frænda út á trillunni hans og fannst það algjört ævin- týri. Draumurinn var samt sem áður að fara út á sjó á stórum bát og talaði ég svo mikið um það að allir í Ólafsvík vissu um þessa ósk mína. Einu sinni kom til mín maður og spurði mig hvort ég væri til í að fara út sem kokkur á togaranum Má. Konan mín fékk algjört hláturskast , því allir sem þekkja mig vita að ég get ekki einu sinni soðið vatn án þess að klúðra því og þar fyrir utan hefði allur mannskapurinn fengið mat- areitrun. En ég gafst ekki upp við að vona og viti menn tækifærið kom. Það var langt liðið á október og fyrsti snjór vetrarins lá yfir öllu þorpinu. Á þessu laugardags- kvöidi var ball á Klifi og hlakkaði okkur til að fara þangað. Guðríð- ur skrapp yfir til Stellu og Hadda en ég byrjaði að undirbúa mig fyr- ir kvöldið að íslenskum sið að sjálfsögðu. Ég blandaði mér tvö- faldan Gin í Tonic og hlustaði á Bubba, sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. Klukkan ca. 10 var dyra- bjöllunni hringt og fyrir utan stóð Ulli, frændi Guðríðar. Hann spurði mig hvort ég væri til í að fara morguninn eftir í túr með Fróða, þar sem einn maðurinn væri forfallaður. Án þess að hugsa mig um sagði ég bara já já, ekkert mál. Ég bauð Ulla inn og við kláruðum Gin flöskuna sem ég var hálfnaður með. Einhvern tím- ann um miðnættið fórum við svo öll á ball. Ég veit ekki nákvæm- lega hvað skeði á þessu balli, en ég veit að ég skrapp í eitthvert partý, þar sem mér var boðið að drekka eitthvert grænt brugg. Seinna staulaðist ég heim að loknu balli og var feginn að komast í rúmið og sofa. Svissneskur sjóveikiplástur Klukkan hálf sex um morgun- inn vakti Guðríður mig og við fórum niður í Hróa til að ná í gúmmíhanska handa mér. Ég held að ég þurfi ekkert að reyna að lýsa því hvernig mér leið, enda ekki nema fjórir tímar síðan ég var á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.