Skógræktarritið - 15.12.1991, Side 18

Skógræktarritið - 15.12.1991, Side 18
sem gataðir voru í báða enda, sennilega fyrir keðjufestingar, og hafa því verið notaðir í trjákvíar í sambandi við timburfleytingar. Nokkrir lerki- og grenibolir báru þess engin merki að hafa verið sagaðir, þetta voru heil tré með rót, sem eðlilega var lítið eftir af eftir ísrek og þrim við ströndina. Trjáþolirnir voru flestir 4!/2-6‘/2 m að lengd, en einstaka 15-25 m langir. Eins og á fslandi sáum við víða lerkibörk og birkinæfrar, en engir lauftrjá- bolir voru meðal sýna okkar. Stærsti bolurinn meðal sýnanna var lerkibolur 1,6 m3 að stærð. Furubolirnir voru frá 0,6-1,3 m3 að stærð. Aldur þeirra furubola, sem við gátum ákvarðað, var frá 140 árum (þvermál 25 em) til 210 ára (þvermál 33 cm). Á klettótta hluta strandarinnar þarna er gosbergið mjög úfið og oddhvasst. Þar hefur mikið af rekaviðnum sundrast í brimrótinu og því mikið af brotnum smáviði innan um hann. Aðstæður voru svipaðar því, sem við sáum á íslandi. Meðal sýna þeirra, sem við tókum á íslandi, var hlutdeild lerkisins mun meiri. Þetta kann að vera tilviljun. Þótt bolirnir væru valdir af handahófi, eru sýnin of fá til þess að hægt sé að segja með vissu um tegundaskipting- una. Auk þess voru mælingarnar á Ströndum skipulegri, þar sem í raun voru mældir-þverskurðir af rekaköstunum, eins og áður segir. Óskar Kristinsson á Dröngum sagði okkur að rauðaviður lægi dýpra í sjónum en annar rekaviður. Svipaða sögu hafa rússneskir fleytingamenn að segja af reynslu sinni, að lerkibolir sökkvi fyrr en furubolir. Ef lerkibol- irnir væru ekki fastfrosnir í rekísnum og bornir af honum mestan hluta hinnar löngu leiðar, myndu sjálfsagt fáir lerkibolir ná ströndum )an Mayen og íslands. Því er eðlilegt að gera ráð fyrir því að hlutdeild lerkisins sé síst minni við norðurströnd Jan Mayen en við íslandsstrendur. Stein Johansen, sem fyrr er nefndur, og kynnt hefur sér rekaviðinn á norðurströnd Jan Mayen, telur að hlutdeild lerkis sé mikil þar. Skýringin á minni hlutdeild lerkisins við suðurströnd |an Mayen gæti verið þessi: Þann rekavið, sem berst inn í hringstrauminn fyrir sunnan Jan Mayen, rekur fyrr eða seinna að suðurströndinni. En leiðin er löng og rekið getur tekið langan tíma. Snemma á þeirri leið getur hann losnað úr ísnum, og því haft langan tíma til þess að sökkva. Þegar öllu er á botninn hvolft, bendir flest til þess, að rekaviði á )an Mayen svipi til rekaviðar á íslandi og uppruninn sé hinn sami. Timburflutningar um íshafið Hin víðáttumiklu hafsvæði, sem umlykja norðurheimskautið eru ísi þak- in allt árið. Fridtjov Nansen (1897) varð fyrstur til þess að sýna fram á, að þessi ís er á reki frá Beringssundi, berst síðan yfir Norðurheimskautið og þá til suðurs milli Grænlands og Svalbarða. Hann rakst á lýsingu af )ean- ette-rannsóknarförinni. (eanette sigldi gegnum Beringssund en rakstá haf- ís og sökk við eyjarnar Novasíbirskie ostrova árið 1881. Síðar fundust leifar af [eanette fyrir vestan Hvarf á Grænlandi. Tilgáta Nansens var, að þar sem yfirborðsstraumarnir fara norður gegnum Beringssund og inn í Norður- íshafið og síðan út í Atlantshafið, m.a. gegnum Grænlandssund, myndu vatnsmassar stórfljótanna í Síberíu, Kanada og Alaska ýta hafísnum yfir Norður-íshafið og síðan suður á bóginn m.a. milli íslands og Svalbarða. Enda þótt tilgátur hans mættu mikilli andspyrnu, tókst honum að koma saman Fram-leiðangrinum. Hann sigldi á Fram frá Noregi og austur með norðurströnd Síberíu, þangað til að skipið varð fast í hafísnum 22. sept- 16 SKÓGRÆKTARRITIÐ 1991
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.