Skógræktarritið - 15.12.1991, Blaðsíða 45
SNORRI BALDURSSON
Líftækni í skógrækt
Fjölgun skógartrjáa með vefjaræktartækni
1. Inngangur
Vefjaræktun (tissue culture) er ört vaxandi svið innan plöntulíftækninnar.
Hugtakið spannar alla ræktun plöntufrumna og vefja með næringarblönd-
um, sem fram fer í dauðhreinsuðum iokuðum ílátum, Markmið ræktunar-
innar geta verið margvísleg og má nefna örfjölgun eða fjölföldun (micro-
propagation) úrvalseinstaklinga, vírushreinsun plantna, framleiðslu sér-
hæfðra plöntuafurða, varðveislu erfðaefnis og plöntukynbætur af ýmsu
tagi. Við erfðatæknitilraunir á plöntum er vefjaræktarkerfi einnig nauðsyn-
legt hjálpartæki til að viðhalda frumum og vefjum í rækt og endurskapa af
þeim heilar plöntur eftir genaflutning.
Á síðastliðnum áratug hefur vefjaræktun plantna aukist úr því að vera
viðfangsefni nokkurra rannsóknastofa yfir í stóriðnað, sem fjöldi gróðrar-
stöðva og fyrirtækja í skraut-.og matjurtaframleiðslu byggir á. Þörfin íyrir
trjáplöntur í heiminum er mikil og vaxandi ef stemma á stigu við þeirri
skógeyðingu sem víða á sér stað. Margir hafa því litið þessa nýju tækni
hýru auga til að fjölga skógartrjám í stórum stíl.
Þessari grein er einungis ætlað að gefa lesendum svolitla innsýn í
hvernig vefjaræktartæknin getur nýst við örfjölgun á þeim trjátegundum
sem áhugaverðar eru fyrir skógrækt á íslandi. í seinni grein(um) verður
fjallað um vefjaræktun og líftækni í trjákynbótum. Greinin styðst við heim-
ildir að mestu en fléttað er inn niðurstöðum af rannsóknum höfundar o.fl.
við vefjaræktarstofu Grasagarðs Kaupmannahafnarháskóla.
2. Örfjölgun er ein tegund kynlausrar æxlunar
Að öspum undanskildum er meginþorra skógartrjáa fjölgað með fræi. Við
kynæxlun blandast og endurraðast gen foreldranna þannig að hvert
afkvæmi fær sína sérstöku arfgerð. í náttúrunni ræður tilviljun mestu um
útkomuna, og tekst stundum vel til en í öðrum tilvikum miður. í kynbótum
er reynt að auka líkurnar á æskilegum arfgerðum með því að víxla saman
völdum einstaklingum. Til að nýta til fulls úrvalsarfgerðir, hvort sem þær
eru náttúruafurð eða orðnar til við kynbætur, verður að grípa til kynlausrar
fjölgunar því kynæxlunin riðlar arfgerðinni aftur.
Örfjölgun má skilgreina sem kynlausa æxlun með vefjaræktartækni.
Örfjölgun byggist á hæfni einangraðra plöntuvefja og frumna til að endur-
skapa móðurplöntuna og er að því leyti sambærileg við hefðbundna kyn-
lausa fjölgun með græðlingum. í móðurplöntunni eru einstakar frumur og
SKÓGRÆKTARRITIÐ 1991
43