Skógræktarritið - 15.12.1991, Síða 60

Skógræktarritið - 15.12.1991, Síða 60
Haukadalur 1960. Vorið 1961 var sitkagreni og stafafura gróðursett í eða við plógstrengina í þessari fyrstu plægingu fyrir gróðursetningu með skerpiplóg á íslandi. Fyrstu myndina tók ég 22. október 1969, aðra myndina 15. september 1978 nokkurn veginn í sömu stefnu og hina fyrstu. Á henni sjást þeir Garð- ar Jónsson (t.v.) og Hákon Bjarnason (t.h.). Þriðja myndin er svo tekin 14. september 1985 úr annarri átt og sýnir hún mætavel hinn stolta lund, sem vaxinn er upp þarna. Mjóanes 1973. Árið 1965 hófst gróðursetning á skóglausu landi í Mjóanesi í Valla- hreppi, Fljótsdalshéraði, sem Stefán bóndi Eyjólfsson hafði afhent Skóg- rækt ríkisins til afnota nokkru áður. Þarna var mikið af þurru valllendi, sem einkenndist af holtasóley og þursaskeggi. Mjög auðvelt reyndist að gróður- setja í þetta land með bjúgskóflu og var nær eingöngu plantað lerki, sem tók furðufljótt við sér. Talsvert var þó af hálfgrónum melum, sem voru svo grýttir, að ógerlegt reyndist að planta í þá með bjúgskóflu. Ég velti talsvert fyrir mér, hvernig helst mætti planta í þá á fljótlegri hátt en með haka (sem auðvitað hefði verið hægt). Sumarið 1973 gerði ég smátilraun með að plægja slíkan mel með litlum plóg, sem dreginn var af venjulegri dráttar- véi. Einhvern fyrsta daginn í júlí lét ég svo gróðursetja lerki í plógstreng- ina. Hinn 7. júlí 1973 kom Hákon Bjarnason skógræktarstjóri á þennan stað ásamt skógræktarstjórum hinna Norðurlandanna. Þá tók hann mynd þá, sem hér er sýnd fyrst, og stend ég þarna í einu plógfarinu. Ef myndin prentast vel, má greina lerkiplönturnar í plógstrengjunum hægra megin. Vart þarf að taka fram, að lerkiplönturnar komu ágætlega til, enda þótt all- þurrt væri næstu vikurnar. 58 SKÓGRÆKTARRITIÐ 1991
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.