Morgunblaðið - 12.06.1999, Side 1
130. TBL. 87. ÁRG.
LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Rússneskar hersveitir halda inn í Kosovo á undan friðargæslusveitum KFOR
Ivanov skipar Rússum
að yfírgefa Kosovo
Podujevo, Skopje, Blace, Brussel. AP, AFP, Reuters.
AP
RÚSSNESKAR hersveitir héldu inn í Pristina, héraðshöfuðborg Kosovo, í gærnótt, þvert á vilja Atlantshafs-
bandalagsins. Var komu þeirra fagnað af þúsundum Serba í höfuðborginni. ígor ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði inngöngu þeirra í héraðið mistök og skipaði hersveitunum að snúa til baka frá Kosovo.
ÍGOR ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði í nótt að rússnesk-
ar hersveitir er héldu inn í Pristina,
héraðshöfuðborg Kosovo, hefðu
gert það í leyfisleysi og að þeim
hefði verið skipað að yfírgefa
Kosovo þegar í stað. „Það er
óheppilegt að rússneskar hersveitir
skuli hafa komið til Pristina. Það er
verið að grafast fyrir um ástæðum-
ar. Þeim hefur verið skipað að yfír-
gefa Kosovo þegar í stað og bíða
frekari fyrirmæla," sagði Ivanov í
samtali við sjónvarpsstöðina CNN í
nótt. Bandaríkjastjóm sagðist í gær
hafa tekið þessa skýringu til greina.
„Við höfum enga ástæðu til að ætla
annað en að sveitir Rússa verði
dregnar til baka þegar í stað,“ sagði
Mike Hammer, talsmaður Hvíta
hússins. Vestrænir sérfræðingar
létu hins vegar þegar í ljós efa-
semdir um að rússneskar hersveitir
hefðu óhlýðnast skipunum með
þessum hætti og kom það glögglega
fram í fréttaskýringu fréttaritara
Sky í Pristina í nótt.
Rússnesku hersveitimar héldu
inn í Kosovo skömmu eftir miðnætti
að staðartíma þrátt fyrir að vestræn
stjórnvöld teldu sig hafa fengið lof-
orð fyrr um daginn um að Rússar
myndu ekki fara inn í héraðið á
undan KFOR, friðargæsluliði undir
stjórn Atlantshafsbandalagsins
(NATO). Höfðu Rússamir fyrr um
daginn ekið frá Bosníu í gegnum
Serbíu.
Þúsundir Serba fögnuðu komu
rússnesku hermannanna til Pristina
en ekki var vitað hversu fjölmennar
hersveitimar væm, né heldur hvaða
skýringar lægju að baki. Lýstu
margir borgarbúa yfir gleði sinni
með að um rússneskar sveitir væri
að ræða en ekki sveitir NATO.
Júgóslavneska fréttastofan Tanjug
sagði að um tíu brynvarðar bifreið-
ar og 30 vömbíla hefði verið að
ræða. Rússnesku sveitirnar héldu
til Polje, bæjar skammt frá flugvell-
inum í Pristina, þar sem Serbar era
í meirihluta. Sagði Jevgení Sadov-
skí, einn Rússanna, við AFP að þeir
ættu að undirbúa flugvöllinn fyrir
komu rússneskra hersveita. Hann
sagði að þeim hefði verði tjáð að
þeir ættu að vera í Kosovo í tvær
vikur. Að því er CNN hafði eftir
bandarískum embættismönnum í
gær, mun atburðurinn ekki hafa
áhrif á framgang friðai-gæslunnar í
Kosovo, dragi Rússar sveitir sínar
til baka. Hins vegar kynni þetta að
hafa áhrif á frekara samstarf við
Rússa í Kosovo.
í gær hafði síðasta hönd verið
lögð á undirbúning þess að fyrstu
sveitir KFOR, 19.300 friðargæslu-
liða, haldi inn í Kosovo við dögun í
dag, en allt útlit var fyrir í gær að
inngöngunni yrði flýtt í kjölfar inn-
göngu Rússa.
Þegar í gærmorgun skýrðu rúss-
neskar og serbneskar fréttastofur
frá því að allt að þúsund rússneskir
friðargæsluliðar væm á leið til
Kosovo frá Bosníu og Rússlandi, og
myndu hugsanlega vera komnir til
héraðshöfuðborgarinnar Pristina
fyrir kvöldið.
Síðar um daginn skýrði ITAR-
Tass fréttastofan svo frá því að
áætluð innganga í Kosovo hefði ver-
ið afturkölluð eftir að A1 Gore, vara-
forseti Bandaríkjanna, og Madel-
eine Albright utanríkisráðherra
hefðu rætt símleiðis við ívanov og
varað hann við afleiðingum þessa.
Þá vísuðu rússneskir embættis-
menn því á bug að flutningur her-
manna frá Rússlandi hefði verið
fyrirhugaður.
Strobe Talbott, aðstoðaratanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, var á
leið frá Moskvu af árangurslausum
fundi við rússneska ráðamenn en
sneri til baka er fréttist af því að
Rússar væra á leið að landamæram
Kosovo.
Rússar vilja yfirráðasvæði
í Kosovo
Rússneskir ráðamenn ítrekuðu í
gær að þeir myndu ekki sætta sig
við að þurfa að lúta stjóm NATO í
Kosovo. ítrekuðu þeir kröfur sínar
um að Rússar hefðu umsjón með
sérstöku svæði innan héraðsins, en
því hefur NATO hafnað á þeim for-
sendum að það myndi jafngilda
uppskiptingu Kosovo.
Sagði James Rubin, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
að ívanov hefði sagt að „Rússum
væri það kunnugt að friðargæslulið
í Kosovo yrði undir sameiginlegri
stjóm“.
Júgóslavíuher jók í gær hraðann
á brottflutningi í norðurátt frá
Kosovo-héraði og sögðu embættis-
menn NATO framkvæmd Júgó-
slavíuhers ganga „vel fyrir sig og
samkvæmt áætlun“.
Sumir júgóslavnesku hermann-
anna veifuðu júgóslavneska fánan-
um og hrópuðu „Serbía“ er þeir
héldu leið sína út úr héraðinu. Virt-
ust margir hermannanna þó ekki
vilja yfirgefa héraðið friðsamlega,
en talsmaður Öryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu sagði þá
hafa kveikt í húsum í Gorozhup í
Kosovo, skammt frá Albaníu.
I Pristina mátti sjá öran flutning
lögreglu- og herbíla í átt að Serbíu.
Sex MiG-21 herþotur yfirgáfu hér-
aðið frá Goles-herflugvelinum
skammt frá Pristina, en þar hefur
NATO gert loftárásir nánast á
hverjum degi frá því að árásimar
hófust 24. mars sl.
Yfir 400 herflutningabílar héldu
Morgunblaðið/JEG
Staðsetning friðargæslusveita
o
Sarajevo
Sorbia
JÚGÓSLAVÍA
^SVARTFJALLA^-' . ;
LAND Pristina-
Fyrirhuguð svæðaskipting NATO
JUGÓSLAVÍA
• Pristma
tm
OSkopje
MAKEDONIA Ap
20 km
áleiðis að Merdare, á landamæran-
um við Serbíu, hlaðnir hergögnum
og hermönnum. Samkvæmt því
samkomulagi sem ráðamenn
júgóslavneskra heryfirvalda og
NATO komust að sl. miðvikudag í
Kumanovo í Makedóníu, er Júgó-
slavíuher ætlað að flytja burt öll
radarmælitæki, SAM-flugskeyti og
loftvarnarbyssur fyrir kvöldið.
í um tólf km fjarlægð frá
Merdare hélt önnur lest 33 her-
flutningabíla í átt að Serbíu með
þungavopn og hermenn innanborðs.
Þá streymdu bílalestir óbreyttra
serbneskra borgara úr héraðinu, en
margir þeirra óttast nú mjög að
Frelsisher Kosovo (UCK) nýti sér
það tómarúm sem skapast getur frá
því að Júgóslavíuher hefur dregið
lið sitt til baka frá Kosovo og þar til
alþjóðlegt friðargæslulið hefur
komið sér fyrir í héraðinu.
■ Frelsisher/32
Heimilis-
laus eftir
óveður
HJÓNIN Orville og Judy Bern-
höft standa fyrir framan ramm-
gerða skemmu er gjöreyðilagðist
er skýstrokkur gekk yfir íslend-
ingabæinn Mountain í Norður-
Dakóta í Bandarikjunum fyrr í
vikunni. Þau er meðal fimm
Vestur-íslendinga er misstu
heimili sitt í veðrinu. Wayne son-
ur þeirra var að koma vinnuvél-
um fyrir í skemmunni er ský-
strokkurinn nálgaðist og náði
naumlega að koma foreldrum
sínum út í bfl og bruna í burtu
áður en skýstrokkurinn tætti
íbúðarhús og aðrar byggingar á
Bernhöfts-býlinu í sundur.
■ Tætti sundur/42