Morgunblaðið - 12.06.1999, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1999 2?
VIÐSKIPTI
Niðurstöður Gallup-könnunar fyrir Skýrslutæknifélagið um 2000-vandann í íslenskum fyrirtækjum
Einungis
3% telja
sig hafa
leyst
vandann
NÝVERIÐ kynnti Skýrslutæknifé-
lag íslands niðurstöður nýrrar
símakönnunar sem Gallup gerði fyr-
ir félagið um undirbúning fyrir-
tækja fyrir árþúsundaskiptin. Þar
kom meðal annars fram að einungis
3% teija sig hafa leyst vandann, 7%
fyrirtækjanna höfðu ekki hafið at-
hugun, að 69% hafa leyst meira en
helming sinna vandamála og að 95%
fyrirtækjanna gera ráð fyrir að hafa
lokið öllum endurbótum og aðgerð-
um vegna 2000-vandans fyrir 1. des-
ember næstkomandi.
650 fyrirtæki með a.m.k. fjóra
starfsmenn voru valin af handahófi
úr fyrirtækjaskrá en alls svaraði
401 fyrirtæki.
Ingi Þór Hermannsson situr í
stjórn Skýrslutæknifélagsins og
hefur haft umsjón með könnunum
af þessu tagi sem gerðar hafa verið
af hálfu félagsins. Að hans sögn
gefa niðurstöður könnunarinnar til
kynna að mikil bjartsýni ríki um ár-
þúsundaskiptin og að fyrirtæki telji
sig vera með flest sitt á þurru.
Til að mynda segja forsvarsmenn
nærri 45% fyrirtækjanna að athug-
un sé lokið á tölvukerfum þeirra.
48% fyrirtækjanna eru enn i athug-
un en í aðeins 7% fyrirtækjanna er
athugun ekki hafin. Til samanburð-
ar má geta að í könnun sem gerð
var í nóvember og desember síðast-
liðnum var hlutfall þeirra sem höfðu
lokið athugun aðeins tæplega 18%
en hlutfall þeirra sem höfðu ekki
hafið athugun var um 27%.
Fyrirtæki í iðnaði standa
öðrum að baki
Athyglisvert er að í fyrri könnun-
um var athugun síður hafin hjá fyr-
irtækjum á landsbyggðinni en á
KÖNNUN GALLUP: 2000 vandinn í íslenskum fyrirtækjum
Er athugun lokið hjá fyrirtækinu, er
athugun hafin eða hefur athugun ekki
Hversu langt, hlutfallslega, myndir þú segja
að þið séuð komin í lausn þeirra vandamála
hafist á vandamálum tengdum ártalinu 2000 í fyrirtækinu sem tengjast ártalinu 2000
Athugun hafin
bU % ^ 47,9% 100%
50 Athugun lokið—y -a
4U ^ 76-99%
oU N/ Athugun
áv hafist 51-75%
iU ’"*5SSasa 7,2% 0-50%
U 1 maí ‘98 nóv. '98 mars ‘99 maí '99
] 3,4%
38,8%
27,2%
30,6%
Hvenær gerir fyrirtækið ráð fyrir að hafa lokið öllum endurbótum
og aðgerðum vegna 2000 vandans þannig að starfsemi þess
verði ekki fyrir truflunum þegar ártalið 1999 breytist í 2000?
Seinna, ekki á árinu
Fyrir 1. janúar 2000
Fyrir 1. desember 1999
Fyrir 1. nóvember 1999
Fyrir 1. október 1999
Fyrir 1. september 1999
Fyrir 1. ágúst 1999
Fyrir 1. júlí 1999 Umeraðræða
Fyrir 1. júní 1999 39,5% uppsafnað hlutfall en ekki
Er lokið 36,1 % eiginlegt hlutfall fyrir hvert tímabil
W—70.5%
55,8%
45,1%
höfuðborgarsvæðinu en það hefur
jafnast. Ingi segir að í könnun sem
birt var um áramótin hafi útgerð og
fiskvinnsla komið áberandi verst út.
Af þessari nýju könnun að dæma
hafi þau fyrirtæki tekið sig mikið á
og nú sé það iðnaðurinn sem standi
öðrum að baki.
Af þeim fyrirtækjum sem hafa
lokið athugun eða eru enn í athug-
un hafa 96% látið athuga bókhalds-
kerfi sitt, 95% hafa látið athuga vél-
og hugbúnað sinn en 67% hafa látið
athuga ýmsan tæknibúnað á borð
við símkerfi, lyftur og loftræsti-
kerfi.
Meirihluti sömu fyrirtækja, eða
um 69%, taldi að búið væri að leysa
meira en helming þeirra vandamála
sem tengjast 2000-vandanum í íyr-
irtæki þeirra en einungis rúm 3%
töldu að búið væri að leysa 2000-
vandann að öllu leyti í þeirra fyrir-
tæki.
Ólíkt mat á kostnaði
Forsvarsmenn tæplega 43% fyr-
irtækjanna sögðu að leitað hefði
verið upplýsinga frá samstarfsaðil-
um og helstu birgjum varðandi
2000-hæfni búnaðar þeirra. Þetta
átti þó fremur við um stærri fyrir-
tæki en þau minni.
Jafnframt telja 48% að heildar-
kostnaður vegna 2000-vandans
verði undir 300 þúsund krónum í
fyrirtæki þeirra. 18% telja kostnað-
inn verða yfir 1 milljón króna. Með-
alkostnaður á fyrirtæki var sam-
kvæmt könnuninni rúmlega 700
þúsund krónur.
Ingi Þór segir að hafa beri í huga
að mismunandi er hvað fyrirtækin
telja til kostnaðar við athugunina.
Til dæmis er líklegt að mörg þeirra
telji einungis til þá vinnu sem keypt
er af utanaðkomandi aðilum. Þá
megi kannski helst lesa það út úr
þessum niðurstöðum að menn séu
oft ekki fyllilega meðvitaðir um
kostnaðinn og hafi ekki tekið hann
sérstaklega saman.
95% orðin 2000-hæf
í byrjun desember
Langflest fyrii’tækin áætla að
ljúka endurbótum og aðgerðum
vegna 2000-vandans á árinu 1999
eða tæp 99% svarenda. Mikill meiri-
hluti eða rúm 83% áætlar að ljúka
endurbótum fyrir 1. október 1999
og 95% ætla að vera búin með verk-
efnin 1. nóvember.
„Þrátt fyrir þessar niðurstöður
mega menn ekki láta deigan síga,
nú eru rétt rúmlega 200 dagar til
áramóta og þegar frá hafa verið
dregnir þeir dagar sem ekki eru
vinnudagar eni þeir enn færri.
Reynslan sýnir að þó að menn seg-
ist verða tilbúnir þá getur eitthvað
óvænt komið upp. Þeir sem ætla
ekki að verða tilbúnir fyrr en 1. nóv-
ember eða 1. desember hafa ekki
mikið svigrúm," segir Ingi Þór að
lokum.
Auglýsing þessi er eingöngu birt í upplýsingaskyni
Skráning skuldabréfa
Kaupþings hf., 1. fl. 1999,
á Verðbréfaþing Islands.
Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt að taka
skuldabréf Kaupþings hf., 1. flokk 1999 á skrá.
Bréfin verða skráð miðvikudaginn 16. júní nk.
Skráningarlýsingu er hægt að fá hjá
umsjónaraðila skráningarinnar, Kaupþingi hf.
Þar er einnig hægt að nálgast þau gögn sem
vitnað er til í skráningarlýsingunni.
KAUPÞING
Fj árfestingarbanki
Armúla 13A • 108 Reykjavík
Sími 515 1500 «fax 515 1509