Morgunblaðið - 12.06.1999, Side 72

Morgunblaðið - 12.06.1999, Side 72
MORGUNBLAÐIÐ V 72 LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1999 FRÉTTIR í DAG Mannréttindasamtök innflytjenda STOFNFUNDUR Mannréttinda- samtaka innflytjenda á íslandi og fjölskyldna þeirra verður í dag, laugardag kl. 14 í sal Miðstöðvar nýbúa við Skeijanes, (SVR endastöð leiðar 5) vestan við Reykjavíkur- flugvöll. I fréttatilkynningu segir: „Sam- tökin munu m.a. starfa að beinum hagsmunamálum innflytjendafjöl- skyldna á íslandi en þar er víða pott- ur brotinn og þau munu verða virk í allri umræðu í samfélaginu og gagrýnin á aðgerðir stjómvalda. Stofnfélagar eru þegar um 60 og er öllum einstaklingum og lögaðilum heimilt að verða félagar. Hægt er að skrá sig í samtökin á stofnfundinum eða í netfangi samtakanna: human- iceEhotmail.com." Tilboð óskast í Fjord 24 feta sportbát Báturinn er með 200 hestafla Volvo Penta-vél og er vel búinn tækjum. Upplýsingar gefur Ásgeir í síma 5644626 og 897 7499 Tricity Bendix Þmrkari • Einfaldur en mjög öflugur • Tekur 5 kg. af þurrþvotti • Snýr í báðar áttir • Krumpuvörn • Tvö hitastig • Barki fylgir 19.800 kr. linkaþ'ilir Ivrir |>iirricira !i.4(h) kr. % „ Ú% ' J HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hver þekkir myndlistar- manninn? RUT hafði samband við Velvakanda. Hún sagðist hafa keypt fjögur málverk og væri að reyna að hafa uppi á myndlistarmannin- um. Á myndinni stendur E. Jðnsdóttir og aftan á henni Elísabet Jónsdóttir. Þeir sem geta gefíð upp- lýsingar hafi samband eft- ir kl. 19 við Rut í síma 557 8162. Þáttur í norska sjónvarpinu 7. JÚNI síðastliðinn var sýndur þáttur í sjónvarp- inu í Noregi, svokallaður „stefnumótaþáttur". í þættinum voru þrjár ung- ar stúlkur og bauðst þeim að fara með ungum manni til útlanda. Þær áttu að svara spurningum og sú sem ynni fengi ferð- ina með manninum. Ein stúlknanna var íslensk. Stúlkurnar kynntu sig og þáttarstjórnandinn spurði íslensku stúlkuna um tísku og fegurð ís- lenskra kvenna. Þá sagði íslenska stúlkan að það væri mikO samkeppni milli íslenskra kvenna, allar vildu vera fallegar og flottar, og sagði svo að það skipti engu máli þótt þær hefðu ekkert á milli eyrnanna, þær fengju vinnu ef þær væru falleg- ar. Sem sagt: að útlitið skipti öllu máli. Mér finnst það skömm að segja svona í norsku sjónvarpi og álitshnekkir fyrir íslensku kvenþjóðina og það var mikið hlegið að þessu hér. Fólk tók þessu eins og íslenska kvenþjóð- in væri heimsk. Það er skömm fyrir íslensku kvenþjóðina að svona sé sagt í norsku sjónvarpi. Sigríður Ingvadóttir, Noregi. Götur í Meiahverfi ÞAR sem verið er að lag- færa allar götur hérna í Melahverfinu hvers vegna er þá ekki settur á einstefnuakstur um Mel- haga? Hér er apótek, læknastofur, skólar, sundlaug og pósthús og mikil umferð í kringum þessa staði. Gatnamálayf- irvöld ættu að athugið málið. Melabúi. Tapað/fundið Eyrnalokkur týndist SPORÖSKJULAGAÐUR eyrnalokkur, með áteikn- uðum þremur rósum og tveimur grænum blöðum, tapaðist fyrir utan Skalla, Bónus eða Esso, Reykja- víkurvegi 50 í Hafnarfirði. Skilvís fínnandi hafi sam- band í síma 555 0923. Fjallahjól í óskilum FJALLAHJÓL fannst fyrir rúmum tveimur vik- um við Tæknigarð, Dun- haga 5. Upplýsingar í móttöku í síma 525 4920. Myndavél í óskilum MYNDAVÉL fannst á reiðgötu við Elliðavatn sl. miðvikudag. Upplýsingar í sfcna 553 5394. Brún hliðartaska týndist MÁNUDAGINN 7. júní týndist brún hliðartaska með rennilás. Skilvís finn- andi hafi samband í vinnu- síma 570 1862. Gulur gsm-sími týndist NOKIA 5110, gulur, týnd- ist seinni partinn sl. mið- vikudag á Miklubrautinni frá Grensásvegi að Land- spítalanum. Þeir sem geta gefið upplýsingar hafi samband í síma 553 7690. Brún budda týndist SÁ SEM fann budduna mína með öllum skilríkj- um í Björnsbakaríi við Austurströnd eða við Sundlaug Seltjarnarness sl. laugardag 5. júní kl. 9-10 vinsamlega skiii henni á næstu lögreglu- stöð eða hringi í síma 561 7013. Kvenhringur týndist í Lágmúla KVENHRINGUR týnd- ist í Lágmúla í byrjun maí. Finnandi vinsamlega hringið í 588 4588. Fund- arlaun. Dýrahald Kettlingar fást gefins MJÖG þrifnir og gullfal- legir kettlingar fást gef- ins. Upplýsingar í síma 482 3027. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Tukmakov, Úkraínu, Bur- makin, Rússlandi, og Pa- vasovic, Slóveníu, allir með 6V4 vinning af 8 möguleg- um. STAÐAN kom upp á öfl- ugu opnu móti í Pula í Króatíu sem er að ljúka. Bratovic, Króatíu, var með hvítt, en Barle (2.380), Slóveníu, hafði svart og átti leik. 16. - Bxh2+! og hvítur gafst upp, því eftir 17. Kxh2 - Dh5+ fellur hvíti hrókurinn á dl. Fyrir síðustu umferðina á mót- inu voru þeir efstir Malanjuk og HVÍTUR leikur og vinnur. HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrífar... VÍKVERJI fékk ofanígjöf í les- endabréfi nú í vikunni fyrir pistil sinn um Evrópusöngvakeppn- ina síðastliðinn laugardag. Skoðana- skipti eru af hinu góða og sjálfsagt hefur bréfritari eitthvað til síns máls, en rök hans nægðu þó ekki til að breyta afstöðu Víkverja til „tyrk- neska framlags" Þjóðverja í keppn- inni. Víkverji ætlar sér ekki að fara út í blaðadeilur um þetta mál, enda hefur hann alltaf litið svo á að allir hafi rétt á að hafa sína skoðun á mönnum og málefnum. Víkverji vill hins vegar benda bréfritara á að það var ekki af „þekkingarleysi" á málefnum innflytjenda í Þýska- landi, sem hann setti fram skoðun sína. Víkverji gerir sér fulla grein fyrir vandamálum þessa fólks. En þótt fjórar milljónir manna af tyrk- neskum uppruna búi í Þýskalandi finnst Víkverja ekki réttlætanlegt að Þjóðverjar fari að umbylta rót- gróinni menningu sinni til að þókn- ast þeim. Er ekki eðlilegra að gera þá kröfu til tyrknesku innflytjend- anna að þeir reyni að aðlaga sig að menningu Þjóðverja? Bréfritari varpar fram þeirri spumingu hvort íslenska lagið í keppninni hafi nokkuð frekar átt skylt við hefðbundna alþýðutónlist síns lands en framlag Þjóðverja? Að vísu ekki ef litið er til gamalla ís- lenskra þjóðlaga. En við megum ekki gleyma því að við Islendingar búum á hinu engilsaxneska menn- ingarsvæði og dægurtónlist okkar hefur vitaskuld þróast í samræmi við það. Ný kynslóð íslenskra dæg- urlagahöfunda hefur í vaxandi mæli tileinkað sér þá strauma og stefnur í dægurtónlist sem viðgangast allt í kringum okkur og ekkert við það að athuga að mati Víkverja. Dægur- tónlist á Vesturlöndum, og þar á meðal á Islandi, er sprottin úr jarð- vegi vestrænnar menningar, en ekki sótt í tónlistarhefðir framandi þjóða. Víkverji er hins vegar þeirrar skoðunar að betur hefði farið á því að flytja Eurovision-lagið á íslensku og tekur undir með bréfritara að ís- lendingar hafi þarna „fórnað eigin tungu á altari alþjóðlegrar menn- ingarhyggju," eins og það er orðað. Og Víkverji hefði gjarnan viljað heyra ögn þjóðlegra lag sem fram- lag íslendinga og minnir enn og aft- ur á að ekki sé fullreynt með Geir- mund. XXX VÍKVERJI er stoltur af ís- lenska landsliðinu í knatt- spyrnu þrátt fyrir tapið í Moskvu nú í vikunni. Að tapa eitt núll fyrir Rússum á þeirra heimavelli er eng- in skömm. Þvert á móti hafa strák- arnir okkar, með Guðjón Þórðar- son í broddi fylkingar, gert ótrú- lega hluti á knattspyrnusviðinu og eru komnir lengra í Evrópukeppn- inni en nokkurn hafði órað fyrir og hægt er að gera kröfu til. Víkverji vill ennfremur benda á að ekki er öll nótt úti enn. Baráttan á toppnum er galopin eftir jafntefli Ukraínu og Armeníu og við íslend- ingar eigum eftir heimaleik gegn Andorra, sem reikna má með að við vinnum. Hvað hina leikina tvo varð- ar, gegn Frökkum úti og Úkraínu heima, getur brugðið til beggja vona og farsælast að vera hóflega bjartsýnn í þeim efnum. En hvernig sem allt fer getum við verið stolt af strákunum okkar. Þeir eru þjóðar- sómi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.