Morgunblaðið - 08.12.2000, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Siv Friðleifsdóttir umhverfísráðherra telur .jákvæðan árangur
Gjörið svo vel, nú ætlar umhverfisráðherra að sýna ykkur hvað formaður
Náttúruvemdarsamtakanna er skælbrosandi af ánægju yfir þessu.
Fimm sóttu um starf forstjóra
Hollustuverndar
FIMM umsóknir bárust umhverfís-
ráðuneytinu um starf forstjóra
Hollustuvemdar ríkisins en um-
sóknarfrestur rann út 30. nóvember
síðastliðinn.
Starfið var auglýst laust frá og
með næstu áramótum en frá því í
sumar hefur Leifur Eysteinsson
verið skipaður forstjóri tímabundið
í stað Hermanns Sveinbjörnssonar.
Hermann er nú starfsmaður um-
hverfisráðuneytisins í sendiráði Is-
lands í Brussel.
Umsækjendur um forstjórastarf-
ið eru, i stafrófsröð:
Davíð Egilson jarðverkfræðing-
ur, dr. Ólafur Oddgeirsson dýra-
læknir, Ólafur Pétursson efnaverk-
fræðingur, Þórey I. Guðmunds-
dóttir alþjóðastjórnmálafræðingur
og Þuríður Gísladóttir gerlafræð-
ingur. Davíð, Ólafur Pétursson og
Þórey eru starfsmenn Hollustu-
vemdar; Davíð hefur verið for-
stöðumaður mengunarvamarsviðs,
Ólafur staðgengill forstjóra og Þór-
ey skrifstofustjóri.
Umhverfisráðherra mun innan
skamms skipa í stöðuna til næstu
fimm ára.
íþróttir eru forvarnir gegn vímuefnum
Hengið miða á
forvarnartré
Valsmanna
Knattspymufélagið
Valur hefur að
undanfömu unnið
markvisst að forvömum
gegn vímuefnanotkun og
hélt fund fyrir skömmu um
þau mál. „íþóttir eru öflug
vöm gegn vímuefnum,“
sagði Hrefna Halldórsdótt-
ir sem situr í stjóm Knatt-
spymudeildar Vals.
„Við höfum þegar ýtt úr
vör þremur verkefnum til
þess að efla og vinna að
aukinni starfsemi Vals með
það markmið fyrir augum
að fá foreldra til að beina
börnum sínum að íþrótta-
iðkunum, því með þeim
hætti er sannarlega unnið
gegn þeim möguleika að
þau falli í vímu- eða fíkni-
efnanotkun."
- Hver voru þessi þrjú verkefni?
„Fyrsta verkefnið var fjöl-
skyldugleði að Hlíðarenda undir
yfirskriftinni: Heilbrigð sál í
hraustum líkama - markmið sem
við stefnum að. Annað verkefnið
var opin dagskrá og bar yfirskrift-
ina: Heilbrigð hreyfing að Hlíðar-
enda - íþróttir efla kjark og þor.
Þá var markmiðið að sýna fram á
að íþóttir geta verið góð vöm þeim
sem lenda í einelti t.d. Loks var
svo upplýsinga- og fræðslufundur í
síðustu viku sem haldinn var undir
slagorðinu: Valur gegn vímu og
fíkniefnum.“
-Er það vitað að íþróttir skili
góðum árangri sem vörn gegn
vímuefnum?
„Við styðjumst ekki við neinar
sérstakar rannsóknir á þessu sviði
en við vitum hins vegar að þeir
sem sinna íþróttum gera ekki mik-
ið annað á meðan. Það er líka vitað
að fólk getur ekki bæði verið í
vímu og líka stundað íþróttir, þetta
eru andstæðir pólar ef svo má
segja.“
- Eru margir í Val?
„Við emm öflug en með fleiri
iðkendum væmm við enn öflugri.
Það er markhópur sem við vildum
gjarnan ná til. Við höfúm nú sett
fram hugmyndir um nýjungar til
þess að ná til þeirra sem við teljum
að heppilegt væri að tækju þátt í
íþróttastarfi."
- Hvaða hugmyndir eru það?
„Mitt markmið er að lækka æf-
ingagjöld og ferðakostnað bama
og unglinga sem stunda íþróttir og
sækja mót vegna þeirra."
-Eru það einhverjir sérstakir
hópar bama sem stunda íþróttir?
„Ég tel að nokkur hópur bama
hafi ekki möguleika á að stunda
íþróttir vegna fjárskorts. Þess
vegna tel ég fulla ástæðu til að
gera öllum bömum
kleift að stunda íþrótt-
ir þótt þau komi frá
efnaminni heimilum“
- Getur hið opin-
bera gert eitthvað í
þessumefnum?
„Ég tel að það fjármagn sem
hefur komið frá hinu opinbera til
ýmiss konar meðferðaheimila sé
góðra gjalda vert en ég vil sjá fjár-
magn fara í forvarnir til íþróttafé-
Iaganna.“
-Finnst þér forvörnum ekki
nægilega sinnt?
„Nei, alls ekki. Mér finnst um of
gæta þess sjónarmiðs að taka á
vandanum þegar í óefni er komið
en ekki reyna að koma í veg fyrir
hann. Það verður að breyta þessu
og ég trúi að það sé hægt. Mér
finnst ekki ástæða til að bíða með
að grípa til nýrra ráða. Það er ver-
ið að fjárfesta í hinum og þessum
Hrefna Halldórsdóttir
► Hrefna Halldórsdóttir fæddist
í Reykjavík 25. september 1955.
Hún ólst upp í Hafnarfirði og á
Bjamastöðum í Borgarfirði, lauk
gagnfræðaprófi frá Héraðsskól-
anum í Reykholti en hefúr á síð-
ustu árum sótt mörg námskeið
varðandi rekstur og stjómun
fyrirtækja hjá Endurmenntunar-
stofnun Háskóla íslands og stefn-
ir að námslokum í markaðs- og
útflutningsfræðum á næsta ári.
Hún starfar að ýmsum sérverk-
efnum á sviði markaðsfræða.
Hrefna á fimm böm.
Kappið beri
fegurðina
ekki ofurliði
fyrirtækjum, af hverju ekki að
fjárfesta í æsku landsins?"
- Hvernig vilt þú að foreldrar
komi sínum hugmyndum á fram-
færi um þessi efni?
„Það eru til ótal aðferðir til þess.
Við í stjóm Vals settum t.d. upp
svokallað forvamai-tré þar sem
foreldmm og forráðamönnum,
bömum og öðrum, gefst tækifæri
til að hengja litla miða á greinar
trésins með nýjum hugmyndum
sem miðast að betra lífi. Nú þegar
em komnir fjölmargir miðar í
ýmsum litum á greinar trésins,
sem er í anddyri Valsheimilisins.
Það mega allir hengja hugmyndir
sínar á tréð, hvort sem þeir em Val
eða ekki, aðeins ef þeir láta sig
þetta málefni varða.“
- Hvað ætlið þið svo að gera við
alla þessa miða?
„Éftir áramót verður haldinn
forvarnardagur á vegum Vals. Þá
verðum við í stjóminni búin að lesa
alla miðana markvisst og munum
leggja fram hugmyndir sem okkur
hafa borist á miðunum. Á þennan
hátt geta allir sem einn lagt sitt af
mörkum og komið með hugmyndir
til þess að efla starf Vals og með
_______ þeim hætti unnið að
auknum vímuefnavörn-
um.“
- Hvað er Valur gam-
altfélag?
““„Það verður níutíu ára
hinn 11. maí nk. Séra Friðrik Frið-
riksson var einn af stofnendum fé-
lagsins og enn í dag höfum við kap-
ellu þar sem brjóstmynd af
Friðriki stendur framan við. Við
byrjum alltaf stærri samkomur í
kapellunni með þeirri setningu
sem tileinkuð er séra Friðriki:
Látið aldrei kappið bera fegurðina
að ofurliði. Þessi setning segir mér
að allir geti stundað íþróttir, ekki
bara afreksmenn. íþróttir eiga er-
indi við alla, ekki bara þá sem eru
bestir og fá verðlaun. Við höfum
reynt eftir fóngum að hlúa að öll-
um félagsmönnum. Það er veru-
lega góður andi yfir starfinu í
Rnattspymufélaginu Val.