Morgunblaðið - 08.12.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2000 33
Islandi boðin
aðild að Evr-
ópuráðstefnu
Nice. AFP.
ÞÁTTTAKENDUR í Evrópu-
ráðstefnunni svokölluðu, sem er
samráðsvettvangur hinna
fimmtán aðildarríkja Evrópu-
sambandsins, þrettán ríkja sem
sækjast eftir aðild að því, auk
Sviss, lögðu í gær til að EFTA-
ríkjunum Islandi, Noregi og
Liechtenstein yrði boðin aðild að
ráðstefnunni, sem og Úkraínu
og löndunum á vestanverðum
Balkanskaga.
Evrópuráðstefnan var fyrst
kölluð saman í lok marz 1998 í
því skyni að styrkja pólitískt
samráð núverandi og tilvonandi
aðildarríkja Evrópusambandsins
og til að vera vettvangur hug-
myndasmíði um framtíð álfunn-
ar. Var upprunalegur tilgangur
hennar þó ekki sízt sá, að skapa
ramma fyrir þátttöku Tyrkja í
evrópskri stefnumótun, eftir að
leiðtogar ESB höfðu í árslok
1997 hafnað því að taka Tyrk-
land í hóp ríkja sem gætu hafið
viðræður um aðild að samband-
inu. ísland hefur - ásamt Noregi
- sótzt eftir aðild að ráðstefn-
unni frá því til hennar var stofn-
að, en þrátt fyrir að flestir að-
standendur hennar hafi ekki
haft neitt á móti því gerðist það
ekki fyrr en nú, að samstaða
náðist um að bjóða EFTA-ríkj-
unum þátttöku.
Fundur ráðstefnunnar í gær-
morgun átti að vera táknrænt
upphaf leiðtogafundar sam-
bandsins í Nice, sem standa mun
fram á helgi. Sögðu þátttakend-
ur að það myndi hleypa nýju lífi
í ráðstefnuna að fá Úkraínu,
Balkan- og EFTA-ríkin til liðs
við hana - enda hefur hún afrek-
að lítið frá því til hennar var
stofnað. Með því að fá fulltrúa
allra þessara Evrópuríkja til að
taka þátt væri von til þess að
takast myndi að halda árangurs-
ríkar viðræður um framtíð
Evrópu „eftir Nice“, hefur AFP
eftir ónafngreindum fulltrúa
ESB.
Á leiðtogafundinum í Helsinki
fyrir ári var samþykkt að viður-
kenna Tyrkland sem framtíðar-
aðildarríki, með þeim fyrirvör-
um að þar í landi verði mann-
réttinda-, lýðræðis- og fleiri
réttarríkismálum komið í betra
horf.
Sviss vill inn
- en ekki strax
Hið hlutlausa Sviss, sem lagði
inn umsókn um ESB-aðild í maí
1992 en hefur ekki séð ástæðu til
að endurnýja hana frá því þjóðin
hafnaði aðild að EES-samningn-
um í desember sama ár, hefur
engu síður stöðu „tilvonandi að-
ildarríkis“ á Evrópuráðstefn-
unni. Adolf Ogi, forseti Sviss,
tjáði hinum leiðtogunum á ráð-
stefnunni í gær, að Svisslending-
ar væru áhugasamir um að eiga
samleið með gi'annríkjum sínum,
en lægi þó ekki á að fá fulla aðild
að ESB. Sagði hann ríkisstjórn-
ina taka í fyrsta lagi árið 2003
ákvörðun um hvort „endur-
vekja“ skuli aðildarumsóknina.
Hinn 4. marz nk. verður reyndar
haldin þjóðaratkvæðagreiðsla í
Sviss um hvort hefja beri ESB-
aðildarviðræður. Áhugasamtök
um ESB-aðild Sviss knúðu at-
kvæðagreiðsluna fram með því
að safna nægilega mörgum und-
irskriftum, en stjórnin í Bern -
sem eins og marka má af orðum
Ogis er hlynnt ESB-aðild - telur
hana ekki tímabæra og reiknar
með að tillagan verði felld. Að-
eins eitt ár er síðan tvíhliða-
samningar Sviss og ESB gengu í
gildi og telur stjórnin að flestir
Svisslendingar vilji gefa þeim
meiri reynslutíma.
Andstæðingar alþjóðavæðingar efna til mótmæla
Reuters
Þungvopnaðir óeirðalögrcglumcnn standa vörð þar sem leiðtogafundur ESB hófst í gær.
Miðborg Nice sem
vígvöllur eftir óeirðir
Nice. AFP, AP, Reuters.
ÞÚSUNDUM mótmælenda, sem
létu að sér kveða við upphaf leiðtoga-
fundar Evrópusambandsins í Nice í
Suður-Frakklandi í gær, tókst ekki
að setja dagskrá fundarins úr skorð-
um, en miðbær þessarar friðsamlegu
borgar á Miðjarðarhafsströndinni
vai- sem vígvöllur eftir þriggja tíma
linnulaus átök þeirra við óeirðalög-
reglu.
Um 20 lögreglumenn þurftu að
leita aðhlynningar á sjúkrahúsi, þar
af einn vegna alvarlegra meiðsla, eft-
ir slagsmál við herskáa andstæðinga
hnattvæðingar, anarkista, verka-
lýðsbaráttufólk og fleiri hópa, sem
beittu götusteina- og flöskukasti og
bareflum gegn táragasi, hvell-
sprengjum og kylfum lögreglunnar.
Þegar leikurinn stóð sem hæst fýrir
hádegið í gær barst táragas inn í loft-
ræstikerfi Acropolis-ráðstefnumið-
stöðvarinnar, þar sem leiðtogafund-
urinn fer fram, og sáust þeir Jacques
Chirac Frakklandsforseti og Lionel
Jospin forsætisráðherra hnerra og
nudda augun er þeir vora að undir-
búa „fjölskyldumynd“ ríkisstjórna-
og þjóðarleiðtoganna frá aðildarríkj-
unum fimmtán.
I óeirðunum kviknaði í banka,
skrifstofa fasteignasölu lagðist í rúst
og rúður vora brotnar í fjölda verzl-
ana. Mótmælendumir sem mest
höfðu sig í frammi voru á að gizka
4000 talsins, en þeir voru flestir
Frakkar, ítalir og Spánverjar. Marg-
ir baskneskir aðskilnaðarsinnar voru
í hópnum sem ítrekað reyndi að
brjótast í gegn um skjaldborgina
sem lögreglan hafði slegið utan um
fundarstað leiðtoganna.
Chirac forseti sagði þessar aðgerð-
ir mótmælenda „brjóta í bága við lýð-
ræðishefðir okkar Evrópubúa".
Jospin sagði slíkar ofbeldisaðgerðir
vera „vanvirðingu við þau' gildi sem
við öll viljum standa vörð um“.
I ítalska landamærabænum Vent-
imiglia tókst lögregla á við um 1200
unga ítalska kommúnista, sem var
ekki leyft að fara yfir landamærin til
að taka þátt í mótmælunum í Nice.
Mótmæli gegn hnattvæðingu era
orðin fastur þáttur í alþjóðlegum
leiðtogafundum, eftir að mótmæl-
endum tókst að koma ráðstefnu
Heimsviðskiptastofnunarinnar,
WTO, í Seattle í Bandaríkjunum í
íyrra í uppnám.
Tugþúsundir krefjast afsagnar Joseph Estrada
Hart deilt á fyrsta
degi réttarhalda
Manila. AP.
SÆKJENDUR í réttarhöldunum yf-
ir Joseph Estrada, forseta Filipps-
eyja, fóra hörðum orðum um forset-
ann á fyrsta degi réttarhaldanna.
Þeir sökuðu hann um að fjármagna
óhóflegt lífemi sitt með mútugreiðsl-
um og glæpsamlegri starfsemi. Með-
an á réttarhöldunum stóð kröfðust
tugþúsundir afsagnar Estrada, jafn-
vel þó að hann yrði sýknaður af þeim
ásökunum sem réttarhöldin snúast
um.
Joker Arroyo, einn sækjenda ásak-
aði Estrada um að fela eignir sínar á
bankareikningum undir öðra nafni.
Verjandi Estrada, Estelito Mendoza,
sagði hins vegar að ekki væru nægi-
leg sönnunargögn til að sakfella
Estrada og bola honum burt úr emb-
ætti.
Öldungadeildin á Filippseyjum er
skipuð 22 þingmönnum og þurfa tveir
þriðju hlutar hennar að komast að
þeirri niðurstöðu að Estrada sé sekur
um a.m.k eitt af þeim fjórum atriðum
sem á hann era borin, en forsetinn er
sakaður um að hafa þegið mútur, um
spillingu, brot á stjórnarskrá og að
hafa bragðist trausti almennings.
Svo gæti vel farið að forsetinn nyti
nægilegs stuðnings til að hann yrði
sýknaður. Eftir því var tekið í gær að
sumir þingmannanna vora næsta
áhugalitlir um gang mála og fylgdust
illa með röksemdafærslu lögfræðing-
anna.
Héraðsstjóri segist hafa gefið
Estrada nær milljarð
Málatilbúningur andstæðinga
Estrada hvílir aðallega á málflutningi
héraðsstjórans Luis Singson sem
segist hafa gefið Estrada sem svarar
nær 700 milljónum ísl. króna af hagn-
aði af ólöglega fjárhættuspilinu, juet-
eng“ og um rámlega 200 milljónir ísl.
kr. af tóbaksskattinum.
Verjandi Estrada, Mendoza, kall-
aði Singson lygara og kunnan svindl-
ara og sagði ef einhver væri sekur í
málinu þá væri það Singson.
Fyrsta vitni gærdagsins var fyrr-
verandi yfirlögreglustjórinn, hers-
höfðinginn Roberto Lstimoso sem
segir að Estrada hafi gefið sér fyrir-
mæli um að „samhæfa" juteng-málin
með Singson og hann hafi skilið það
svo að fyrirmælin þýddu að hann ætti
að fara mildum höndum um ólögleg
veðmál.
Yolanda Ricaforte, sem sögð er
hafa. séð um bókhald Estrada í
tengslum við mútur, var einnig kölluð
til en réttarhöldum dagsins lauk áður
en hægt var að spyija hana nokkurs.
Myndir af húsum
hjákvenna til sýnis
Hjákonur Estrada bar á góma í
málaflutningi gærdagsins en því er
haldið fram að hann hafi keypt handa
þeim glæsihýsi fyrir illa fengið fé.
Þingmönnunum vora sýndar myndir
af húsunum, þar á meðal teikning af
einu með svo stóra svefnherbergi að
þar gætu 10-20 fjölskyldur búið að
mati sækjenda.
Það er fyrrverandi leikkonan La-
ami Enriquez sem býr svo vel en hún
er sögð eiga þrjú böm með Estrada.
Heimili hennar státar einnig af litlu
leikhúsi, snyrtistofu og risastóra eld-
húsi.
Sækjandinn Arroyo sagði Estrada
slá einræðisherranum Ferdinand
Marcos við og vera jafnvel enn meiri
þrjótur en hann.
Tilvalin
jólagjöf
■'V’>v;
9.995 kr.
Moulinex matvinnsluvél
500 W, 3 lítra skál
2 hraðastillingar
1,5 lítra blandari fylgir
19 aukahlutir
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is