Morgunblaðið - 08.12.2000, Síða 63
UMRÆÐAN
Streita eða slökun
Landlæknisembætt-
ið stendur fyrir átaki
sem miðar að því að
hjálpa fólki að bæta
líðan sína með aukinni
þekkingu um þætti er
lúta að heilsufari. í
desember verður fjall-
að um gildi svefns og
hvíldar. Allflestir vita
að nægur svefn og
hvíld er undirstaða
góðrar heilsu. En und-
irstaða góðrar heilsu
er einnig að búa við
andlegt og líkamlegt
jafnvægi.
Hvað er það sem
veldur andlegu ójafn-
vægi? Þar koma margir þættir inn í.
Þættir eins og streita, hraði í nú-
tímasamfélagi, kröfur samfélagsins
og ekki síst kröfur okkar sjálfra.
Mörgum finnst þeir ekki hafa næg-
an tíma fyrir sjálfa sig og fjölskyld-
una og ekki það fjármagn til að öðl-
ast þau lífsgæði sem teljast
nauðsynleg. Eru þetta okkar eigin
kröfur eða látum við undan þrýst-
ingi samfélagsins? Þurfum við að
staldra við og skoða okkur sjálf og
endurmeta hvað okkur er mikilvæg-
ast? Fjárhagsáhyggjur og tíma-
skortur geta valdið langvarandi
streitu sem raskar andlegu jafn-
vægi. Sem orsakaþætti má einnig
nefna ástvinamissi, slys, atvinnu-
missi og margt fleira. Ailt ber þetta
að sama brunni og gefur sömu ein-
kenni, bæði líkamleg og andleg. Ber
þar helst að nefna kvíða, depurð,
vonleysi, svefnleysi, pirring, bak-
verk, vöðvabólgu, hjarsláttartrufl-
anir, háþrýsting, næmi fyrir kvefi
og öðrum umgangspestum. Mörg-
um finnst þeir vera þunglyndir og
eru kvíðnir og áhyggjufullir. Þó að
streita geti stundum verið
nauðsynleg þá er hér um lýsingu
á langvarandi streitu að ræða sem
getur orðið skaðleg heilsu fólks.
Mikilvægt er fyrir almenning að
læra að þekkja þessi einkenni og
vita hvert beri að leita eftir aðstoð.
Á að leita til bráðaþjónustu geð-
deilda eða til heimilislæknis? Þjáist
fólk af alvarlegu þunglyndi eða væg-
ari þunglyndisröskunum? Þarf það
lyf til að rjúfa það ferli sem farið er í
gang eða getur fólk með einhverju
móti hjálpað sér sjálft?
Fyrir utan að fá
stuðning fjölskyldu,
vina og sérfræðinga er
sjálfshjálpin mjög mik-
ilvæg.
Það að geta hjálpað
sjálfum sér til að rjúfa
óæskilegt ferli sem
getur leitt til þess að
daglegt líf fer úr
skorðum. í byrjun þarf
að greina það sem er
að og ekki er síður
mikilvægt að viður-
kenna vandamálið íyr-
ir sjálfum sér. Við get-
um kallað það að öðlast
innsæi. Síðan er að
finna leiðir til úrbóta. Auðvitað er
það mjög misjafnt hvað það er sem
hentar hverjum og einum. Sjálfs-
hjálpin byggir á því að gera sér
grein fyrir vandamálinu og síðan að
finna þær leiðir sem henta til að
rækta sál og líkama.
í því samhengi vil ég nefna slökun
sem eitt úrræði. Slökun er andstæða
streitu og leiðir til hjöðnunar á
streituástandi. Jákvæð áhrif slökun-
ar eru; minni spenna og kvíði, aukið
jafnvægi og viðnám gegn streitu,
aukinn einbeitingarhæfileiki, betri
heilsa og bætt mannleg samskipti.
Slökun gefur hvíld, frið og endur-
næringu. Með slökun er einnig hægt
að efla jákvæða þætti í fari einstakl-
ingsins sem er ekki síður mikilvægt
þar sem margir eru fastir í nei-
kvæðu hugsunarferli. Ótal margar
aðferðir eru til að stunda slökun og
má þar nefna djúpslökun, innhverfa
íhugun og jóga. Slökun hefur já-
kvæð áhrif líkamlega og andlega en
leysir í sjálfu sér ekki vandamál
fólks heldur gerir það að verkum að
það er betur undir það búið að tak-
ast á við daglegt líf. Slökun getur
ásamt heilbrigðu líferni, nægum
svefni, hollri fæðu og nægri hreyf-
ingu aukið lífsgæði fólks. Mikilvægt
er að finna þá leið sem hentar hverj-
um og einum og stunda slökun
reglulega, minnst einu sinni á dag.
Oft er það ekki tímalengdin sem
skiptir máli heldur það að hafa náð
tökum á slökuninni og þar með geta
hratt og örugglega komið sér í það
ástand sem gefur líkama og huga
hvíld og endumæringu.
Desember
Desember, segír
Sigríður Hrönn
Bjarnadóttir, er eflaust
sá mánuður ársins sem
veldur mörgum streitu.
Desember er eflaust sá mánuður
ársins sem veldur mörgum streitu
en það er sá tími sem ætti að veita
sem flestum ánægju og frið. Vil ég
því gefa þeim sem áhuga hafa leið-
beiningar um eina slökunaræfingu
sem hægt er að framkvæma hvar
sem er og tekur stuttan tíma.
Byrjaðu á því að taka af símann
og slökkva á farsímanum. Einnig er
gott að láta fjölskylduna eða starfs-
félaga vita af því að þú vilt næði í
smá stund.
Þú skalt koma þér þægilega fyrir
þar sem þú ert, annaðhvort með því
að sitja í þægilegum stól eða að
leggjast niður.
Lokaðu síðan augunum eða hall-
aðu þeim aftur.
Dragðu síðan djúpt andann og
andaðu svo rólega út. Dragðu aftur
djúpt andann, haltu andanum niðri í
smá stund... og andaðu síðan rólega
út aftur, tæmdu alveg lungun.
Þú finnur hvemig slökunin færist
yfir þig, hver útöndun dýpkar slök-
unina. Slökunin færist yfir allan
líkamann, frá höfði niður í háls og
axlir, þaðan út í handleggi. Þú finn-
ur að friður og ró færist yfir þig.
Með hverjum andardrætti slakar
þú betur á, slökunin færist yfir í
brjóstkassa og bak, niður í fætur.
Líkaminn verður þyngri og
þyngri, þú getur einnig hugsað þér
að þú svífir niður eins og laufblað,
lengra og lengra.
Leyfðu þér að njóta riðar og ró í
smástund...
Þegar þú ákveður að koma til
baka byrjar þú á því að hreyfa var-
lega útlimi, teygja síðan á öllum
líkamanum og áður en þú opnar
augun veist þú að þér líður vel og
hugurinn er skýr og tær.
Höfundur er hjúkrunarfræðingur.
Sigríður Hrönn
Bjarnadóttir
ppnunum
FÖSTODAGHKg. DE8EMBER’2Ö0ð 83.
HEIMSMYNDIR
AGFA í$>
Heimsmyndir Lækjargötu, 5691550 » Heimsmyndir Mjódd, 5691570
Hí i
wmá
II H'-BÍ
%A. k *3- f*: ' Jt
KÓR ÍSLENSKU ÓPERUNNAR
fclrtgar úr
S i n íó n í u h 1 j ó m s v c i t í s 1 a n d s
Krislinn Sigmundsson
í htutvcrkijr
Lailghoitskirkja laugardaginn 9. dcs. 2000 kl. 16.00
sunnudacinn 10. dcs. 2000 kl. 16.00
Mióaveró kn 2.400
Forsala i ÍSLENSKU ÓPERUNNI
alla virka daaa trá írá 15.00 - 19.00 - sími 511 4200
og í Langholtskirkju við innganginn
cftir Fclix Mcndclssohn
aðrir cinsongvarrtr:
Ilulda Björk Garöarsdóttir
Nanna María Cortes
Garðar Thór Cortes
Stjórnandi:
Garðar Cortes