Morgunblaðið - 08.12.2000, Síða 73
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
Jónína Ingvadóttir, VISA íslandi, Kristinn A. Stefánsson og Stefán Stef-
ánsson, Rauðará, Sigurvin Gunnarsson, Klúbbi matreiðslumeistara, og
Svanhildur Konráðsdóttir, Reykjavík - menningarborg 2000.
Rauðará veitingahús
nóvembermánaðar
í TILEFNI þess að Reykjavík er
nienningarborg Evrópu árið 2000
hefur Klúbbur matreiðslumeistara í
samvinnu við Reykjavík - menning-
arborg Evrópu árið 2000 og VISA
Island staðið fyrir vali á veitinga-
húsi hvers mánaðar út árið 2000.
Allir gestir veitingahúsa um land
allt geta tekið þátt og velja sitt veit-
ingahús mánaðarins með tilliti til
gæða matar, þjónustu, umhverfis,
verðlags og annars sem áhuga vek-
ur. Gestir greiða atkvæði sitt á
heimasíðu Klúbbs matreiðslumeist-
ara, icelandic-chefs.is, eða senda
svarseðil sem birtur er í Morgun-
blaðinu í lok hvers mánaðar. I árs-
Sjálfstæðisflokkurinn
í suðurkjördæmi
Fundur með
sveitarstjórn-
armönnum
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins, og
Geir H. Haarde, fjármálaráðherra
og varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, halda fund með sjálfstæðis-
mönnum í sveitarstjómum hins nýja
suðurkjördæmis laugardaginn 9.
desember kl. 12 á Hótel Selfossi.
Þeir flytja ávörp um stöðu lands-
mála og að því loknu munu fundar-
menn skiptast á skoðunum og fjalla
um sveitarstjórnarmál, samskipti við
ríkisvaldið og annað sem á brennur.
Reiknað er með sveitarstjórnar-
mönnum allt austan frá Hornafírði
og vestan úr Sandgerði.
lok verður síðan valið veitingahús
ársins 2000.
Flest atkvæði í nóvember hlaut
Rauðará og er því valið veitingahús
nóvembermánaðar. Þau veitinga-
hús sem hlutu næstflest atkvæði
voru: Lækjarbrekka, Argentína og
Humarhúsið.
Dregið hefur verið úr nöfnum
þeirra sem völdu veitingahús nóv-
embermánaðar og hljóta eftirfar-
andi þátttakendur málsverð fyrir
tvo á Rauðará: Kristín Magnúsdótt-
ir, Unufelli 23,111 Reykjavík,
Kristján Sigurðsson, Austurberg
20, 111 Reykjavík og Páll Eiríks-
son, Álftamýri 8,108 Reykjavík.
AB-Mjöl sækir
um starfsleyfi
EFTIRFARANDI athugasemd
hefur borist Morgunblaðinu
vegna fréttar, sem birtist á
þriðjudag:
„I frétt um kjötmjöl í blaðinu [á
þriðjudag] er sagt að rekstri kjöt-
mjölsverksmiðju AB-Mjöls ehf. í
Borgarnesi hafi verið hætt.
Hið rétta er að reksturinn var
stöðvaður í maí s.l. vegna athuga-
semda við mengun frá verksmiðj-
unni.
Unnar hafa verið áætlanir um
endurbætur á verksmiðjunni og
sótt hefur verið um starfsleyfi fyr-
ir hana.
Vonast er til að reksturinn hefj-
ist að nýju þegar nauðsynlegar
endurbætur hafa verið fram-
kvæmdar, enda er úrvinnsla á slát-
urúrgangi nauðsynlegur þáttur í
sorphirðu svæðisins.“
Námskeið um
jólakvíða
SR. SIGURÐUR Pálsson, sóknar-
prestur í Hallgrímskirkju og Stefán
Jóhannsson MA í fjölskylduráðgjöf
bjóða upp á námskeið um kvíða,
spennu og sektarkennd tengd jólum
sem haldið verður í Hallgrímskirkju
föstudagskvöldið 15. desember kl. 19
til 22.
Námskeiðið fjallar um sjálfshjálp-
arleiðir til að bregðast við þeim til-
finningum sem upp koma við undir-
búning jólahátíðar, segir í frétta-
tilkynningu. Rætt verður um tilgang
jólanna og hvernig við getum öll átt
gleðilegjól.
Skráning er á ráðgjafastofu Stef-
áns Jóhannssonai'.
-----*-+-*---
Hátíðarfundur
Parkinson-
samtakanna
PARKINSON-samtökin á íslandi
halda sinn árlega hátíðarfund laug-
ardaginn 9. desember kl. 12 á hádegi
í Kiwanishúsinu við Engjateig 11.
Félagsmenn eru vinsamlegast
beðnir um að tilkynna þátttöku í
síma samtakanna eða til Nínu, Jóns
og Óskars.
-----UH------
Sigurður
sýnir málverk
SIGURÐUR Hallmarsson heldur
málverkasýningu í Safnahúsinu á
Húsavík, en hún verður opnuð í dag,
föstudaginn 8. desember, og stendur
til 17. sama mánaðai'.
Sýningin verður opnuð kl. 17 í dag
og er opin til kl. 21, en aðra sýningar-
daga er opið frá kl. 13 til 19.
-------------
Handverks-
markaður
í Garðatorgi
HANDVERKSMARKAÐUR er
haldinn í Garðatorgi, Garðabæ,
hvern laugardag fram að jólum,
og er markaðurinn opinn frá 10-
18.
Þar er handverksfólk með sína
muni til sýnis og sölu. Þar ber að
líta góðar og ódýrar jólagjafir t.d.
húfur á börn, merkt handklæði,
myndir, trévörur, postulín,
prjónavörur, leirmunir, skart-
gripir, glervörur ásamt ýmsu
öðru.
Notíð þægindin
Notaleg staeði í sex bílahúsum bíða þín
í jólaumferðinni.
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2000 78 *
Dumb Dumber uideóspóla fylgir með
Jgæz. ÉHk kg
FERSKAR KJÖTVÖRUR
tandonlamti
& .„799.-
donsK iitrarkæfa
jsm
115 g
12ð
99
stk
vaniilu • súkkulaði
mjukis ÆQQs
ulaði • pecant/karameHu
kókos ísterta AIQ-
999> “TI
Jólaávextir - mikið úrval
hiariöiiiijn