Skírnir - 01.01.1879, Qupperneq 106
106
AUSTURRÍK.I OG UNGYERJALAND.
upp fyrir frelsi sínu 1848. J>egar dregiS hafSi til sátta vi&
Austurríki 1867, voru honum gefnar upp sakir, og fór hann þá
heim til fósturjaröar sinnar. Hann komst þegar á þing, og eptir
lát Frants Deaks var hann fulltrúi frá hans kjörþingi.
Rússland.
Efniságrip: Hvað Rússar hafa afrekað með herförinni suður á Balkansskaga..
— «Zarinn» og þjónar hans. — Af gjöreyðöndum, morðræðum þeirra og-
morðum; banatilræði við keisarann. — Fornleifar á Austurrússlandi. —
Drepsóttin.
«Vondir menn eru í hendi hans,
hirtingarvöndur syndugs manns.»
J>etta má vel heimfara upp á Rússa og syndarann í Mikla-
garöi. Allir vita, aS það hefir veriS meir af ágirnd eða drottn-
unargirnd enn góSvilja, er Rússar hafa ráSizt á Tyrkjann og
J>ótzt ætla aS leysa trúbræöur sina úr illum fjötrum. Menn
eiga eins bágt meS nú sem fyr aS trúa því, aö Rússar kenni í
brjóst um , hvernig farið er me8 menn — svo óþyrmilega og
böSulslega, sem þ>eim er tamt aS fara meS jþá alla heima hjá
sjer sem J>eir gruna um óhollustu viS sig, eSa verSa kærSir um
óleyfileg orS eSa gjörSir í gegn enu «helga» valdi, sem ríkir á
Rússlandi.*) En hefir þeim þá ekki veriS alvara, þegar þeir
hafa látizt fara krossfarir móti Tyrkjanura ? kynnu menn a&
segja. Ef þ>aS væri aljþýSan á Rússlandi, svo blind sem hún
er og hjátrúarfull, sem hefSi ráSiS herförunum, þ>á mætti vel
svara, aS hjer hefSi hugur fylgt máli, en öSru gegnir um mennt-
*) Granville-Murray, ágætur rithöfundur, sem hefir ferðazt á Rúss-
landi og skrifað lýsing á þegniífi Rússa og hugsunarháttum, segist
hafa talað þar við ymsa menn, sem hafi á dögum Nikulásar keisara
horft á, að konur voru barðar til dauðs með kaðalsvipum, fyrir það
að þeim hefði hrotið æsingarorð af munni í gegn stjórn keisarans.