Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 46
44
BÚNAÐARRIT
hlöður sem rúmuðu 1585839 m3. Af því voru 848000
m3 byggðar eftir 1920, en hitt var frá eldri tíma, og
sumt frá því fyrir aldamót. Síðan hefur verið bætt
við hlöðurúmið nálægt 700000 m3, svo allt hlöðurúmið
ætti nú að vera yfir 2 milljónir m3.
Vafalaust eru þessar tölur þó of háar. Ber hvort
tveggja til að meira eða minna af elztu hlöðunum er
gengið úr sér og búið að rífa þær eða endurbvggja,
og hafa þá þær lilöður verið taldar sem viðbót, sem
í stað þeirra hafa komið, án þess að þær, sem niður
lögðust, væru felldar niður úr tölunni. Hve mikil
brögð eru að þessu, veit maður ekki, en án efa eru
þau töluverð. En svo er líka hitt, að við samfærslu
og endurbyggingu peningshúsa hafa oft orðið óþarfar
og ónothæfar hlöður, sem áður en húsin voru færð
saman komu að góðum notum. Sumar slíkar hlöður
standa enn, sem góð geymsluhús, en aðrar hafa
verið rifnar, ef nota hefur þurft efni úr þeim til
annars. Loks er svo rétt að benda á það, að hlöðu-
rúm notast aldrei til fulls til heygeymslu, heldur
verður ætíð meira eða minna rúm efst í hlöðunni,
sem hey er ekki látið í. Og enn hafa ýmsir, sem bvggt
hafa síðustu árin, byggt stærra en þeir þurftu, til
þess að hafa hlöðurúm fyrir töðuna af nýrækt þeirri,
er þeir ætla sér að gera á næstu árum. Þótt svo geti
virtst sem nóg hlöðurúm sé til yfir svo til alla
töðuna, þá notast það ekki þannig, enda er vitað um
bæi hér og þar um landið, sérstaklega í Húnavatns-
og Skagafjarðarsýslum, sem hvergi nærri hafa hlöðu-
rúm fyrir alla töðuna. Vöntun á hlöðurúmi yfir þurr-
heyið er þó óveruleg. Allt öðru máli gegnir með hlöðu-
og gryfjurúin fyrir votheyið.
Árið 1940 var rými allra votheysgryfja 51774 m3
og síðan hafa verið byggðar nýjar gryfjur, svo eftir
því ælti að vera til gryfjurúm fyrir nálægt 135 þús.
m3. Ekki má þó mikið hafa gengið úr sér af eldri