Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 64
62
BÚNAÐARRIT
lítil skil og öðru alveg sleppt, sem þó hefði verið á-
stæða til að rekja nokkuð. Má þar nefna sölu á fram-
leiðsluvörum bændanna, um verzlun þeirra, vélakaup
o. m. fl. En öllu þessu má gera skil síðar, ef ástæða
þykir til, svo það er geymt en ekki gleymt. Ég vil vona
að við lestur greinarinnar verði mönnum ljósara, að
bændurnir hafa ekki setið auðum höndum þennan
aldarhelming. Við framkvæmdirnar, sem þeir hafa
gert, hafa þeir notið aðstoðar þess opinbera með
styrkjum og lántökum, og skulda nú alls í árslok 1949
nái. 70 millj. vegna framkvæmdanna. Enn fremur vona
ég að menn sjái, hve bændur eru misjafnt á vegi
staddir með umbætur á jörðum sínum. Allir óska
])eir ýmsra þæginda í húsakosli og aðbúnaði öllum
innan húss og utan, en til þess að geta staðið undir
þeim árlega kostnaði, sem slíkum þægindum fylgir,
þurfa þeir að hafa það stór hú og það mikið af selj-
anlegum afurðum frá búnunum, að þeir geti greitt
fyrir kol í miðstöðina, rafmagn o. s. frv.
Á fjölda jarða eru heyskaparmöguleikarnir ekki
nægjanlegir til þess að búið geti verið nógu stórt.
Fyrir því þarf á næstu árum að leggja þá undirstöðu,
sem þarf til þess að búið geti stækkað. Og hún verður
að leggjast með meiri ræktun, stækkun túnanna, og
bættri rækt þeirra. Á það ber að leggja höfuðáherzluna
1 starfi næstu ára. Takist að stækka töðuvöllinn um
2 þús. ha á ári, þýðir það 80 þús. hesta töðuauka, en
á honum má fóðra 40 þús. fjár, sem gefa af sér
brúttó yfir milljón krónur, og sem ekki kosta bónd-
ann aukna vinnu við framleiðsluna, nema liluta úr
árinu. Og þegar sú stækkun hefur orðið árlega í nokk-
ur ár, þá skapast möguleiki til að standa undir
þægindunum, sem allir óska að fá, en margir geta
ekki risið undir nú.