Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 269
BÚNAÐARRIT
267
flokkunum raðað þannig, að efst eru kýr, sem fá I.
verðlaun af 1. gr., ef einhverjar eru, þá I. verðlaun af
2. gr. o. s. frv. Auk þess er reynt að raða kúnum inn-
an hvers flokks ei'tir gæðum, þannig að bezta kýrin sé
efst. Undantekning frá þessu er, að kúnum, sem fá I.
verðlaun af 4. gráðu, er raðað eftir aldri, þannig að
efst er höfð elzta kýrirt, þá sú næstelzta o. s. frv.
Hér skal nú lcitasl við að kynna niðurstöður sýn-
inganna í hverju einstöku félagi:
1. Nf. Reynishverfis, Hvammshreppi, V.-Skaftafells-
sýsln. í Reynishverfi hcfur skýrsluhald verið al' og til
um langan aldur. Núna fyrir þremur árum var félagið
endurreist, og birtast því hér niðurstöður um afurðir
kúnna aðeins í 2 ár. Hér skal því engu slegið föstu um
það, hve miklir kynbótagripir einstakar kýr eru í fé-
laginu, en hitt er víst, að í Reynishverfi eru margar
fallegar kýr, og virðast álitlegustu systrahóparnir vera
undan Jökli frá Loftsölum, Molda frá Dyrhólum og
Al)is Jökulssyni frá Suður-Götum.
2. Nf. Bæjarmanna, Hvammshreppi, V.-Skaftafells-
sýslu. Hér eru mjög efnilegar nautsmæður í Skamma-
dal og Skagnesi. Þær eru flcstar eða allar ættaðar frá
Loftsölum, og það er nautið Glæsir líka, sem þar er
notað. Það er enginn vafi á því, að á Loftsölum hafa
verið ágætar kýr og eru þar ennþá, cn þó er Glæsir
alls ekki eins vel valinn og hægt liefði vcrið, ef þar
liefði verið beitt fyllstu fyrirhyggju. En ef Glæsir reyn-
ist vel, þá hefðu mörg félög hag af því að sækja naut
undan beztu kúnum í félaginu.
3. Nf. Dyrhólahrcpps, V.-Skaftafellssýslu. Þetta er
eitt af elztu nautgriparæktarfélögum landsins, og
hefur það nú í mörg ár starfað með blóma. Þar er
nú eftir minu hyggjuviti einhver ræktaðasti og galla-
minnsti kúastofn landsins. Á seinni árum hefur Skjöld-
ur frá Dyrhólum verið mesti happagripurinn. Af 29
kúm, sem fcngu þar I. verðlaun, voru 19 dætur Skjald-