Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 326
324
BÚNAÐARRIT
því sem verð kynbótagripa hækkar, vex freistingin
til að fegra sina gripi, til þess að skapa þeim eða af-
kvæmum þcirra markað. Til þess að fyrirbyggja, að
getsakir í þá átt geti komið til greina er þetta auka
eftirlit sett á fót og framkvæmt.
Það er rétl að undirstrika það, að auka eftirlitið
árið 1951 benti hvergi á, að menn reyndu að fegra
skýrsluhaldið sér í vil. Því verður nú haldið áfram
1952 og þá tekin nokkur fleiri heimili með en voru
síðastliðið ár.
Vcl ættaðir nautkálfar eru nú orðið seldir á 2000—
5000 krónur nýbornir. Ýmsum þykir það hátt, og má
vera, að svo sé, meðan ekki er meiri fesla í ákveðnum
kynstofnum en nú er, en þó ber þess að gæta, að mis-
munur á arðsemi okkar beztu kúa og stritlanna er yfir
5000 kr. á ári, og er þá verð nautkálfsins, sem góður
reynist, fljótt að koma.
Og systrahópa hér á landi hcf ég horið saman, sem
á var að meðaltali 2732 kr. arðsmunur á ári hverju.
I ráði er, að 1952 verði byrjað að gera samanburð
á dætrum ýmissa þeirra nauta, er liklegust eru talin
á Suðurlandi. Vcrða systrahóparnir, sem saman á að
bera, hafðir á sama stað undir sams konar skilyrð-
um, og gefið eins og réttast má telja, að gert sé. Eru
líkindi til jjess, að Laugardælir, sem eru eign bænd-
anna sjálfra — Kaupfélags Árnesinga — verði teknir
til J)essa og samanburðarstöðinni komið þar á fót.
Ríkið hefur vcitt 225 j)ús. kr. á árinu 1952 til að koma
búinu af stað.
Vonandi blessast þessi fyrirhugaða samanburðar-
stiið, sýnir mönnum mun systrahópanna, ekki aðeins
hvað nythæð og fitumagn mjólkurinnar snertir, held-
ur líka, hvernig er að mjólka þá, hvernig j)eir selji,
hve gott er að festa í j)eim kálf og fl„ sem ekki verður
borið saman, nema að hafa systrahópana saman á