Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 56
54
B Ú N A Ð A R R I T
1930 1940 1950
Gullbr.- og Kjósarsýsla: Áttu 1— 5 kýr 58,1 55,6 62,0
— 5—10 — 30,7 26,7 20,0
— 10—20 — 7,9 12,5 13,6
— yfir 20 — 3,3 5,2 4,4
Tölurnar fyrir árin 1930 og 1940 eru teknar eftir
lýsingum fasteignamatsmanna sömu ár og sýna kúa-
búin kringum þau ár, en bæði fasteignamötin stóðu
yfir fleiri ár, og því ekki um sama ártalið að ræða
alls staðar, enda þá gefið upp „meðaltal“ nokkurra
ára. Talan 1950 er aftur tekin eftir framtölum bænd-
anna sjálfra.
Hrossafjöldinn kemst árið 1944 upp í 61873, en
þeim hefur fækkað síðan og eru nú komin niður í
nærri 41 þúsund. Vafalaust eru hrossin fleiri en
skýrslur segja, og veldur hvort tveggja, að í hrossa-
sveitunum munu ýmsir fylgjast illa með tölunni og
ekki vita vel hver hún er. Sést þetta glöggt á því,
þegar menn allt í einu heimta hross — hryssu —
sem búið er að vanta í fleiri ár, og þá með 2—3
tryppum. Slík hross hefur eigandinn ekki getað talið,
þó hann hefði viljað. Dæmi þessu lík koma fyrir
árlega, og sanna að hrossatalan getur ekki verið rétt.
Þá kemur það og til, að einstaklingar, sem eiga eitt
hross, gleyma oft að telja það. Ekki þykir mér ástæða
til að rekja á sama hátt breytingar bænda á hrossa-
eigninni og ég hef gerl með nautgripina, en til þess
að menn sjái, hve misjöfn hún er eftir sýslum, set ég
hér hve mörg liross eru á meðaljörð (byggðri) í sýslu
liverri:
Borgarfjarðarsýsla .............................. 12
Mýrasýsla ....................................... 14
Snæfellsnessýsla ................................. 8
Dalasýsla ........................................ 9
Barðastrandarsýsla ............................... 4
Vestur-ísafjarðarsýsla ........................... 3
Norður-ísafjarðarsýsla ........................... 3
Strandasýsla ..................................... 5