Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 92
90
BÚNAÐARRIT
fjögur, sem bætir það upp með því að hafa þrjú heimili
undir 10 lcg.
Þegar þessi athugun er gerð er búið að slátra úr
þessum fjórum hreppum 6584 dilkum. Einhverjum
eflirhreytum er enn óslátrað, ca. 100—200 dilkum;
að því leyti geta niðurstöðutölurnar breytzt.
Af þessum 6584 dilkum fara i I. fl. 3524, í II. fl.
2110 og í III. fl. 950, þ. e. 53y2% í I. fl., 32% í II. og
14%% í III. fk í Lóni og Mýrum er flokkunin lík, um
64% í I. fl. og 10% í III. fl. En Nes 47% í I. fl. og
16,7% í III. Suðursveit 41,14% í 1. fl. og 20,15 i III. fl.
Hlulfallslega við vigtina flokkast betur á Mýrum en
í Lóni og betur í Nesjum en i Suðursveit.
Að þessu hef ég aðallega haldið mig við heildina
og sveitirnar, en farið litið út í afkimana. En í sam-
bandi við matið, get ég ekki stillt mig um að líta til
einstaklinganna.
Bezta mat i Lóni — fyrir utan heimilið, sem hafði
vigtina 17,25, sem var 100% — var 80,9% í I. fl. og
2,6% í III. fl. með jafnaðarvigt 14,58 kg, sem er mjög
gott eftir okkar mælikvarða. Lömbin frá þessu heimili
voru 136 að tölu. Að mínum dómi voru þessi lömb
jafnaðarlegast bezt vaxin og fegurst allra lamba, sem
komu í sláturhúsið í haust. Lélegast mat í Lóni er
17,2% í I. fl. og 51,6% í III. fl. Hér er útigangurinn
að verki. Það horfði illa ef allir væru eins, og þó eru
þessi lömb 10,22 kg, sem ekki er langt frá jafnaðar-
vigtinni á öllu svæðinu 1930, sem var 10,58 kg. Þá
hafði helmingur allra lambanna eða rúmlega það,
farið í III. fl. Þá bjargaði, að allt kjötið var saltað
í tunnur og matið aðallega miðað við þungann, en
ekki kjötgæðin. Það hefði þá þótt saga til næsta
bæjar, ef 14 kg kropp liefði verið kastað í úrkast eða
III. fl., eins og nú kemur fyrir.
Á Mýrum er bezt mat 76% í I. fl. og 5,3% í III. fl.
með vigtina 12,44 kg. Samanborið við þungann er