Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 185
BÚNAÐARRIT
183
Orsakirnar eru: lwlin, sem víöa kom ekkert upp úr,
annars staðar hýjungur, og á nokkrum stöðum sæmi-
legur síðari sláttur, kuldarnir, sem héldu klaka í jörð
þar til í ágúst og september (síðast varð vart við klaka
í skurðgröfuruðningi 8. sept.) og orsökuðu, að snjór
liclzt í lautum og brekkum í túnum fram í ágúst
(Brekku í Mjóafirði 4. ágúst, Skeggjastöðuin, Fellum,
6. ágúst), og þurrkarnir, sem gerðu, að áburður nýltist
lítt og vatn vantaði, svo að tún brunnu hér og þar.
Annars varð þurrkurinn til þess, að vatnsból þrutu
viða á Suðurlandi, og varð að sækja vatn langar leiðir
og sums staðar á aðra bæi.
Ekki er vitað, hve miklu töðufengurinn er minni en
venjulega, en líklegt tel ég, að það nemi frá %—%•
Einstaka sveitir telja, að ekki hafi fengizt nema hálft
töðufall, en sem betur fer eru þær fáar. Valllendi allt
spratt illa og sums staðar mjög illa (Rangárvallasýslu,
Skagafirði o. v.), og er líklcgt, að það komi fram á
beitar og útigangspeningi í vetur, sérstaklega ef krafst-
ursjörð verður. Hrossin gengu líka liart að jörðinni í
harðindunum í fyrra vetur, og sér þess vott víða í hög-
um, að þeir náðu sér ekki í sumar.
Brokflóar til fjalla og áveituengjar, scm fcngu nægi-
legt vatn í vor, spruttu vel. Nokkrir bændur hyrjuðu
heyskap utan túns og fengu sér með því golt útliey
utan aðalheyskapartímans og lengdu með því l)jarg-
ræðistímann. Slegið var meira af engjalöndum, sér-
staklega áveitulöndum, en gert hefur verið mörg und-
anfarin ár .Víða var á þeim ágætis slægja (Arnar-
bælisforir, Oddaflóð, Húsahakkaforir, Frámengjar o. s.
frv.). Margir bændur fengu þar engjar lánaðar, og nýtl-
ust þær því af fleirum en þeim, sem áttu þar slægjur.
Talið er, að úr Arnarbælisforum hafi verið heyjað um
30000 hestar, eða upp undir V20 af öllum útheyskapn-
uin eins og hann hefur verið undanfarin ár. Úlhey-
skapurinn varð meiri en undanfarin ár, og er líklegt,