Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 93
BÚNAÐARRIT
91
þetta gott mat. Á Mýrum er matið mjög áþekkt hjá
flestum. Hins vegar finnast mér lömbin þaðan í ár
tæplega eins löguleg og í fyrra. Lélegast mat þar var
43,5% í I. fl. og 20,5% í III., sem er næstum nákvæm-
lega matið í Suðursveit, þó heldur betra, þvi þar er
meðaltalið 41,14% í I. fl. Vigt þessara lamba var 10,96
kg, sem einnig er betri en meðalvigt í Suðursveit,
])egar nýrnamörinn er dreginn l'rá, en hann var tekinn
iir þessum lömbum.
í Suðursveit er hezt mat 79,4% í I. og 1,6% i III. fl.
með jafnaðarvigtina 14,36 kg. Þetta heimili á alltaf
feit og stór lömb, sem bera langt af i Suðursveit hvað
það snertir, en að mínu áliti ekki að sama skapi vel
vaxin. Lélegast mat þar er 2,4% i I. og 64% í III. fl.
með vigt 10,90 kg, og fleiri eru mjög vondir, þó þetta
taki lit yfir allt.
í Nesjunuin veltur á ýmsu, eins og reyndar víða.
Þar er bezt mat 79,5% í I. fl. og 0,9% í III. fl. með
vigtina 13,16 kg. Þetta er eitthvert bezta matið þegar
þungans er gætt og lömbin 112 að tölu. Mörg af þess-
um lömbum voru mjög fjárleg. Það kveður við annan
tón þegar litið er á hinn endann, þá er 3,1% í I. fl. og
56% i III. f]. með jafnaðarvigtina 9,81 kg. Það má sama
segja um Nes og Suðursveit, að margir eru vondir, en
hér get ég aðeins þeirra lélegustu. Ég nefni ekki nöl'n
þeirra. Ég veit að þeir gera ekki að gamni sínu að
eiga svona léleg lömb, en það þarf að segja þeim til
í mildum kærleika, því eitthvað er að, sem þeir ekki
sjá eða ráða við og ættu að leita ráðlegginga og
hjálpar hjá þeim, sem betur gera.
Arnór Sigurjónsson varpar þeirri spurningu fram
í Árbók landbúnaðarins, hvort eigi muni rétt af slát-
urhúsunum, að hætta að taka á móti þeim dilkum,
sem álítast undir 12 kg. Þá yrðu mörg lömbin hér,
sem vísa yrði frá skurðarborðinu. Og lambagrisling-
unum, sem frá væri vísað, vill hann slátra heima, eða