Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 299
BÚNAÐARRIT
297
15. Dætur Sólbrands f. Sólheimum 4, J>ar af með 1. og 2. gr. 2
16. — Þáttár frá Kluftum 4, 2
17. — Búra frá Reykjavöllum .. 4, — 2
18. — Molda frá Dyrhólum .... 4, 0
19. — Bjarts frá L.-Reyltjum 4, 0
20. — Hvanna, Hrunamannahr. . 4, 0
Lengra verður ekki þessari upptalningu hal.dið, en
þó má benda á það, að af I. verðlauna kúnum á Huppa
á Kluftum 69 barnabörn, eða tæplega fjórða hlutann.
Þá er raunar Repp talinn með sem sonur hennar, en
það er eðlilegast, þar sem hann er það skyldleikarækt- .
aður, að blóðskyldleiki lians við Huj)])u ætli að vera
sá sami og hann væri sonur hennar. Ef reiknað er ein-
göngu með þeim kúm, sem hafa fengið I. verðlaun af
1. og 2. gráðu, en það eru kýrnar, sem liugsaðar eru
sem nautsmæður, verða dætur Skjaldar hlutskarp-
astar, 13 að lölu, þá Mánadætur 7, þar næst Repps-
dætur 6, siðan Kluftadætur 5., þá Jökulsdætur og
Hrólfsdætur 3, o. s. frv., en 22 þeirra eru barnabörn
Huppu á Kluftum.
Ef litið er á innbyrðis skyldleika nautanna, sem
fengu I. og II. verðlaun, þá má flokka þau á eftirfar-
andi hátt:
1. Sonasynir Huppu 12 á Kluftum ..................... 14
2. Sonasynir Mána frá Itluftum ...................... 25
3. Ueppssynir ....................................... 12
4. Sonasynir Repps .................................. i)
5. Aðrir sonasj'nir Huppu 12 á Kluftum ............... 5
— 65
6. Af Mýrdalskyni í báðar œttir ..................... 20
7. Af l>orvaldseyrarkyni ............................. 2
— 22
8. Aðrir ............................................... 15
Saintals 102
Hér sést það, að 65 naut eru að meira eða minna
leyti af Kluftakyni, 22 af Mýrdalskyni og aðeins 15,
sem ekki geta heyrt undir þau 2 kyn.
L