Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 293
BÚNAÐARRIT
291
velja undan lionum beztu kýrnar, ef því verður við
komið. Ég tel, að varla sc hægt að fá öruggari kyn-
bótagrip eins og sakir standa en naut undan Repp og
einhverri af beztu dætrum hans. Þá er Víðkunnur frá
Hjálmholti undan Skjöldu 64 og Repp afar glæsilegt
naut. Hann er að vísu óreyndur að mestu, en ungviði
það, sem er að alast upp undan honum, gefur miklar
vonir. En ætt hans er þannig, að engin leið er núna
að velja saman tvo gripi, sem gefa meiri likur fyrir
ágætum grip en Repp og Skjalda 64 í Hjálmholti. Þá
er Hængur frá Hjálmholti, sem áður hefur verið
nefndur og þegar hefur hlotið I. verðlaun fyrir af-
kvæmi. öll hin nautin eru mjög vel valin, en einna
mestar vonir eru bundnar við Austra frá Garðakoti í
Mýrdal, son Bílds og Lukku Skjaldardóttur þar. Margt
bendir til, að Austri búi yfir þeim kostum, sem helzt
er hörgull á í félaginu, en það er rétt beinabygging og
nægjanleg holdasemi.
20. Nf. Skeiðahrepps, Árnessýslu. Hér hefur verið
starfandi nautgriparæktarfélag frá því 1910. Þar liafa
lengi verið ágætar kýr, og þaðan var um skeið flutt
mikið af nautum um alla Árnessýslu. Séu raktar
ættir kúnna langt aftur, í nágrannasveitunum, þá eru
það fáar kýr, sem eiga ekki þangað ætt sina að rekja.
Sem dæmi má nefna, að Huppa á Kluftum var undan
Birni frá Birnustöðum á Skeiðum. Enn þann dag i
dag eru kýr á Skeiðunum, sem búa yfir miklum kost-
um. Ég lield, að þar séu bezt byggðu kýrnar í Árnes-
sýslu, og mikið er þar af prýðilega mjólkurlagnum
kúm. En kýrnar á Skeiðunum eru of fitulágar, og það
er nóg til þess, að þetta nautgriparæktarfélag hefur
misst forustuna i nautgriparæktinni i Árnessýslu. Nú
er nautastofn félagsins svo góður, að vænta má þar
verulegs kynbótaárangurs. En eins þurfa Skeiðamenn
vandlega að gæta í framtíðinni, ef góðar kýr eiga að
fá notið sín, og það er að sjá þeim fyrir betra fóðri