Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 78
76
BÚNAÐARRIT
því veita, því raargir þurfa að kaupa kynbótahrúta
nú á næstu árum, því við fjárskiptin fengu ýmsir
bændur lélega hrúta.
Sú breyting var nú gerð á aðaltöflunni ura búin
(töflu 1), að tveimur dálkum var bætt við fyrir meðal-
kjötþunga, eftir hverja tvílembu annars vegar og
hverja einlembu liins vegar.
Tafla 4 gefur samandregið yfirlit yfir kjötfram-
leiðslu eftir tvílemburnar og einlemburnar á þessum
búum árin, sem tafla 1 nær yfir.
Tafla 4. Samanburður á kjötframleiðslu eftir tvílembdar og
einlembdar ær á fjárræktarbúunum.
Meðal- Kjötþungi
dilkakjötþungi tvílembinga
Meðal- tal Eftir tvil. Eftir einl. Mis- munur sem o/o af kjötþ. ein-
Bú ára kg kg kg lenbinga
Hrafnkelsst.: fsl. ærnar . 4 ára 30,7 17,5 13,2 175,4
— Vz B. Leic. ær 2 — 30,8 17,8 13,0 173,0
Svansh.: Kollótta féð ... 4 — 29,0 17,4 11,6 166,7
— Þingeyska féð 4 — 28,2 16,7 11,5 168,9
Rangá 3 — 25,0 14,2 10,8 176,1
Þykkvibær: Kleifaféð ... 2 — 25,5 15,6 9,9 163,5
— Þingeyska féð 2 — 25,2 15,9 9,3 158,5
Stafafell 4 — 24,6 15,5 9,1 158,7
Brekka 4 — 26,3 15,2 11,1 173,0
Ólafsdalur 2 — 29,8 17,4 12,4 171,3
Valdalækur 2 — 31,5 19,3 12,2 163,2
Frá öllum búunum, nema Hrafnkelsstöðum, Rangá
og Valdalæk, eru skýrslur þannig færðar, að sérvigt
er gefin á hverju dilksfalli, svo hægt er að reikna
kjötprósentu fyrir einlembinga og tvílembinga sér. Er
því hægt að reikna rétt lit meðalkjötframleiðsluna
eftir tvílembur og einlembur á þeim búum.
En með skýrslunum frá Hrafnkelsstöðum, Rangá og
Valdalæk, hefur aðeins fylgt vigtarnóta yfir þau lömb,