Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 96
94
BÚNAÐARRIT
sögðu sumir. Því það er mjög ríkjandi skoðun hér,
að skyldleilcarækt sé til bölvunar í fjárræktinni. —
Sannleikurinn er sagna beztur, og skal ég því skýra
fyrir ykkur afkomuna eins og hún raunverulega var.
Hún er síður en svo til þess að stolta af, og hefur oft
verið betri.
Alls slátraði ég 40 lömbum og setti 4 gimbrar á
vetur. Jafnaðarvigt þeirra allra, þegar ég hef breytt
lifandi þunga gimbranna, sem lifa, í kjöt, miðað við
40% kjöt af lifandi þunga er 12,75 kg. Af þessum
44 lömbum eru 30 tvílembingar, 2 tvílembingar, sem
gengu einir undir, 9 einlembingar undan eldri ám, en
tveggja vetra og 3 einlembingar undan tveggja vetra
ám.
Jafnaðarvigt tvílembinganna er 11,78 með 38,63%
kjötþunga, þ. e. 19 hrútar og 11 gimbrar. Hrútarnir
höfðu 11,79 kg með 38,23%, gimbrarnar 11,77 kg
með 39,36% kjöt. Alls voru einl. 14, þegar meðtaldir
eru tvíl. 2, sem gengu einir undir. Jafnaðarvigt þeirra
er 14,82 kg með 40,29% kjöt, þ. e. 9 undan eldri ám
en tveggja vetra gera 15,61 kg með 40,98% kjöt, 2
tvík, sein gengu einir undir, 13,75 kg með 40,44% og
3 einl. undan tveggja vetra ám 13,17 kg með 37,98%
kjöt. Allir einlembingarnir voru metnir í I. fl., að
einum undanteknum, undan tvævetlu. Af 28 tvíl., sem
slátrað var, voru 8 metnir í I. fl., 15 í II. og 3 í III. fl.
og voru þeir allir fráviltir. Raunverulega eru þessi
lömb undan 29 ám, og er þá kjöt að meðaltali undan
á 19,36 kg, en svo gott er það ekki, ef reiknað er með
öllum ánum, því mig vantaði af fjalli 2 einlembinga.
Ef deilt er með þeim ám líka í allan kjötþungann,
verður niðurstaðan 18,11 kg á hverja á.
Ærnar voru teknar í hús 18. des. og gefið alveg
inni til 27. maí. Fóðrið var 2,25 hestar af töðu ásamt
fóðurbætisgjöf l'rá 15. apríl, 100 g á dag af maís. Þeg-
ar ærnar voru teknar, var meðalþungi fullorðnu ánna