Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 288
286
B Ú N A Ð A R RIT
Guðmundar heitins á Kluftum í Hrunamannahreppi,
og flutti Diðrik kúastofn úr Hrunamannahreppi með
sér austur í Rangárvallasýslu, þegar hann fór að búa
þar. Merkasti gripurinn hefur kannske verið Rauð-
skinna 11 á Kanastöðum, en hún er dóttir Hettu 19 í
Hörgsholti og Gyllis frá S.-Seli. Hún hefur mjólkað
að meðaltali síðastliðin 3 ár 5177 kg með 4.34% fitu
eða 22475 fitueiningar. Hún gengur því næst bróður-
dóttur sinni, Skjöldu 64 í Hjálmholti, með afurðaaf-
köst af öllum sunnlenzkum kúm. Þá flutti Diðrik
austur nautin Skugga frá Kluftum, son Hosu Huppu-
dóttur á Kluftum, Hörg frá Hörgsholti, son Hettu 19
og Mána frá Kluftum. Bæði þessi naut hafa skilið eftir
sig dætrahópa, sem höfðu eiginleika lil að skila mikl-
um afurðum, enda voru þeir báðir vel valdir, eins og
Diðriks var von og vísa. Nú siðast flutti Diðrik austur
Stefni frá Hörgsholti, son Hettu 19 og Túna frá Túns-
bergi, ágæts nauts. Stefnir er mjög álitlegt naut og lík-
legur til að gefa dætur með mikla afurðagetu, en sá
galli er á honum, að hann er hyrndur og því óliklegur
til þess að verða margra nauta faðir. Á Kanastöðum
er eitthvert afurðasamasta kúabú á Suðurlandi, enda
fengu þar 6 kýr I. verðlaun. í félaginu eru þess utan
víða álitlegar kýr, t. d. í Hólmi og víðar, og vonast ég
til þess, að þetta félag eigi eftir að láta til sín taka i
nautgriparæktinni.
7. Nf. V.-LandeijjahrRangárvallasýslu. Hér hefur
félagið starfað aðeins um þriggja ára skeið og þvi
nokkuð langt í land, að vænta megi þaðan kynbóta-
gripa. En það hefur orðið allgóðan nautastofn, og má
þvi búast við, að kýr fari þar batnandi, og ríður þá á,
að bændur þar eins og annars staðar geri sér grein
fyrir því, að til þess að kýrin geti mjólkað meira, þarf
líka að auka fóður við hana.
8. Nf. Fljótshlíöarhrepps, Rangárvallasýslu. Hér er
lítið félag í stórri sveit og viðbúið, þrátt fyrir dugnað