Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 240
238
BÚNAÐARRIT
Loðdýraræktin.
Þegar ákveðið var, með 1. nr. 43 1951 uin br. á 1. nr.
112 30. sept. 1947 um loðdýrarækt, að leggja niður
starf ríkisráðunautar í loðdýrarækt og fela B. í starf
lians, í samráði við L. R. í„ réðst það svo, að ég tæki
að mér starfið á vegum B. í.
Svo sem kunnugt er má svo heita, að loðdýrarækt
sé nú úr sögunni hér á landi. Refabú munu engin
hafa verið í ársbyrjun 1951 nema í Snæfellsnes-, Dala-,
Stranda- og V.-Húnavatnssýslu, en engar skýrslur
sýndu, svo að ég viti, hvar þau voru eða hvern bú-
stofn þau höfðu.
Seint á s. 1. ári skrifaði ég hreppstjórum í þeim
hreppum (32 að tölu), sem ég hugði möguleika á, að
um einhver refabú gæti verið að ræða, og sendi þeim
eyðublöð (115 tals) undir skoðunarskýrslur.
Svör eru nú komin úr 13 hreppum, en refabú cru
aðeins í 3 þeirra: í Skarðshreppi, 4 silfurrefir á 2
búum, Stykkishólmshreppi, 10 silfurrefir á einu búi
tveggja eigenda, og í Helgafellssveil 1 bú mcð 20 silf-
urrefi. í þessum hreppum hafa 5 bú lagzt niður á
s. 1. ári, þ. á m. i Stykkishólmi, og var það á síðustu
árum eina refabúið, sem nokkuð kvað að. Þótt eitt-
hvað kunni enn að vera af refum í þeim hreppum, sem
svör eru ókomin úr, þá er það víst, að um fá bú ein
og smá er að ræða, og má gizka á, að nú kunni að vera
alls í landinu 50—60 silfurrefir í búrum.
Meira máli skiptir um minkana, þótt lítið sé nú
orðið af þeim líka. H. J. Hólinjárn, þáv. loðdýrarækt-
arráðunautur telur, í bréfi til landbúnaðarráðuneytis-
ins, dags. 2. des. 1950, sbr. þskj. 70. löggjafarþings nr.
521, 7 minkabú í landinu og áætlar, að þá verði sett á
1000—1200 dýr á þessum búum. Þar eru ótalin 3 bú,
sem vitað er þó, að þá voru lil (2 á Vestfjörðum, 1 í