Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 168
166
BÚNAÐARRIT
Móðir Rjúpu nr. 397 er Rjúpa á Syðra-Álandi, faðir
Rjúpu eldri er Hörður. Afkvænii Rjúpu eftir töflu 2
A að dæma, eru væn, einkum ærnar, en hafa þó heldur
krappari brjóstkassa en úrvalsfé í fjárræktarfélaginu
Þistill. Afkvæmin voru öll undan Roða nr. XXXVI,
en báru á engan hátt af afkvæmum hans að dómi
Hjalta Gestssonar.
Rjúpa fékk II. verðlaun fyrir afkvæmi.
B. Rjúpa nr. 502, 8 v., eign Þórarins Kristjánssonar
í Holti, var sýnd 1949 með afkvæmum og hlaut þá
I. verðlaun fyrir þau. í Búnaðarritinu, 64. árg., bls.
239 og 240, er ættartala Rjúpu rakin og afkvæmum
hennar og afurðagetu lýst. Tafla 2 B sýnir, að af-
kvæmi Rjúpu voru nú enn glæsilegri að vænleika og
málum en 1949. Synir hennar voru allir bæði vænir
og vel gerðir. Þeir fullorðnu hlutu báðir I. verð-
laun.
Rjúpa hlaut I. verðlaun fyrir afkvæmi eins og
1949.
C. Drífa nr. 533, eign Árna Kristjánssonar, Holti,
var sýnd 1949 með afkvæmum og hlaut þá I. verðlaun
fyrir þau. Ætt hennar, afkvæmum og afurðagetu er
lýst í Búnaðarritinu, 64. árg., bls. 239, og er litlu við
það að bæta, nema ummælum Hjalta Gestssonar um
afkvæmi hennar nú. Hann segir: „Ærnar eru virkja-
miklar, vænar, en tæplega nógu holdmiklar, hrúturinn
liefur aðeins of veikt bak, en að öðru leyli ágætur,
veturgamla ærin metfé og lambið vænn tvílembingur,
en ekki nógu fagurt." Þessu lambi var slátrað, og
vó fall þess 18.5 kg. Hinn tvílembinginn vantaði,
er sýningin var haldin. Ærnar, dætur Drífu, voru báðar
tvílembdar ,og getur það átt sinn þátt í, að þær hafa
nú virzt tæpast nógu holdmiklar.
Drífa hlaut I. verðlaun fyrir afkvæmi eins og 1949.